Alþýðublaðið - 22.03.1964, Qupperneq 5
MinvtfngarorS:
Byggingaverkfræðingur
í byggðum Breiðafjarðar og
sveitunum á sunnan verðu Snæ-
fellsnesi er náttúrufegurð talin
mikil og hrífandi. Það fmnst þeim,
sem dvalið hafa þar langdvölum
og notið margbraytileik lands og
lagar, í litum og línum.
Þar um slóðir hefur líka löngum
búið margt ágæma manna og
kvenna. Þaðan hafa líka komið,
bæði fyrr og síðar, góðir fulltrú-
ar hinna ýmsu stétta þjóðfélags
okkar, enda mannval um margar
byggðxr fjarðarins frá fyrstu tíð til
vor.ra daga.
Á morgun verður gerð útför
Steinars Guðmundssonar frá
Stykkishólmi, er lézt að Lands-
spítalanum að kvöldi.dags hinn 14.
marz eftir nálega 6 vikna legu.
Steinar var borinn og barnfæddur
Snæfellingur og fæddist í Stykkis
hólmi 10. júlí 1907. Hann var
elztur 8 systkina. Eru það allt
kjörviðir og hvert þeirra valinn
fulltrúi á sínu sviði, hvort sem
er við húsmóðurstörf eða í at-
vinnulífinu.
Guðmundur faðir Steinars var
tvíkvæniur og var Steinar af fyrra
hjónabandi. Guðrún, móðir Stein
ars, var Rangvellingur að ætt, Ein-
arsdóttir, að Garðbæ á Hvalnesi.
Hún var talin lagleg kona og kven
kostur hinn ágætasii. .Til hennar
lá öllum hlýtt orð en heilsuleysi
sótti hana tiltölulegá unga heim
og lagði hana að velli unga að ár-
um. En meðan heilsu naut sýndi
hún í búsýslu sinni að þar fór
mikilhæf og óvenju'eg kona.
Nokkrum árum efár andlát Guð
rúnar gekk Guðmundur að eiga
Kristínu Vigfúsdóttur frá Brokey,
sem lengi var ljósmóðir í Stykkis-
hólmi.
Það er sennilega elcki alls kost-
ar vandalaust verk að ganga börn
um í móðurstað. Mér er eigi kunn-
ugt annað en að það verk hafi
Kristín leyst- af höndum vel og
með kostgæfni. Með Kristínu eign
aðist Guðmundur 3 börn, sem öil
eru á lífi. Nokkrum árum eftir
andlát Guðmundar fluttist Krisán
iil Reykjavíkur og býr nú hér í
borg.
Það er eigi ætlunin að rekja
ættir Steinars en þeir sem til
þél^kja vita glöggj, að ste^kír
STEINAR GUÐMUNDSSON
og merkir stofnar stóðu að hon-
um í báðar ættir. Föðurfólkið var
mikill ættbálkur um sunnanverðan
Breiðafjörð, gáfufó’k með hag-
leikshendur og snyrtibragð i hátt
um öllum og framkomu. Móður-
fólkið upprunnið úr Rangárvalla
sýslu með traustum einkennum
alls þess sem talið var til dygða
fyrr á tímum.
Steinar 'ifði glaður og áhyggju-
iaus í fjölmennum barnahópi
fyrstu ár sín, undir handleiðslu
móður og föður. En um ferming-
araldur fór að draga bliku á loft.
Um ;t.920 tekur móðir hans veiki
þá sem 4 árum síðar leiðir hana til
dauða. Hún dvelur langdvö'um
fjarri heimili sínu og deyr hér í
Reykjavík árið 1924. Það var þungt
áfall fyrir Steinar. Samband móð-
ur og sonar var hér með þeim inni
leik að vart mun hafa getið annað
nánara. Því er frá þessu sagt hér
að til þess var tekið hve óvenju-
lega umhyggjusamur hann var fyr
ir móður sinni þau árin, sem hún
var veik. Frá sjúkrabeði hennar
mun hann sjaldan hafa vikið og
nærgætni hans við hana var róm-
uð og viðbrugðið. Þá var hann að-
eins 17 ára gamall. Um þessar
mundir og síðar var Steinar föður
sínum hjá’psamur og traustur sam
verkamaður. Hann vann við öll
þau störf, sem faðir hans hafði
með höndum en þau voru marg-
þætt og margbreytileg, svo sem
húsasmíðar, kaupfélagsstjórn, út-
gerð, mann- og vöruflutningar um
Breiðafiörð o. fl. o. fl.
