Alþýðublaðið - 14.05.1964, Síða 7
T
ÚTGEFANDI
SAMBAND
UNGRA
JAFNAÐARMANNA
I>ingful!trúar á 7. heimsbingi ungra jafnaffarmanna í Qsló.
Nýtt hefti
Áfanga
KOMIÐ ER ÚT nýtt hefti af
ÁFANGA, hinu myndarlega tíma-
riti Sambands ungra jafnaðar-
manna. Er það annað hefti þessa
árgangs, efnisríkt og sérlega vand
að og nýtízkulegt að úiliti og frá
gangi.
Heftið hefst á grein um atvinnu
lýðræði, sem er þýdd úr ,,Fön-
stret“, tímariti Menningar og
fraeðslusambands' alþýðu í Sví-
þjóð. Ungur hagfræðingur, Pétur
Eiríksson, skrifar grein, sem
hann nefnir Verðbölga og vextir.
Þá er þátturinn Guðað á glugga,
sem ritstjórinn, Sigurður Guð-
mundsson skrifar. Er þar fjallað
um John F. Kennedy, Hallgríms
i kirkju og ráðhúsið og loks skatt
svikin. Um Ödipus Rex nefnist
grein eftir Robert Craft og er það
kafli úr samtalsbók við hið fæga
bandarísk-rússneska tónskáld Ig-
or Siravinski, myndskreytt af
franska málaranum Jean Cocteau.
Hinn sigferðisl. grundvöllur jafn
aðarstefnunnar nefnist athyglis-
verð grein eftir Erich Fromm.
Gunnar Vagnsson viðskipafræð-
ingur skrifar grein um skatta og
útsvör, mál, sem jafnan er- ofar-
lega á baugi. Þá ber loks að geta
ljóðmælisins ,,Á heiðihni" eftir
Framhald á síðú 10.
Æskulýðssíðan hitti nýlega að
máli Karl Steinar Guðnason sem
gegnt hefur stöðu utanríkisritara
í núverandi stjórn SUJ. Er hann
sá fyrsú, er skipað hefur þá stöðu.
Fréttaritarinn spurði Karl eftir
samskiptum SUJ við önnur æslui-
lýðssamtök jafnaðarmanna í heim
inum og voru svör hans á þessa
leið:
„Samband ungra jafnaðarmanna
gerðist aðili að Alþjóðasambandi
ungra jafnaðarmanna (Internati-
onal Union of Socialist Youth) í
ársbyrjun 1954. Um svipað Ieyti
sat fulltrúi SUJ í fyrsta sinn funö
í hinni þáverandi norrænu sam-
starfsnefnd ungra jafnaðarmanna.
Var sá fundur haldinn í Kaup-
mannahöfn og má til gamans
geta þess, að meðal þeirra er sátu
fundinn, voru Per Hækkerup, nú
verandi utanríkisráðherra Dan-
merkur en hann var þá fram-
kvæmdastjóri Alþjóðasambands
ungra jafn^ðarm^ina er hafði
skrifstofur sínar í Höfn. Aðrir, er
sátu þann fund, voru t.d. Ivar Mat
hiesen, þáverandi formaður Sam-
bands ungra jafnaðarmanna í Nor'
egi (AUF), en hann er nú fram-
kvæmdastjóri Alþýðuflqkksing í
Osló og varaborgarstjóri þar í
borg. Af okkar hálfu sat fund-
inn Sigurður Guðmundsson, nú-
verandi formaður SUJ. IUSY-
þingið í Höfn, er SUJ var tekið
inn, sat fyrir okkur Helgi G.
Þórðarson verkfræðingur, núver-
andi forstjóri Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar.
Frá því þetta var höfum við
jafnan reynt að hafa sem bezt og
nánust samskipti við erlend æsku
lýðssamtök jafnaðarmanna en fé
leysi og tímaskortur reyndist okk
ur þó verulegur fjötur um fót. Þó
gerðum við mikla bragarbót í þess
um efnum fyrir tveim árum síð-
an. Er óhætt að segja að sam-
skipti okkar- við félaga okkar í
i
Karl Steinar.
Alþjóðasambandinu og á Norð-
urlöndum séu nú með hinu á-
kjósan egasta móti.
j Alþjóðasambandið hefur sínar
aðalstöðvar í Vínarborg og núver-
andi framkvæmdastjóri þess er
svíinn Sture Ericsson. Er þar rek-
in umfangsmikil starfsemi undir
forystu hans og annarra léiðtoga
I sambandsins en þeir eru m. a.
forsetinn Kyi Nyunt frá Burma
og varaforsetinn Horst Seefeld,
formaður æskulýðssambands
þýzkra jafnaðarmanna. SUJ hef-
ur verið svo lánsamt að geta sent
fulltrúa á tvö síðustu heimsþing
Alþjóðasambandsins. Næstsíðasta
þing, er háð var í Vín fyrir fjór-
um árum síðan, sat Sigurður Guð
mundsson, núverandi formaður
SUJ, en síðasta þing, er háð var
í fyrrasumar í Osló, sátum við
Hörður Zóphaníasson, varafor-
maður SUJ.
