Alþýðublaðið - 02.04.1964, Page 10

Alþýðublaðið - 02.04.1964, Page 10
Forsendur kjaradóms Framh. af bls 1 «ra, þegar þess er gætt, að lögin taka til starfsmanna, sem ekki mega knýja fram kröfur sínar meö valdbeitingu, en hafa í bráð sætt sig við þær leiðir í þeim efnum, sem ræðir í lögum nr. 55, 1962. Eru enda til önnur dæmi tim það hér á landi, að kaup einn- ar stéttar fylgi kjörum annarra lögum samkvæmt. Það liggur fyrir í málinu, við- Urkennt af varnaraðila, að siðan Iaun starfsmanna rikisins, er gilda áttu til ársloka 1963, voru ákveðin af Kjaradómi hinn 3. júlí 1963{ hafi orðið í landinu al- mennar og verulegar kauphækk- *nir. Er mál þetta því réttilega böfðað fyrir Kjaradómi, eftir að fram höfðu farið samninga- og Báttaumleitanir um kröfu sóknar- aðila, eins og lögin mæla fyrir | tim. Af gögnum málsins má sjá, • að hin almenna hækkun er ekki minni en 15%, og hefur öðru ekki verið haldið fram hér fyrir ðómi. Auk þess, sem áður er getið, skal Kjaradómur við úrlausnir sínar hafa hliðsjón af „kröfum, sem gerðar eru til menntunar, ábyrgðar og sérhæfni starfs- manna,” sbr. 2. tl. 20. gr. laga nr. 55, 1962, og „afkomuhorfum þjóðarbúsins”, sbr. 3. tlT sömu greinar. Dómur Kjaradóms frá 3. júlí 1963 byggist m. a. á tilliti til þessara atriða beggja, eins og þar kemur fram. Hið fyrra er ekki til sjálfstæðrar úrlausnar í máli þessu, en varnaraðili hefur mjög Vikið að hinu síðara í málflutn- ingi sínum hér og byggt sýk'nu- kröfu sína að verulegu leyti á þvi, að kauphækkun til starfs- rtianna ríkisins nú kæmi af stað nýjum víxlhækkunum kaupgjalds. Að þessu eru ekki færð sérstök rök, og verður ekki á það fallizt, að leiðrétting á launum rikis- starfsmanna til samræmis við aðrar stéttir samkvæmt tilgangi 2. mgr. 7. gr. laga nr. 55, 1962, sé þjóðarbúinu háskaleg, sérstak- lega þegar þess er gætt, að sam- kvæmt gögnum, sem dómurinn hefur aflað sér, búa nú þegar margir ríkisstarfsmenn við lak- ara launahlutfall gagnvart öðrum stéttum en þeir gerðu, áður en laun þeirra voru lagfærð með dómi Kjaradóms 3. júlí 1963. Ber því að taka kröfu sóknar- aðiia í máli þessu til greina. Varnaraðili hefur haft uppi í málinu skilyrtar varakröfur, eins og að framan hefur verið rakið. Ákvæði 1. málsl. 7. gr. laga nr. 55, 1962 beinast að endurskoðun á kaupgjaldsákvæðum samnings, þegar almennar breytingar hafa orðið, og verða ekki rétt skilin á annan hátt en þann, að aðeins megi bera fram kröfur til sam- ræmingar við áorðna almenna breytingu. Varakröfur varnarað- ila stefna. allar til lækkunar á launum, ýmist beint tölulega eða vegna breyttra tímamarka. Ekkert liggur fyrir í málinu um, að á almennum vinnumarkaði hafi orðið breyting á þessum atriðum, er sé í hag ríkisstarfsmönnum í hlutfalli við aðrar stéttir eftir gildistöku dóms Kjaradóms frá 3. júlí 1963. Þá verður eigi séð af vísan málsins til Kjaradóms, að um kröfur þessar hafi verið fjall- að I samningaumleitunum eða sáttaumleitunum, svo sem ráð er fyrir gert í síðari málslið 2. mgr. laga nr. 55, 1962. Ber því að vísa varakröfum varnaraðila frá dómi. D ó m s o r ð : Hækka skal föst laun og yfir- vinnukaup ríkisstarfsmanna um 15% frá 1. janúar 1964 að telja. Varakröfum varnaraðila í máli þessu vfsast frá dómi. Eyjólfur Jónsson.” fyrir sjálfvirk kynditæki fyrir Súg- kyndingu aðeins það bezta. jafnan fyrir- liggjandi. Vélsmiðja Björns Magnússonar. Keflavík, sími 1737 og 1175. Faliegur staður... Frh. af 5. síðu. ur sjaldan fé úr sínum eigin vasa til að gera þær umbætur á nátt- úru landsins, sem flestir munu telja eðlilegan bagga á herðum ríkisins. En þegar einstakur mað- ur eða fjölskylda leggja í mikinn kostnað við náttúrufegurð í land- inu, sem verður eigendunum fyrst og fremst úl gagns og gleði, en þar að auki þykir fjölda ferða- manna, innlendra og útlendra, meira koma til landsins fyrir þess ar umbætur, þá er með öllu óhugs- andi, að þjóðfélagið leggi auka- skatt á eigendur þessara staða. Hér ætti heldur að þakka fram- sýni og hugulsemi, sem verður til gagns og gleði öllum, sem á stað- , inn koma. ; Ég vil enda þessar línur með | því að benda