Alþýðublaðið - 22.03.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.03.1964, Blaðsíða 3
Indlandspístlar f rá Sigvalda Hjálmarssyni Madras, 27. febr. EG er kominn að þeirri niður- stöðu, að borgir séu yfirleitt ó- skaplegur óskapnaður. Það er of fállegt að líkja þeim við maura þúfur, þótt ekki geti það talizt yirðuleg samlíking. Mér finnast þær vera líkastar graftarbólum á ásjónu jarðarinnar, hrópandi tákn um sjúkt mannlíf. Menn geta auðvitað sagt, að það sé álíka mikið fagurt í borgum og ófagurt, og ég hygg það sé nærri lagi. En hið fagra gerir ekki hið ljóta fagurt, þótt ekki séu nema nokkrir metrar á milli, og er ekki heldur nein afsökún. Múgur verður til þar sem þröngt er. I Vesturlönd séu. mikið betri, þótt j yfirborðið sé slettara. Það hlýtur j eitthvað að vera bogið við mann- j. inn sjálfan, úr því að hann þráir i frið, en stofnar til ófriðar, þráir hamingju, en sáir óhamingju i kringum sig með verkum sínum. En á Vesturlöndum höfum við þetta fyrirbæri, sem kallast velr ferðarríki, og þótt því fari fjarri, að það lækni öll manna mein, og sé ef til vill tiltölulega lítill ár- angur á langri vegferð manna til betra lífs, þá sýnir það þó ein- hvern snefil af því, sem ég tel helztu framfaravonina: tilfinningu fyrir ábyrgð heildarinnar á ein- staklingnum, og einstaklingsins á heildinni, því að þetta hvort tveggja verður að fara saman. Vel Til vinstri eru sölumenn með varning sinn. Til hægri hafa nokkrir gamlir fauskar setzt niöur á gang stéttina til að spjalla saman. Á víðavangi vex upp sterkur stofn eða deyr virðulega, sem er hvort tveggja gott. Það er alls staðar ' sama sag- an: Maðurinn er heimskur af því hann þjáist, og þjáist af því að hann er heimskur. Ég segi þetta í fullri vinsemd, en fullri hreinskilni. Það þarf eng inn að móðgast. Þetta er ekki sleggjudómur. Gata í borgum Austurlanda er samanþjappað vandamál mann- kynsins. Við skulum þora að sjá hana eins og hún er. Ég er raunar ekki viss um, að » ferðarríkið sýnir, að menn eru að byrja að hugsa og sJjilja að það er næsta ógáfulegt framferði að hrifsa bitann út úr munnvikinu á náunganum og fara svo að gráta yfir því, að hann hefur ekki nóg. Og svo kemur það, sem ég hef séð: Á götunum eru ef til vill kýr bundnar við stólpa framan við hús eigandans. Úlfaldalest getur sézt við og við, og hópur af júg- ursíðum geitum, svo að spenarnir nærri dragast, er heldur ekkert einsdæmi. Innan um bílaumferð- ina fara vagnar með öllum teg- undum nauta fyrir, eða hestum eða ösnum, og öllum er skepnun um það sameiginlegt, að þær eru horaðar. Mcnn sjást einnig draga aðra menn á handvagni, og hjól af bullsveittum þrælum. Þegar ég fékk slíkt farartæki í Benares til þess að skutla okkur hjónunum nokkurn spöl, var drenganginn, sem var hvort tveggja í senn öku maður og mótor, öldungis hlessa, þegar ég vippaði mér úr vagnin- um í brekku, til þess að það væri ekki eins erfitt fyrir hann. Töluverð rómantík þykir á Vest úti. Það er ekki í frásögur fær- andi, að alls staðar er verið að verzla. En einnig sitja rakarar á Drengurinn er með visna fætur, og hann mjakar sér áfram á sitjandaniun eftir götunni. hækjum sínum niður í götunni og raka og klippa menn, sem húka þar í sömu stellingum. Hreinlæt- isspursmálið kvelur þá ekki. Og menn tylla sér gjarnan niður í svaðið til þess að spjalla saman, því að það er þægilegra heldur en að standa í sólarhritanum. í Benares sá ég líka tannlækni á mórauðri ullarpeysu úti á götu vera með „hiol“ sín og ,,narfa“ uppi í manni nokkrum, og fékkst hvorugur um,, þótt kýr og menn strykjust við hliðina á þeim. Ég nefni þetta bara til gamans. En nú skal ég nefna nokkur dæmi, annarrar tegundar. Á götuhorni í Delhi, fjölförnu götuhorni, þar sem erlendir ferða menn eru allan daginn á ferð og slöngutemjarar bjóðast til að láta skriðkvikindi sín leika listir fyrir peninga, situr lítill drengur alls nakinn, á að gizka tveggja ára. Hann situr á steinpalli við húsið. Hárið er klístrað og allur er líkami drengsins ataður í óhrein indum, svo að grísir i hinum sóða legustu stíum eru ekki verri. Það. er mökkur af græðgislegum flug um-í kringum hann og allstaðar á honum. Hann hefur ekki undan að nugga þær úr augunum, upp- máluð kvöl mannkynsins. Ég get ekki varizt þeirri tilfinningu, að hér hafi flugurnar setzt að hræ- inu, áður en það var orðið liræ. Á fjölförnustu götu Madras borgar hefur vikum saman hafzt við kona méð þrjú smábörn upp við vegginn. Þeirra húsnæði er „uppheims bláa tjald“, og undir sig breiða þau strigadruslu. Stund um eru börnin ein á druslunni tím um saman, meðan konan víkur sér frá, sennilega til einhverra út- vega. Bctlarahjón frá Bombay koma til móts við mig. Hann: Ég hef verið óheppinn, kem frá Bombay, hef ekkert að gera. Ég: (gríp fram í) Þvi miður, ég er aðkomumaður líka, hef enga vinnu fyrir neinn. Hann: Ég kem frá Bombay, við eigum fjögur börn (bendir á kon una, sem gengur á eftir honum með barn á fyrsta ári í fanginu, það er horað og með bauga und- ir augum). Ég hef sótt um vinnu í reiðhjólaverksmiðju en hef ekk ert í bili. Við erum svöng. Þetta var hans saga. Heil fjölskylda hafðist við nokkrar vikur í strákofa, sem reistur var upp við húshorn á mjög fjölfarinni götu í Madras. Kofinn var eins og hálft vega- manna tjald, klofið að endilöngu, og matseld fór fram í litlum hlóð um úti á götunni. Drengur með visna fætur mjak ar sér áfram á sitjandanum eftir einni helztu götu borgarinnar og betlar. Hann er fríður, augun sér staklega falleg og gáfuleg. Á sömu slóðum heldur sig sjö ára til átta ára drengur, sem allt af hefur á handleggnum ársgam- alt, vannært barn. Hann betlar og otar að manni barninu og pela með einhverju skolugu glundri í. A þessari sömu fjölförnu götu sé ég nokkru fyrir jól ungan mann urlöndum hvíla yfir þeirri starf- liggjandi á grúfu á götunni í sterkri hádegissólinni. Hann emj aði. Við hlið hans lá blikkdós und ir betlið og ekki einn einasti skild ingur í henni. Handleggirnir voru vafðir óhreinum- gasbindum, og undan jöðrum þcirra gægðust soll in kaun. Allt útlit mannsins var þess vitni, að hann ^etti ekki langt Framhald á 13. síðu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. marz 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.