Alþýðublaðið - 14.02.1964, Qupperneq 1
Reykjavík, 13. febr. AG.
Alþýðublaðið hefur haft spurn-
ir af því, að enn sé nýtt mál í
uppsiglingu á Keflavíkurflugvelli
og að það sé í nánum tengslum
við mál Jósafats Arngrímssonar.
Mun þarna um að ræða pósthús
flugvallarins.
Munu ávísanir frá Jósafat hafa
verið leystar út í pósthúsinu, og
síðan geymdar þar í mislangan
tíma, eða þar til viðkomandi sá
sér fært að innleysa þær. Munu
upphæðirnar á þessum ávísunum
hafa skipt tugum ef ekki hundr-
uðum þúsunda. í>á hefur einnig
verið getið, að einhverja upphæð
vanti til að reikningar pósthúss-
ins gangi upp.
Mikil leynd hefur hvílt yfir
þessu máli, en þegar eru liðnir
nokkrir dagar síðan viðkomandi
yfirvöldum var skýrt frá þessu.
Ógjörningur hefur reynst að fá
nánar um þetta að vita, menn
ekki talið tímabært að gefa upp-
lýsingar eða þá ekkert viljað
segja.
Þess má geta, að yfirmaður póst-
hússins hefur sagt upp stöðu sinni
Reykjavík, 13. febr. — GO.
UM kl. 5 í dag varð það
slys upp við Selás, að fisk-
trönur hrundu er verið var
að hengja á þær fisk og einn
maður varð undir þeim. —
Hann heitir Guðmundur Sig-
urjónsson og var meðvit-
undarlaus þegar lögregla
og sjúkralið kom á vettvang.
Gúðmundur stóð uppi á bíl
ásamt tveimur mönnum öðr
um, þegar slysið varð, en
hinum tókst að forða sér í
tæka tíð.
Þegar lögregla og sjúkra-
lið kom á vettvang var Guð-
mundur meðvitundarlaus.
Hann hafði fengið högg á
höfuðið og herðar og var
fluttur á Slysavarðstofuna.
Þaðan var svo farið með
hann í Landsspítalann.
Ekki er enn vitað, hvað
olli slysinu, en málið er í
rannsókn.
Guðmundur er til heimil-
is að Nökkvavogi 5 í Rvík.
(Mynd:
WMWWWWMWWMWWWW
Taka Loftleiðir við
ugvallarhótelinu?
SAMNINGAVIÐRÆÐUR STAÐIÐ YFIR SÍÐAN í JANÚAR
Reykjavík, 13. febr. — AG.
UM þessar mundir standa yfir
samningaviðræður milli varnar-
máladeildar og Loftleiða annars
vegar og varnarmáladeildar og
yfirmanna varnarliðsins hins veg-
ar, um framtíðarrekstur flugvall-
arhótelsins. Eru mjög sterkar lík
ur fyrir því, að Loftleiðir taki
alveg við rekstri hótelsins, og
mun það væntanlega verða í fram
haldi af kaupum félagsins á hin-
um stóru Canadair-flugvélum,
' sem ekki geta athafnað sig á R-
, víkurflugvelli nema óhlaðnar.
Skipuð var nefnd af hálfu
' varnarmáladeildar, en í henní
eru Hörður Helgason, formaður,
| Jóhannes Sölvason, Hörður Bjarna
son húsameistari, Pétur Guð-
mundsson, flugvallarstjóri á
MMMMMMMMWMMMMMM*
VERDA MÚRHLIÐIN
OPNUÐ A PÁSKUNUM?
Berlín, 13. febr. (NTB-Reuter).
Austur-þýzka ríkisstjómin stakk
upp á því í dag, að um páskana
verði haft sama fyrirkomulag og
um jólin, það er að hlið verði
opnuð á múmum og Vestur-
Þjóðverjum er ættiugja eiga
austan múrsins yrði leyft að
heimsækja þá. Er þetta haft eft-
ir austur-þýzku fréttastofuuni
ÁDN.
Fyrr í dag gekk orðrómur um
i að viðræður embættismanna
Austur- og Vestur-Berlínar væru
komnar í sjálfheldu. í yfirlýs-
ingu frá borgarstjórninni í V,-
Berlín segir, að viðræðúrnar
muni halda áfram þar í borg í
næstu viku. Óstaðfestar fréttir
hermdu, að viðræðúrnar hefðu
verið komnar í sjálfheldu eftir
að Austur-Þjóðverjar höfðu vís-
að á bug fjölmörgum tillögum
Framh. á 4. síðu
Þáttur frá;
íslandi í BBC
Sunuudaginn 19.
mánaðar verður flutt í
brezka útvarpinu (BBC-Ho-
me Service) þáttur frá ís-
landi, sem nefnist „Talking
of Iceland”. Þátt þennan tók
saman maðnr að nafni Brid-
son, en hann var hér á ferð
síðastliðið sumar).