ferðamönnum, sem i til Mývatnssveitar koma á, að heim sókn að Höfða í góðu veðri, jafn- gildir ferð í Dimmuborgir, og er þá mikið sagt. Þar að auki vil ég óska, að forráðamenn rafmagns- I og ferðamála sýni eigendum Höfða viðurkenningu fyrir fegrun staðar- ! ins méð því að láta þá um útgjöld til rafmagnsmála sitja við sama borð og aðra bændur í sveitinni. Þegar það kemur fyrir, að efnað fólk leggur fé fram til almennings þarfa, án aðhalds mannfélagsins, þá ber að þakka slíka framkvæmd og þakka í verki. Hér er eftirtekt- arvert fordæmi bæði fyrir þá, sem geta lagt fram fé til að prýða land ið, og forráðamenn þjóðfélagsins, sem þurfa að koma þannig fram við einstaklingana, að í því liggi hvatning fyrir menn að gera jafn vel eða betur. Meðferð hjónanna, sem hafa eignazt og byggt Höfða er þess eðlis að þangað munu marg I ir sækjá og fjö’ga með kynslóðum. Eigendur Höfða hafa göfgað og prýtt staðinn fyrir alla þá, sem þangað koma og verða hugfangnír í fegurð náttúrunnav og verkum mannsins. 2. apríl 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ Stjórnmálaskóli DAGSKRÁ: Fimmtudaginn 9. apríl flytur utanríkisráðherra, Guðm. í Guð- mundsson erindi um utanrfkismál. Að erindi Eimils Jónssonar loknu verður skólanum siitið með hófi í Alþýðu húsi Hafnarfjarðar. öll erindi hefjast klukkan 8>30. Pélagsmálaráðherra og menntamáiaráðherra tala í Alþýðohúsinu Hafnarfirði, en öll önnur erindi verða flutt í Burst, Stórholti 1 Félög ungra jafnaðarmanna I Rvík og Hafnarfirði. Flóttamenn... Framhald af síðu 5. mír sem óaðskiljanlegan hluta indverska ríkisins. *** ENGAR NÝJAR BYRÐAR í innanlandsmálum hefur mikilvægasti atburðurinn síð- ustu mánuðina verið afgreiðsla nýrra fjárlaga, en útgjöld þeirra nema um 20 miÞjörðum rúpía (um 180 milljörðum ísl. króna). í fyrsta skipti frá sjálfs stæðistökunni eru á fjárlögun- um engar nýjar byrðar á hinn mikla meirihluta landsmanna. Þvert á móti var neyzluskattur á vörutegundum eins og sápu og tóbaki lækkaður lítilshátt- ar, svo og tekjuskattur hinna lægst launuðu, og takmörk þeirra tekna, sem lögin um skylduinnistæður á bönkum (þau voru sett eftir árás Kín- verja í hitteðfyrra) bitna á, voru hækkuð í 15 þús. rúpíur. Á hinn bóginn voru skattar hækkaðir á eignum, arfi, gjöf- um og arðij einkum arði við sölu húsa og jarðeigna. Skip- uð hefur verið nefnd til að rannsaka einokun og fjármála- ráðherrann hefur heitið aðgerð um til þess að gera skattainn- heimtu og niðurjöfnun trygg- ari. Þannig að fram , dags- ljósið komi tekjur og . eignir, sem svikið hefur verið undan skatti. Skattasvik þessi hafa eftir ö'lu að dæma orðið mjög alvarleg og víðtæk. *** SLÆM UPPSKERA. En þótt ríkið leggi ekki nýj- ar byrðar á hinn venjulega skattgreiðanda í ár bitnar verð hækkun matvæla hart á hon- um. Landbúnaðarframleiðslan hefur brugðizt á undanfömum árum. 1961-1962 nam aukning in aðeins 1.2% og 1962-J1963 minnkaði hún um 3,3%. Horf- umar fyrir 1963Ó964 eru einn ig slæmar, því að langur vet- ur hefur valdið miklu tjóni á hvéiti-uppskertmni. A1 varlegri hættu á hungursneyð hefur ver ið bægt, frá þar sem Banda- ríkjamenn hafa látið í té mik ið magn af hveiti með góðum kjörum. (Kusum' Nair). i Deildarlæknisstaða Staða deildarlæknis við Fæðingardeild Landspítalans er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningum opin- berra starísnumna. Umsóknir með upplýsingum um ald- ur, námsferil og fyrri störf sendist til stjórnamefndar rik- isspítalanna fyrir 2. maí n.k. Reykjavík, 31. marz 1964. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA. vantar ungl-inga til að bera blaðið t.i) áskrif- enda í bessxim hverfum: ★ Höfðahverfi ★ Tjarnargötu Afgrei^sla Alþýðublaðsm» 1 Sfml 14 900 DUGLEGUR SENDISVEINN OSKAST Vinnutími fyrir hádegi. Þarf að hafa reiðhjól. Alþýðublaðið, sími 14 900. Eiginmaður minn Ólafur Túbals listmálari, Múlakoti í Fljótshlíð, sem andaðist þann 27. marz, verður jarðsunginn frá Hlíðarenda kirkju laugardaginn 4. apríl kl. 2. Jarðsett verður í heimagrafreit. Bílferð verður frá B.S.Í. kl. 11 f. b. Lára Eyjólfsdóttir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.