Sambönd ungra jafnaðarmanna
á Norðurlöndum mynda það sem
við köllum Norðurlandaráð ungra
jafnaðarmanna (Nordens social-
demokratiske Ungdom). í því eru
Arbeidernes Ungdomsfylking í
Noregi, Sveriges Socialdemokrat
iske Ungdomsförbund í Sví-
þjóð, Danmarks socialdemokrat-
iske Ungdom, Æskulýðssamband
jafnaðarmanna í Fínnlandi og
Samband imgra jafnaðarmanna á
íslandi. Stofnþing ráðsins var fyr
ir tveim árum síðan í Malmö og
átti SUJ þrjá fulltrúa þar. í stjórn
ráðsins eru ennfremur tveir full-
trúar SUJ og eru það nú við
formaður SUJ. Meðal annarra
stjórnarmanna eru Reiulf Steen,
fyrrverandi formaður AUF í Nor-
egi, Ingvar Carlsson, formaður
SUJ í Sviþjóð, Ola Teigen for-
maður SUJ í Uoregi, Einar Chri-
ansen formaður SUJ í Danmörku
o. fl. Formaður er Ingvar Carls-
son.
Varamenn okkar eru fulltrú-
ar SUJ í höfuðborgum Skandin-
Framhald á síðu 10.
Einn er sá þyrnir, sem mjög
hefur verið í augum íhalds-
manna um mörg undanfarin
ár en það er starfsemi Ferða-
skrifstofu ríkisins. Árum sam
an liafa þeir haldið uppi lát-
lausu níði og rógi um starf-
semi hennar og í því starfi
hafa framsóknarmenn verið
þeim þægir og liprir vikapiltar.
Megininntakið í öllum þess-
um andróðri hefur vcrið sú
makalausa óskammfeilni Ferða
skrifst., að hún, „sem fær fé
úr vasa, skattborgaranna“,
hefur leyft sér að „álíta það
hlutverk sitt að keppa við
einkafyrirtækin". Frjálsri sam
keppni af því tagi segjast einka
rekstursmennirnir vera andvíg
ir, meginhlutverk Ferðaskrif-
stofunnar eigi að vera það'
(að bera kostnaðinn við) að
laða til landsins erlenda ferða
menn, síðan eigi einkafyrirtæk
in að taka við og hirða ágóðann
af ferðum þeirra um landið, til
þcss og frá. Ferðaskrifstofu
ríkisins segja þeir vera „algjört
einsdæmi á Vesturlöndum",
aðra eins sé víst „hvergi að
finna, fyrr en komið er alla
leið austur til Kína“. í fram-
haldi af ölllu þessu hefur svo
jafnan verið gert sem allra
minnst úr hinu daglega starfi
Ferðaskrifstofunnar, hún köll
uð „skrifstofubákn ríkisvalds
iþs“, lítið viljandi og lítils
megnandi.
Því miður hefur rógnum og
níðinu um Ferðaskrifstofuna
lítt eða ekki verið mætt á op-
inberum vettvangi, hvorki af
henni sjálfri né vinum henn-
ar. Því er það þakkarvert er dr.
Gunnlaugur Þórðarson tók ný-
Iega upp hanzkann fyrir hana í
Frjálsri Verzlun en mestöllu
hefti þess tímarits, þar á und
an, hafði verið varið til að
rakka hana niður. Enn nýlegar
hefur það svo gerzt að nýráð-
jnn framkvæmdastjóri Flug-
félags íslands, Birgir Þorgils-
son, segir í blaðaviðtali (Mbl.
'3. maí): „Ferðaskrifstofa ríkis-
ins vinnur að mörgu leyti gott'
starf og þar er unnið af ein-
lægni. En skrifstofan hefur
mjög þröngan fjárhag og' þar
með takmarkað starfssvið".
Kveðúr hér við annan tón en
venjulega heyrist, enda taiað
af sanngirni, þekkingu og á-
byrgðartilfinningu. Sannleik-
urinn er líka sá, að Ferðaskrif-
stofan hefur unnið hið merk-
asta og þarfasta brautryðjenda
starf. Ekki er heldur annað vit
að en almenn starfsemi henn-
ar hafi ætíð verið fullkomlega
sambærileg við starfsemi ann
arra ferðaskrifstofa. Er áreið-
anlegt, að ef á heildina er lit-
ið, hafa ekki aðrir gert betur
þótt hærra hafi látið. Og rétt
eins og Ferðaskrifstofan hef-
ur á liðnum árum sinnt vel
verkefnum sínum, þannig á hún
vafalaust eftir að sinna vel
auknum og enn fjölbreyttari
verkefnum á komandi árum.
S.-G.
Allar tilvitnanir í þessari
grein eru sóttar í viðtal við
Ingólf Örn Blöndal, forstjóra
ferðaskrifstofunnar, Lönd og
leiðir og birtist á Heiindallar-
síðu Vísis 10. apríl sl.
niimniininiiiiiiiniiuiiiiniiiiiHiiiiiiiUiiiaiiHiiiiiiniinHiniiiHiiiiigiiiiuininíiiiiiiiiiiiiiiniiniiiiiiiniHiniinniiiniBiiiiifliiiiiiiuinnmmig'iiiii’iiiiiiií'iaiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiíin.'i.'iiii'imiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiníiimniiíimiiiBiiimiffiiiiiiiii’iiimimniiffliiiiminiiniiinnimiiminBi
NÁIN SAMSKIPTI VIÐ I
ERLEND BRÆÐRASAMIÖK!
ALÞÝÐUBLAÐJÐ — 14. maí 1964.. f