Alþýðublaðið - 14.05.1964, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 14.05.1964, Blaðsíða 10
Ódýrt - 100% Nylon úlpur - Ódýrt i í ferðalögilt Og sveitina. Á herra og dömur kr. 770.00. Á imglinga kr. 534.00 og kr 640.00. VERZLUNIN DANÍÉLm Laugav. 66, sími 11616. Samtal við Hilmar Framhald úr opnu. — Hvert er aðaltungumálið innan veggja SÞ? — Enska er mest töluð, en það má segja, að aðalmálin séu fimm, eða enska, rússneska, kín- verska, spænska og franska. — Ekki hafið þið búið í húsi SÞ? — Nei, okkur var útvegað húsnæði í borginni. SÞ hafa sér- staka skrifstofu i sambandi við útvegun á húsnæði yfir starfs- fólk, en skrifstofan sér um margt annað, svo sem bílasölu, svo að eitthvað sé nefnt. Þessi skrif- stofa sér einnig um að starfs- menn eigi þess kost að skoða merkustú staði, fara í leikhús o. fl. Það er algengt að fyrir- tæki gefi SÞ miða á sýningar og þá er þeim útbýtt meðal starfsmanna. Innan veggja SÞ er starfrækt sjónvarp, og útvarpað er á sér- stökum tíma. Kvikmyndaver er í húsinu og' sér það um fræðslu- myndir, töku og sýningar, með góðum árangri. — Var nokkur rígur milli full- trúa andstæðra þjóða í sölura SÞ ? ' — Eg varð aldrei var við ó- vild milli fulltrúanna, þó svo að ríki þeirra ættu í deilum. Þeir ræddu saman í góðum tón og vírtist yfirleitt létt yfir samtöl- utn þeirra, enda eru þeir starfs- menn alþjóðlegrar stofunar sem hefur að aðalmarkmiði að leysa dfeilur á friðsamlegan hátt. Eg álít að SÞ eigi framtíðina fyrir sér og finnst vel hafa tekizt um lausn þeirra vandamála sem þær ‘ hafa átt við að stríða. Eins og allir vita búa þær við þröngan hag og verða að taka tillit til al- h’eims í gerðum sínum og verða að rata hinn gullna meðalveg í flestum málum. Eg tel mjög æskllegt, að sem flestar þjóðir gerist aðilar að þessari stofnun Og séu þátttakendur í að leysa það erfiða vandamál mannkyns- ins að halda friðinn. Þegar rætt var um aðild Kína að sanrtökun- nfti, fannst mér allir vera sam- • mála um, að fyrr eða seinna bæmi að því að það fengi aðild ^ áð Sameinuðu Þjóðunum. ‘i ‘<t _________ VteU'- Náin samskipfi ■; . (Framhald af 7. siðu). avíu og sitja þeir yfirleitt stjórn- arfundi sem þar eru haldnir. Þess ir fulltrúar okkar hafa undanfarn- ar helgar setið þing áðurnefndra áeskulýðssambanda jafnaðar- manna í Osló (Sverrir Jónsson) og • Stokkhólmi (Ingv. Pálss.), og um næstu helgi mun fulltrúi okk ar-í Höfn (Erling G. Jónasson) sitja þing DSU. Nú um hríð hef- jir verið ráðgert.. gð . stjórnar- lundur í Norðurja.ndaráðinu yrði liaídinn hér á íslandi og.yar meira að segja ákveðið að það yrði nú í maí-júni. Vegna kosningannia og þing- anna varð þó að fresta fundinum að sinni en vonir standa til að hann verði síðar í sumar. Ég verð að segja það, sagði Steinar að lokum, að samskipti okkar við bræðrasamtökin erlendis hafa far ið mjög vaxandi undanfarið. Er það sannarlega vel. Slíkt sam- band er okkur mikill siðferðis- legur styrkur og styrkir okkur þar með í baráttu okkar fyrir upp byggingu þjóðfélagskerfis sósíal- ismans á íslandi. Því er það von mín — og ég veit að ég mæli þar fyrir munn stjórnar SUJ — að samskipti eigi eftir að stóraukast á kðmandi tímum. Afangi (Framhald af 7. síðu). Hjört Pálsson, blaðamann, .og stfefnusþrár Alþjóðasambands ungra jafnaðarmanna, sem ber yf irskriftina „Framtíð heimsins er okkar ábyrgð. Síðasta hefti Áfanga var mjög vel tekið og hefur áskrifendum fjölgað talsvert að undanförnu. Ekki er að efa að þetta nýja hefti mun enn auka útbreiðslu og vin- sældir ritsins. Aden (Framhald al S. síðu). eigin fóium sem sjálfstæð ríki. En einnig má segja, að þessi hjálp komi þeim sjálfum í góð ar þarfir, Bretar hafa áhuga á tin- og gúmauðæfum Malays íu. Og þetta merkir, að þeir hafa áhuga á ró og jafnvægi á þessum slóðum. • fcJargir