Á þessum árum fór að koma vel
í, ljós annar snar þáttur í eðli
Steinars en það var yinnusemin.
Honum féll aldrei verk úr hendi
og fylgd; það honum til síðasta
; vinnudags.
Bóklegt nám sóttist honum vel,
enda var hann greindur í bezta
lagi. Þar sem liann lærði húsa-
smíðar hjá föður sínum og enginn
iðnskóli var í Stykkishólmi sótti
hann iðnskólann hér í borg og
lauk honum á stuttum tíma.
Eftir að hafa stundað .húsasmíð-
ar í Siykkishólmi í nokkur ár
h’eypti hann heimadraganum um
áramótin 1937 og 1938, og hélt til
Svíþjóðar. Þar hóf hann nám við
Tekniska institutet í Stokkhólmi
í byggingaverkfræði og lauk námi
með góðum vitnistVrðC. Vegna
styrjaldarinnar var þá erfiðleikum
bundið að komast heim og senni-
lega hefur hann líka talið sig enn
eiga ýmislegt óunnið. Hann stund-
aði því áfram sérnám í fræðigrein
sinni og ýmsum greinum húsgerð
arlistar og byggingaverkfræði.
Hann sótti meðal annars tíma í
Tækniháskólanum. Þar komst
hann í kynni við ýmislegt það, sem
honum varð halddrýgst í starfinu
þegar heim kom. Þar aflaði hann
sér staðgóðrar þekkingar, enda
átti hin hárnákvæma sænska vinnu
semi vel við eðli hans og skap-
gerð. Allt sem hann gerði var
með handbUa£j5i hins list-elska
manns. Allt var fágað og hárná-
kvæmt. Allt hans ; starf eins og
hann var sjálfur. Hann var sjálf-
ur sannur, heill og óskiptur í
starfi. Þetta undirstrikaði. Svíinn
í samskiptum við hann, þessu hélt
hann áfram að lifa eftir þegar
hann kom heim.
Fyrst ■ eftir heimkomuna, fór
fyrir honum eins og mörgum, sem
eigi hafa vinahóp eða frændlið lil
þess að ryð.ia sér brautina. Honum
sóttist seint að markinu eftirsótta,
að fá nægileg verkefni við sitt
hæfi. Hann vann oft fyrstu árin
við þröngan kost og erfiðar aðstæð
ur. Þá komu honum í fang. ýmis
vonbrigði úr óiíklegustu áttum. En
smátt og smátt fóru verkefnin að
berast áð. Vinnukostgæfni hans
ruddi honum braut til margþættra
starfa og margbrotinna verkefna.
í áratug hefur hann nú unnið hjá
húsameistara ríkisins og haft til
meðferðar vandasöm verkefni hér
í borg og úti á landi. Kennara-
skóli íslands var síðasta verk-
æfni hans. Hann naut að því er mér
er talið álits og virðingar vinnu-
félaga sinna og var virtur fyrir
kostgæfni, heiðarleik og trausta
framkomu í hvívetna. Hér hefur
í stuttu máli verið stiklað á hin-
um ytri hliðum í lífi Steinars.
því sem blasir víð frá sjónar-
miði hins ytra lífs. Hér hefur ver
ið minnzt á manninn sem kom allt-
af á vinnustað á tilsettum tíma
vann sinn venjulega vinnudag og
bætti oft í álag kvöldstundum og
vökunóttum ef með þurfti. 'Ef til
vill hefur þessi langi vinnudagur
átt einhvern þátt í því sem komið
er. Það veit enginn og verður ald-
rei sannað eða afsannað.
i En maðurinn lifir eigi á einu
brauði saman, eins og skrifað stend
Framh. á 10. síðo
LÍVEEPOOL
Hvenær verður tekið í
HVAR sem komið er þessa
daga, er sama spurning efst á
baugi: Hvenær ætlar ríkisstjórn-
in að grípa í taumana í efna-
hagsmálunum? Er ekki ætlunin
að gera ráðstafanir til að stöðva
dýrtíðina?
