Alþýðublaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 14.02.1964, Blaðsíða 10
MINNINGARORÐ Framh. af' bls mér óvænt sú þungbæra frétt, að vinur minn Ari Kristinsson, sýslu- maður, væri alvarlega veikur og hefði verið fluttur flugieiðis hing að suður til spítalavistar. Þetta þunga högg kom svo skyndilega og óvænt, að ég gat tæpast trúað því. Rúmum tveim mánuðum fyrr hafði Ari gert okkur hjónunum þá miklu ánægju að dveljast hjá okkur góða kvöldstund. Þá rædd- um við liðna daga, liðnar stundir og atburði siðustu ára. Ari var opinskár þessa kvölstund. Hann rakti minningarnar fram úr djúp- um hugar síns, sagði okkur svo margt, sem við vissum ekki, og sém okkur er svo kært í dag- Það yar engu líkara en eitthvert hulið afl væri að knýja hann tii frá- sagnar og til þess að blanda geði við vini sína í enn ríkara mæli en nokkurn tíma hafði átt sér stað áður. Það var óvenjulega kær leiksríkur maður, sem flutti okk- ur ræðu sína. Áform hans voru björt og heið og til allra mælti hann aðeins fögur og hlý orð. Hann dáði lííið og var Guði þakk- látur fyrir það, hve mikið hann hafði gefið honum í dásamlegri konu og góðum börnum. Það lék mikil og fögur birta um Ara þessa kvöldstund. Ég minnti hann á þetta þegar ég heimsótti hann á sjúkra- beði. Hahn brosti og sagði: „Já — ég man þetta allt svo vel og ég er feginn að hafa átt þessar við- xæSur við ykkur- Við geymum þær vel, Jakob.“ Já, þær verða geymdar vel, þessar fögru minningar um þessa stuttu kvöldstund. Þær minna mig Jafnan á óvenjulega góðan, mik- ínn og heilsteyptan mann, marih, sem fullur var skilnings, kærleika virðingu fyrir lífinu, fyrir sam- ferðamönnunum, mann, sem um- fram allt elskaði heitt og innilega fjölskyldu sína, frændur og vini, landið og þjóðina. t dag er hann horfinn sjónum okkar i þessu lífi. í dag er hann kvaddur hinztu kveðjunni, kvadd- ur í kærleika og þakklæti, kvadd- ur með tár á hvarmi. Við eigum alltof fáa ágætismenn eins og Ara sýslumann Krisinsson. Þjóðin má ekki við því að missa slík val- menni á bezta alri- En okkar harmur og eftirsjá er þó enginn á við það, sem kona hans og börn búa við og finna. Megi almáttug- ur góður Guð styrkja þau og varðveita í sárum sökunði og þungum harmi. En minningin um glæsilegan, mikinn og góðan mann, mun jafnan lýsa þeim og verma þau um ókomin ár og daga. Bræðrum og systur, aldraðri tengdamóður, tengda- og venzla- fólki sendi ég dýpstu samúðar- kveðjur. J. V. Hafstein- „Vegir skiptast. — Allt fer VfJ ýmsar leiðir jna á fyrirhéitsins lönd. Einum lífið arma'breiðir, öðrum réttir dauðinn hönd. Eirium flutt er árdagskveðja öði’um sungið dánarlag .;... ” ; l/y. í DAG kveðja ættingjar og vinir Ara Kristinssón, sýslumann Barð- atréndinga, sem á sviþlegan hátt ér 'hrifinn á brott, löngu fyrir ald- írCfram, frá míklu óunnu starfi í þágu þjóðar sinnár,'frá eiginkonu og stórum bamahóp. Enda þótt við bekkjarsystkin Ara gerum okkur ljóst, að sökn- uður okkar og harmur er á eng- an hátt sambærilegur við hinn sára trega og sorg konu, barna og nánustu ættingja, setur okkur þó hljóða við þessa