Alþýðublaðið - 14.05.1964, Qupperneq 3
%VWWWMWWMWWWWWWWWWW»WWWWMW
Humarverðið ákveðið
ALÞÝÐUBL.AÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynn-
ing- frá Verðtagsráði sjávarútvegsins:
Á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins, er stóð fram eftir s.l.
nóttu varð samkomulag um eftirtalin lágmarksverð á humar
er gildir fyrir humarvertíð 1964.
1. flokkur (ferskur og heill, sem gefur 30 gr. hala
og yfir) pr. kg. kr. 12,70
1. flokkur, slitinn pr. kg. kr. 51.00
2. flokkur (smærri, þó ekki undir 7 cm. hala og
og brotinn stór) pr. kg. kr. 4,25
2. flokkur, slitinn pr. kg. kr. 22.00
Sé humarinn flokkaður af kaupendum, þá lækkar hver
flokkur um kr. 0,30 hvert kr.
Verðflokkun samkvæmt framanrituðu byggist á gæðaflokk
un ferskfiskeftirlitsins.
Verðið er miðað við að seljendur afhendi humarinn á
flutningstæki við veiðiskipshlið.
>WMMMMMMMM»MMMMMMMMMMMM»MMMM%MMMMV
Kína vill nýja
Laos - ráðstefnu
SIÚLKA HVERFUR
í KEFLAVÍK
Eeykjavík 13. maí— KG
LÖGREGLAN í Keflavík hefur
auglýst eftir þýzkri stúlku, sem
hvarf í Keflavík síðastliðinn föstu
dag og ekkert hefúr spurst til síð
an. Stúlka þessi Freya Burmeist
er vann á sjúkrahúsinu í Kefla-
vík og sást hún síðast á sjúkrahús |
inu um klukkan 11 á föstudags- j
morgun. Hafði hún ætlað að fara
með kunningjafólki sínu til Hvera
gerðis um hádegið en kom ekki
fram þegar leggja átti af stað.
Freya Burmeister er 33 ára
gömul og talar íslenzku með á-
berandi erlendum hreim. Hún er
um 162 cm. á hæð, feitlagin og
dökkhærð. Þegar hún sást síðast
var hún í brúnu pilsi, Ijósbrún-
um hálfsíðum sportjakka, brún
um gönguskóm og með leðurtösku.
Peking, 13. maí, (NTB-Reiter).
KÍNA stakk upp á því í dag að
Genfar-ráðs efnan um Laos yrði
kölluð saman að nýju ef ástandið
WMMMWMMMWMMMMMW
HLUTKESTI UM
VANTRAUST
Á ANDERSON
Stokkhólmi 13. maí
(NTB)
ALLAR líkur eru fyrir því, að
atkvæðagreiðslan í s jórnarskrár
nefnd sænska Þjóðþingsins, sem
á að láta í ljósi hvort ástæða- er
til vantrausts á meðferð Sven And
erson landvarnarráðherra á Wenn
erström-málinu, mun að öllum lík
indum verða á þann veg, að at-
kvæði verða hnífjöfn í nefndinni.
í henni eiga sæti 10 fulLrúar jafn
aðarmanna og 10 fulltrúar borg-
aralegu flokkanna.
í Laos batnaði ekki fljótlega. Að
þw; er fréttastöfan Nýja KjSna
skýrir frá var tillaga þessi Iögð
fram af utanríkisráðherra lands-
ins í sérstökum boðskap er hann
sendi ríkiss jórnum Bretlands og
Sovétríkjanna. í bréfinu til ríkis-
stjórnanna eru Bandaríkin ásökuð
um að bera meginábyrgð á ástand
inu í Laos.
Aðalmálgagn kínversku stjórnar
innar, Alþýðudagblaðið, skrifar í
dag, að ástandið í Laos sé sannar-
lega líkast púðurtunnu. Krefst
blaðið þess, að þegar í stað verði
gerðar ráðstafanir til þess að
hindra að borgarastyrjöld brjót-
ist út í landinu. í bréfinu er þess
einnig krafist að sú glæpastarf-
semi er Bandarikin og hægrimenn
í Laos viðhafi. verði þegar í stað
stöðvuð. Krefst kínverski utanrík-
isráðherrann þess einnig að hin
ráðandi klíka í Vientiane verði þeg
ar í stað vikið frá vöidum og síð-
an verði gert í því að fá í gagn
nýja samninga milli hinna þriggja
stjórnmálasamtaka í landinu.
Skulu þær miða að því að gera
aðseturssiað konungs hlutlausan
svo og höfuðborgina.