Síðan söluskattsmálið var af-
greitt á Alþingi, hefur lítið verið
fjallað upi efnaliagsmál þar, enda
þótt þingið hafi haft nóg að gera
við afgreiðslu'annarra mála. Þing-
menn eru farnir í páskafrí, og
koma ekki aftur saman, fyrr en
eftir tíu daga.
Búizt er við, að þing standi að
minnsta kosti fram í byrjun maí,
enda eru ýmis stórnmál enn ekki
komin á dagskrá. Þar á meðal eru
breytingar á skatta- og útsvars-
lögum, framkvæmdaáætlun fyrir
þetta ár, vegaáætlun og sitthvað
fleira, að ógleymdum káupgjalds-
og verðlagsmálum.
Undanfarin tvö ár hefur verið
gerð áhrifarik tilraun í kaup-
gjaldsmálum. Almenn þreyta á
langvarandi deilum, sem leitt hafa
til verkfalla og framleiðslustöðv-
unar, varð til þess, að farið var
inn á braut gcrðardóma. Þeim
hefur vcrið beitt á fjórum þýðing-
armiklum sviðum. í fyrsta lagi
við lausn deilunnar um kjör síld-
arsjómanna á sínum tíma; og nú
aftur um kaup verzlunarfólks og
verkfræðinga. Þá hefúr verið lög-
bundinn gerðardómur um verð
landbúnaðarafurða, ef ekki hefur
um það samizt. Sama leið var vaL;
in fyrir opinbera starfsmenn og
settur kjaradómur, ef þar tækjust
að uppi eru háværar kröfur um
að hverfa frá þessari skipan. Hafa
komið í. Ijós miklir annmarkar,
sem benda eindregið til, að þetta
sé almennt ekki leið til far-
sællar lausnar á hinum marg-
þættu deilum um skiptingu þjóð-
arteknanna, þött hún dugi á ein-
staka sviði.
Einmitt þessa daga situr á rök-
Benedikt Gröndal
skrifar um helgina
ekki samningar. Loks var settur
slíkur dómur um fiskverð.
Ekki er rétt að eigna ríkis-
stjórninni einni þessa þróun. All-
ir flokkar bcra ábyrgð á kjara-
dómi og fiskverðsdómi, og bú-
vörudómur hefur verið lögbund-
inn um árabil.
Nú hafa dómar fallið hver af
öðrum og verið ákveðin laun
stórra starfsstétta, búvöruverð og
fiskverð — með þeim afleiðingum,
stólum einn þessara dóma, kjara-
dómur. Mun hann i þessum mán-
uði kveða upp úrskurð um það,
hvort opinberir starfsmenn eigi
að fá kauphækkun til samræmis
við hækkanir annarra stétta — eða
ekki.
Úrskurður kjaradóms fellur í
þann mund, sem Alþingi kemur
aftur saman. Skal engu um það
spáð, hvað þá gerist, en augljóst
, er hverju mannsbarni, að sá dóm-
ur mun gefa vísbendingu um,
hvers konar þróun er fram und-
an. Þá hljóta ráðamenn þjóðar-
innar að gera upp við sig, hvort
þeir láta kaupgjalds- og vcrðlags-
málin renna sitt skeið — eða
taka í taumana.
Enda þótt kaupgeta þjóðarinn-
ar hafi aukizt mjög verulega á
síðasta ári, sá ekki á gjaldeyris-
sjóðnum um áramót. Þó er- þess
að gæta, að birgðir munu hafa
verið litlar, og er búizt við, að
áhrif hinnar miklu veltu 1963
komi fram í minnkandi gjaldeyr-
iseign fyrstu mánuði þessa árs.
Ríkisstjórnin hefur undanfarið
fjallað um framkvæmdaáætlun
fyrir 1960. í fyrra fór allt úr
böndum og var unnið mun meira
en áætlunin sagði fyrir um á
sumum sviðum. Nú er óhjákvæmi
legt að halda framkvæmdum inn-
an ramma þess fjármagns, scm
fyrir hendi er, og forðast þá
spcnnu, sem setti efnahagslífið
úr jafnvægi í fyrra.
! Af öllu þessu virðist mega draga
þá ályktun, að april og maí verði
úrslitatími varðandi þróun efna-
i hagsmála á þessu ári og í næstu
I framtíð.
Liverpool
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 22. marz 1964 £.