helfregn. Þeim fyrsta úr hópi 34 stúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri 1941 hefur verið svipt brott; þeim úr hópnum, sem sízt var við búizt. Ari Kristinsson var fæddur á Húsavík 6. nóvember 1921, sonur Kristins kaupmanns þar, (Jónsson ar prests á Húsavík, Arasonar, bróður Matthíasar skálds, Joeh- umssonar) og Guðbjargar Óladótt- ur, (smiðs á Húsavík, Kristjáns- sonar). Ari stundaði nám við Mennta- skólann á Akureyri og lauk þar stúdentsprófi 1941 og embættis- prófi i lögfræði vorið 1947. Ari var farsæll námsmaður og lauk námi sínu með mestu prýði, enda þótt hann tæki einnig, einkum á menntaskólaárunum mikinn þátt í félagslífi skólans, einkum leik- list og íþróttum. Ari kvæntist 4. janúar 1945 eft- irlifandi konu sinni, Þorbjörgu Þórhallsdóttur, kaupfélagsstjóra á Húsavík, Sigtryggssonar. Varð þeim átta barna auðið og verður það elzta 18 ára 12. marz n. k. en það yngsta er aðeins tveggja ára. Ari tók að loknu embættisprófi við fulltrúastarfi hjá Júlíusi Hav- steen, sýslumanni á Húsavík og gegndi þvf til 1956, er hann tók við sýslumannsembætti f Barða- strandarsýslu. í embættisstörfum sinum naut Ari mikilla og almennrá vinsælda. Júlfus heitinn Havsteen mat hinn unga starfsmann sinn mikils og var samstarf þeirra mjög gott, enda fayggt á gagnkvæmri vináttu og trausti. í sýslumannsembætti var Ari einkar vel látinn. Einkenndust skipti hans við alla, sem honum kynntust, af þeim eiginleikum, er I rikastir voru í fari hans, skapfestu I og einurð, en jafnframt hlýhug og félagslund, er hvers manns hjarta vann. Sýna viðbrögð sýslunga Ara við fráfalli hans þær vinsældir, er hann naut. Á stundum sem þessum verða þau orð allajafna vandfundin, er verða megi þeim til hugarléttis, sem um sárast eiga að binda. Tor- ráðin er sú spurning, er á hugann leitar, þegar í svó skjótri svipan er bundinn endir á líf manns á bezta aldri, manns sem enn var baðaður hádegissól starfsdags síns og svo mikils var af að vænta. Römm virðast þau rök, er kalla eiginmann og föður brott héðan úr lieimi frá þeim, sem heitast unnu honum og þyngstan bera harminn. Skilningi okkar mannanna eru takmörk sett. Við rýnum í sort- ann, en sjáum eigi. Þó er okkur í vanmætti okkar rétt sú hönd, er Hknar þeim, sem harðast er Ieik- inn, reisir þann við, er örmagnast hefur, leysir vanda þess, cr efa- semdir þjá. — Við erum ekki ein á ferð, ekki ein á skammvinnri göngu frá vöggu til grafar. í myrkri getuleysis okkar skín Ijós þess, er gaf okkur lífið og þennan heim, sem ókkur er svo óræð gáta. t þögn óvissunnar og umkomuleys- isins hljómar rödd meistarans: Sjá, eg er með yður alla daga. Og and- spænis dauðanum nemur hugur okkar það fyrirheit, sem ávallt er uppspretta hins dýþsta fagnaðar: Ég ér Uþprisan Og lífið; sá, sem trúir á mig, mun lifa, þótt harin deyi. í bjarma þessa boðskapar öðlast líf okkar hér á jörð og handan grafar eitt og sama innihald. Hinn örðugi skilnaður varir aðeins skamma hrið. Og hvert, sem okkur ber, erum við falín í hendi skap- arans, sem einnig vefur örmum sín um hann, sem við kveðjum í dag með