í þættinum koma m. a.
fram Barbara Árnason, lista-
koua, Gunnlaugur Péturs-
son, Kristján Karlsson, rit-
höfundur, Bjarni Guðmnnðs-
son, blaðafulltrúi, Gunnar
Schram, ritstjóri, Helga Kal-
man, ritari í sendiráði is-
lands í London, Björn
Björnsson kaupmaður i Lon-
don — og fleiri.
>MMMiMMMMMMMMM%MW
Keflavíkurflugvelli og Ásgeir
Einafssan, skrlfstofustjóri. Við-
ræðrn- við Loftleiðir hófust í síð-
asta mánuði, og eru þar fulltrú-
ar Loftleiða, þeir Kristján Guð-
laugsson, Gunnar Helgason og
Jóhannes Einarsson.
Blaðið ræddi í gær við Jóhann-
es Sölvason. Hann sagði, að Loft-
leiðir hefðu sýnt áhuga á mál-
inu sérstaklega með tllliti til þess
að í flugstöðinni yrði meiri og
betri aðbúnaður og þjónusta fyr-
ir farþega. Athugun hefur farið
fram í sambandi við breytingar
á hótelinu og frumteikningar ver-
ið gerðar. Þá er I ráði að koma
þar upp tollvörugeymslu og fleiru.
Jóhannes taldi það mjög æski-
lega lausn, að Loftleiðir tækju
við rekstrinum, og það yrði vafa-
laust endirinn, ef félagið færi
með sína starfsemi á Keflavíkur-
flugvöll. Jóhannes sagði, að ekki
hefði verið gengið emi frá nein-
um samningum.
Hann kvað viðræðurnar tvíþætt-
ar. Annars vegar væru það Loft-
leiðir og hins vegar, varnarlið,
sem nú rekur hótelið, en Loft-
leiðir hafa þar aðeins aðstöðu til
að afgreiða sínar vélar.
Hann sagði undirtektir varnar-
liðsins vera mjög jákvæðar. Ef
hótelið yrði afhent, fengi ríkið
það og leigði það síðan Loftleið-
\un.
Framh. á 4. síðu
þar, og mun hafa verið ætlunin
að hann yrði sölu- eða fram-
kvæmdastjóri hjá dóaagos-
drykkjaverksmiðju þeirri, er
Jósafat Arngrímsson ætlaði að
reisa í Garðahreppi.
Það er engum vafa undirorpið,
að Keflavíkurmálið er að verða
æði viðamikið, þó ekki sé meira
sagt. Ekkert hefur enn verið lát-
ið uppi um gang rannsóknarinn-
ar, en nú er kominn tími til að
einhverjar upplýsingar verði
veittar. Það er ekki lengur hægt
að þaga yfir slíku máli sem þessu.
HMMMHMMMMMMMMMMM
Rannsókn Spari-
sjóðsmálsins
senn að Ijúka
Reykjavík, 13. febr. — ÁG.
RANNSÓKN Sparisjóðs-
málsins svokallaða fer nú
senn að ljúka” og verður það
sent saksóknara ríkisins inn-
an skamms. Hefur mál þetta
verið allumfangsmikið, og
rannsóknin tekið langan
tíma. Sveinn Sæmundsson,
yfirlögregfluþjónn hefur haft
með rannsókn málsins að
gera.
Það hefur ekki komið í
ljós, að nokkur annar starfs
maður Sparisjóðsins, utan
þess, sem lézt rétt fyrir jól,
hafi átt lilut að máli í sam-
bandi við f járdráttinn. Allar
þær gróusögur, sem gengið
hafa um bæinn undanfarnar
vikur eru gersamlega úr
lausu lofti gripnar.
MMMMMMMMMMMMMMMM
SPARKAÐI
í DRENG
Reykjavík, 13. febr. GO-
Klukkan 11.45 í morgun þegar
12 ára drengur úr Kópavogi átti
leið um Vonarstræti, vék sér að
honum maður og sparkaði svo
kröftuglega í fótlegginn á honum
að flytja varð hann á Slysavarð-
stofuna. Pilcurinn heitir Hákon
Karl Magnússon og á heima í Hóf-
gerði 24. Rannsóknarlögreglan hef
ur fengið málið til meðferðar.
Um hádegið féll maður niður
stigann í Café Höll og var fluttur
á Sjlysavarðfttofunal Hann jnun.
ekki hafa meiðst alvarlega.
Þriðja óhappið varð klukkan að
verða 3 í dag, þegar tveir bílar
lentu í árekstri á mótum Fríkirkju
vegar og Skálholtsstígá. Kona, sem
vár farþegi í öðrum bílunum tneidd
ist allmikið af glerbrotum. Húu
heitir Málfriður Ámadóttir og var
flutt í Slysavarðstofuna.