munu segja, að slík * * ir efnahagslegir hagsmun ir séu enn meira áberandi í sambandi við herstöðina ,í Aden. Því að í Suður-Arabíu finnst olía, fyrst og fremst í Kuwait. Herstöðin í Aden á einnig að vernda olíuhags- munina. En einnig neita margir því, að nokkurt skynsamlegt sam- band sé á . milli olíunnar og herstöðvarinnar. Bretar hafa áhuga á að kaupa oliuna, en Arabar hafa^ jafnmikinn áhuga á að selja hana. Getur þessi verzlun ekki gengið sinn eðli- lega gang án þess að brezkar hersveitir séu á næstu grösum? Að vísu eru það hagsmunir Breta — og síður en svo þeirra eingöngu — að engin truflun verði á olíuframleiðslunni vegna ólgu, byltingar og styrj aldar. Þeir geta sem sé gegnt hlutverki löggæzlumanns — ef þeir aðeins gætu gegnt sliku starfi. En ekkí er hægt að ætl- ast til þess, að Bretar eigi að hafa stjórn á arabískum furst- um og sheikum, sem keppa sín á milli. Og alvarlegri hlið málsins er sú, að þeir geta ekki komið fram sem verndarar gamalla sheika gegn nýjum þjóðfélagslegum öflum. Suður-arabíska sambands- ríkið er samsæypa 14 sheika- ríkja. Bretar telja sig skuld- bundna þessum sheikum, sem þeir hafa haft samvinnu við, en þeir hafa þó rekið sig á það áður, að hættulegt er að binda sig of fast við fulltrúa tímaþils í sögu Arabaheims- ins, sem nú er að ijúka. I oks má fullyrða, að her- stöðvarnar — að minnsta kosti þær sem eru í Mið- austurlöndum — eru engin vörn gegn árásum ríkja utan sjálfs svæðisins. Til þess eru þær alltof veikar. Það er í sam skiptum Arabaríkjanna sem herstöðvarnar hafa þýðingu, og í þessu sambandi má segja, að þær stuðli fremur að því að valda ólgu en að koma á tryggara ástandi. Þar með verða þær einnig byrði í sam skiptum Bretlands við Araba löndin. Engir brezkir hagsmunir krefjast þess, að haldið verði fast í þessar herstöðvar, en vissar skuldb'ndingar eru teng dar heimsveldisfortíðinni, sera Bretar geta elcki slitið sig sam stundis frá. Þar við bætast vissir hagsmunir, sem ekki hafa eins mikla þýðingu, og auk þess talsvert margar hefð bundnar hugmyndir. En hin þunga byrði margra htjmaðarlegra skuldbindinga er f þann veginn að knýja fram skynsamara mat á því her- stöðvaneti, sem komið var á til að vernda siglingaleiðina til Indlands. (Arbeiderbladet: Jakob Sverdrup). Samkivæmt 15. grein lögreglusamþykktar Reykjavíkur, má á almannafæri eigi leggja eða setja neitt það, er táknar umferðina.v ; Eigendur slíkra muna, svo sem skúra, bygg ingarefnis, umbúða, búabluta o.þ.h., mega búast við, að þeir verði fjarlægðir á kostnað og ábyrgð eigenda án frekari viðvörunar. Lögreglustjórinn í Reykjavík, NAUÐUNGARUPPBOÐ annað og síðasta, á hluta í húseigninni nr. 8 við Berg- staðastræti, hér í borg, þingl. eign Steins Jóhannessonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 20. maí 1964, kl. síðdegis. Borgarfógetaembættið í Keykjavík. Okkar kæri vinur NÝKO MIN Júlíus Þorsteinsson Bergstaðastræti 41, kjólaefni, einlit, köflótt og rósótt. sem lézt í sjúkrahúsinu Sólheimum þann 10. þ.m. verður jarðsung- inn trá Fossvogskirkju föstudaginn 15. þ,m. kl. 10,30. — Kirkjuat- höfninni verður útvarpað. litið í gluggana. Vandamenn. Verzlunin SNÓT Vesturgötu 17. SÆNGUR Endumýjum gömlu sængurnar Seljum dún- og fiðurheld ver NÝJA FIBURHREINSUNIN Hverfisgötu 57A. Sími 1673B Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, teiigdamóður, fósturmóður og ömmu ; " Sigríðar J. Bjarnadóttur. Urðarstíg 8a. Élías Valgeirsson Helga Valdimarsdóttir Gunnar Valgeirsson Olga Bjarnadóttir Valgeir J. Emilsson og barnabörn. Faðir minn Magnús G. Pétursson sjómaður frá Flateyri, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu k). 3, föstúdaginn 15. maí. I Fyrir hönd systkinanna Pétur J. Magnússou. 1,0 14. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.