svo sárum trega Megi þetta undursamlega lausn arorð verða ástvinum Ara Krist- inssonar huggun í þungum harmi og veita þeim styrk til að horfa við dögum. Bekkjarbróðir. Ég bjóddi Framh. úr opna leitt allt annað, sem danskennar- anum datt í hug. Takturinn var vitanlega misjafn, eins og oft vill verða, en æfingin skapar meistarann, og mistökin gleym- ast fljótt á þessum aldri, enda skein ánægjan af hverju andliti. — Framan af varð að notast við fóninn, eins og áður er sagt, en svo kom hljómsveitin og leysti hann af hólmi. Og með henni var söngvari, svo að ekkert skorti á, að allt væri eins og á böllunum lijá þeim fullorðnu. Þátttakan hefur áreiðanlega verið um eða yfir 90% í öllum dönsunum, en tvistið átti greinilega hvað mest- um vinsældum að fagna, og yfir- leitt sagði Heiðar, að það gilti um alla Suður-Ameríku dansana. Grímuballið í gær er aðeins eitt af mörgum, því að ekki kemst nema lítill hluti af nem- endum dansskólans fyrir á hverju balli með góðu móti. Nú eru þeg- ar ákveðin átta grímuböll, en í fyrra sagðist Heiðar hafa haldið þrettán. Þungur kliðurinn fylgdi okkur til dyra, þcgar dansinn stóð sem hæst, og það var miklu grárri veröld, sem auganu mætti, þegar við komum út í rigninguna á Austurvelli. hjp. ÍÞRÓTTIR Framh. af 11. síðu 1500 m. skautahlaupið fór fram í dag. Talsverður vindur var ann- að slagið og setti hann nokkurt strik í reikninginn. Einnig var fremur kalt í veðri og þess vegna ekki gott rennsli eins og tímarnir benda til. Keppnin var mjög skemmtileg því oft var sigur An- tsons í hættu. Antson hljóp í 3- riðli (2:10,3) og mátti því bíða lengi milli vonar og ótta, þeir skæðustu áttu eftir að hlaupa. En tími Antsons stóðst allar árásir þótt höggvið væri nærri. Það var ekki fyrr en Verkerk frá Hol- landi hafði lokið hlaupi sínu — (2:10,6), að Antson gat talið sig öruggan um sigurinn. Þá voru hætturnar liðnar hjá. Yfir Atlantshafib Framh. af bls 7 I háðir alls konar veðráttu, segir Marx, svo að allir verða að vera „í góðu formi”. Marx bendir á, að þetta verði ekki fyrsta ferðin yfir Atlants- haf á víkingaskipi. En við verð- um þeir fyrstu, sem fara í einu og öllu að eins og víkingarnir. — Aðrir, sem siglt hafa á víkingaskipum yfir Atlantshaf, notuðu ekki aðeins nýtízku segl, heldur einnig nýtízku stýr isútbúnað og alls konar annan nýtízku útbúnað. í þrem þeirra fjórum víkingaskipa, sem siglt hafa yfir Atlantshaf síðan 1893, voru hjálparmótorar. Þeir not- uðu sér einnig nýjustu siglinga fræðiþekkingu, völdu beztu Ieiðirnar nálægt skipaleiðum og höfðu meðferðis nútíma mat og drykk. Robert Max er staðráðinn í að fylgja beztu erfðavenjum víkinganna á siglingunni allri. Hann er 29 ára að aldri, fæddur í Pittsburgh, Pennsyl- vaníu, en ólst upp í Los Ange- les Hann lærði að synda og kafa um líkt leyti og hann Iæri að ganga og stóð sig vel í nær öllum íþróttagreinum í bernsku. Fimmtán ára gamall gekk hann í bandaríska flot- ann, en varð að hætta tveim mánuðum síðar þegar yfirvöld- in komust að raun um aldur haris. Seinna gegndi hann her- þjónustu um þriggja ára skeið í