SAIGON: Robért Mc Namara varn
armálaráðherra Bandarikjanna
sagði í dag að þau myndu styrkja
varnir í Suður-Vietnam með 75
sprengjuþotum. Verður það gert
á næstunni.
INNBROTSTILRAUN
í HAFNARFIRÐI
Reykjavík 13. maí — KG
LÖGREGLAN í Hafnarfirði stóð
pilt að verki, þar sem hann var
að brjótast inn í Bílaverkstæði
Hafnarfjarðar síðastliðna nó.tt.
Þegar lögreglan kom að piltinum,
var liann búinn að taka hlera frá
glugga og var að búa sig undir að
fara inn.
Var pilturinn færður á lögreglu
stöðina til yfirheyrzlu og kom
þá í Ijós að tveir piltar aðrir voru
viðriðnir innbrotið og voru þeir
einnig handteknir.
Einn pilta þessara var undir 16
ára aldri en hinir eitthvað eldri.
WMMMMMM%MMWMMMMMMMWMWMM%MMMMMMMMMMMMMMM»MMMMMMMW
Spennandi aukakosningar
háðar í Bretlandi í dag
Lundúnum, 13. maí
(NTB - Reuter)
BREZKi íhaldsflokkurinn mun
á morgun, fimmtudag, gera til-
raun til að verjast í aukakosn-
ingum er fram fara til brezka
þingsins í fjóruni kjördæmum.
Mun flokkurinn reyna að koma
í veg fyrir, að þessar kosningar
sýni áframhaldandi hagstæða
þróun fyrir Verkamannaflokk-
inn. Að því er síðustu kjósenda
kannanir sýna hefur íhaldsflokk
urinn nú 9-17% minna at-
kvæðamagn en Verkamanna-
flokkurinn.
Aukakosningar þessar sigla
í kjölfar bæjarstjórnarkosning
anna, er haldnar voru í síðustu
viku í Englandi og í Wales.
Sýndu þær stóraukið fylgi
Verkamannaflokksins. Hins
vcgar er kosningaþátttaka
venjulega meiri við aukakosn-
ingar og kosið um önnur mál
en við sveitastjórnarkosning-
arnar. Þvi er fylgzt með þess-
uin kosningum af feiknar mikl
um áhuga með tilliti til vænt-
anlegra þingkosninga.
í kjördæminu Rutherglen,
skammt frá Glasgow, var
meirihluti íhaldsins við síðustu
þingkosningar 1522 atkvæði.
Býst Verkamannaflokkurinn
fastlega við að vinna þingsæt-
ið. Aðeins í einu þeirra kjör-
dæma, sem nú verður kosið í,
getur íhaldsflokkurinn reikn-
að með öruggum sigri. Hafði
hann þar 12792 atkvæða meiri
hluta við síðustu kosningar.
Enn er rætt um hafmeyjarmálið í dönskum blöðum og ekki hefur
tekizt að hafa upp á þeim, sem ódæðið framdi, þrátt fyrir víðtæka leit.
Unnið hefur verið að því að undanförnu að gera við hina frægu styttu,
og á myndinni hér að ofan er verið að máta nýja höfuðið við búkinn. Bú
izt er við að styttan verði orðin heil aftur, áður en ferðamenn sumars-
ins taka að streyma tU Danmerkur.
Rvík. 13. apríl HG. LR.
í TILEFNI 35 ára afmælis Ung
mennafélags Keflavíkur var háður
knattspyrnukappleikur á grasvell-
inum í Njarðvík í kvöld. Þar átt-
ust við meistaraflokkslið U.M.F.K.
og KR., og fóru leikar þannig að
U.M.F.K bar sigurorð af hinum
fræknu KR-ingum og skor
aði 3 mörk gegn engu. Öll mörk-
in voru skoruð í seinni hálfleik
og öll voru þau skoruð með skalla,
sem sjaldgæft verður að teljast.
Sjúkraþjálfari
(fysioterapeut)
óskast að Borgarspítalanum í Heilsuverndarstöðinni frá 1.
ágúst n.k. Umsóknir sendist yfirlækninum fyrir
1. júní n.k.
Sjúkrahúsnefnd Reykja\ikur.
Aðvörun
um stödvun atvinnu/ekstrar
vegna vanskiia á söluskatti.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimild I
lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnurekstur þeirra
fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda söluskatt L
ársfjórðungs 1964, svo og söluskatt eldri ára, stöðvaður,
þar til þau hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöld-
um ásamt áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði.\ Þeir, sem
vilja komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar
til tollstjoraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 13. maí 1964.
Sigurjón Sigurðsson.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm%mmmmwwmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. maí 1964 3.