landgönguliðinu. Eftir það bjó hann um fjög- urra ára skeið í Mexikó, rak hótel og leitaði að fjársjóðum, bæði neðansjávar og á landi. Einn merkasti fundur hans á þessum tíma var safn listmuna frá fyrrí öldum, sem metnir voru á 100 þús. dollara og Mexi kóstjórn gerði seinna upptæka. Hann fann m. a. hjól, fallbyss- ur, sverð og önnur vopn. Allir voru þessir hlutir frá því fyrir daga Columbusar og taldir af evrópskum uppruna. Þar með þótti sannað, að margir hefðu fundið Ameríku á undan Col- umbusi. Marx hefur unnið að kvik- myndatöku neðansjávar (Bey- ond the 12 Mile Reef, Under- water), hann ferðaðist um tveggja ára skeið umhverfis jörðina og kafaði eftir neðan- sjávarsteinum fyrir bandarískt fyrirtæki og um tveggja ára skeið dvaldist hann á Spáni og rannsakaði rækilega sögu spánska fjársjóðaf'otans. Um þetta hyggst liann semja bók. Árið 1962 sigldi Marx á skipi, sem var nákvæm eftir- líking á skipi Columbusar, „Nínu”, frá Spáni til Bahama- zp'yj iývdl f/ m w Fljótt og örugg Þjónusta. Hjólbarðinn til- búinn innan 30 mínútna. Sérstök tæki fyrir -fe slöngulausa hjólbarða. Felgur í flestar teg- Jm undir. tó MILLAN......... Þverholti 6 * /íájB (Á horni Sfórholfs og l'Jéí. Þverholfs> • f* Réynið viðskíptin. OoiS frá kl, 8 árd. til 11 l,d. alla daga vikutthár* 1 eyja. Marx var leiðsögumaður og siglingafræðingur í ferð- inni, sem var nákvæm eftirlík- ing á hinni frægu ferð Colum- busar er hann fann Ameríku. Ferðin stóð í fjóra mánuði og vakti heimsathygli. Reynsl- an úr þessari ferð kemur Marx að góðum notum í víkingaferð- inni, sem ekki mun vekja síður minni athygli. I—I UJ FIISIEIfflNW ÁSVALLAGOTU 69. Sími 33687. kvöldsúni 23608. TIL SÖLU: 4ra herbergja mjög glæsileg í- búð í sambýlishúsi í Hvassa- leiti.. íbúðin er 4 herbergi, lín- herbergi, bað og rúmgott eld- hús. Öll gólf teppalögð. Harð \iðarinnréttingar. Sólrikar svalir. 1. hæð. 3ja herbergja íbúð í sambýlis- húsi við Hjarðarliaga. Vönd- uð. 3ja herbergja íbúð á annarri liæð við Rauðarárstíg. Steinhús, hentugt fyrirkomulag. Tvöfalt gler, svalir. 3ja herbergja risíbúð í Hlíða- hverfi. Væg útborgun. Lúxushæð ca. 160 fermetra í Safamýri er til sölu. ibúðin er uý, 3 svefnherbergi, gott eld- hús,- rúmgóðar stofur með eld stó. -Þvottahús á hæðinni. Ó- venju vönduð íbúð. 5—6 herbergja íbúð við Rauða- læk. 1. hæð, bílskúr. Mjög skemmtileg íbúð. Hagstætt verð og skilmálar. HÖFUM KAUPANDA að: Húseign með nolckrum íbúðum, mikil útborgun. Tveggja íbúða húsi. Mikil út- borgun. 4ra herbergja íbúð, útborgun 6_ 300 þús. krónur. 120 — 130 fermetra einbýlishúsi í smíðum. 5 — 6 lierbergja íbúð í Kópa- v-ogi. 1. veðréttur þarf að vei'a laus, góð útborgun. Má vera í smiðum. Munið að eignaskipti eru oft möguleg hjá okkur. Næg bílastæði. Bílaþjónusta við kaupendur. ÆskulýBsvika K.F.U.M. og K. Samkoma í húsi félaganna við Amtmansstíg 1 kvöld kl. 8,30. Sveinn Guðmundsson, skrifstofu maður, hefir stutta hugleiðingu. — Vissir þú þetta? — Séra Jón- ; as Gislason talar. Kvennakór syngur. Allir velkomnir. 10 14. febr. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.