Alþýðublaðið - 14.05.1964, Side 8
i!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinii; iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiitiitiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiuiiiiii ti.iiiiiifiiiiiiiixiiiiiittiiM iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.ijfii'i 11111111111111111111111111111111111111 n'>'
r^MIIIMIMMMMIMMIMMMMMMII .................................................................................................................................................................................................. 1(111
Spjallað við Hilmar Þorbjörnsson
Það verður æ tíðara að íólk í
hinum ýmsu starfsgreinum þjóð-
félagsins, fari utan til að kynn-
ast starfsaðferðum og starfs-
bræðrum sínum þar.
Við fréttum af lögregluþjóni,
sem nýkominn er heim frá því
að kynna sér starfsaðferðir
gæzlumanna hjá aðalstöðvum SÞ
í New York. Þessi lögreglumaður
er hinn landskunni íþróttamaður
Hilmar Þorbjörnsson.
í tilefni heimkomu Hilmars
áttum vijð tal við hann og báðum
hann segja okkur undan og ofan
af veru sinni á fyrmefndum
staá. Hilmar tók erindi okkar vel
og fer samtalið hér á eftir:
— Hver voru tildrög þess að
þú réðst til starfa hjá SÞ, Hil-
mar?
— Það mun hafa verið Thor
Thors, aðalfulltrúi íslands hjá S
Þ, sem hafði samband við lög-
reelustiórann í Reykiavík vegna
ráðningar á gæzlumönnum hjá
SÞ. Þetta er í þriðja sinn sem
íslenzkir lögregluþiónar eru
ráðnir til starfa hjá SÞ. í þetta
sinn vorum við sendir þrír utan,
þeir Axel Kvaran 'og Halldór
Einarsson, auk mín. Eg kom fyrst
ur heirn, af sérstökum ástæðum.
Halidór er um það bil að koma,
en Axel mun dvelja lendur úti,
en hann er þar með fjölskyldu
sína. Við fórum utan í lok ág-
úst í fyrra.
— í hverju eru störf löggæzlu-
manna hjá SÞ fólgin?
— Þau eru margs konar. Til
dæmis er okkur falið að vernda
bvpgingu SÞ, starfsfólk og full-
triia frá hinum mörgu þjóðum,
sem aðild eiga að SÞ. Þetta er
vernd fyrir alls konar fólki sem
heimsækir aðalstöðvarnar. Fund-
ir eru opnir almenningi, nema
fundir í öryggisráðinu, beir eru
haldnir fyrir luktum dyrum,
þegar ástæða þykir til.
— Hvað eru gæzlumerin marg-
ir?
— Um það bil 80, en auk þess
er sérstök rannsóknarlögregla,
sem er sérþjálfuð í að þekkja úr
fiöldanum, uppivöðsluseggi og
fleira þess háttar fólks. SÞ hef-
ur fastar reglur í löggæzlumál-
um. Til dæmis er þeim, sem eitt-
hvað gex-ir af sér innan umráða-
svæðis SÞ, vísað burtu, en ekki
fengnir í hendur New York lög-
reglunni, nema um alvarlegt brot
sé að ræða. Þannig er umráða-
svæði SÞ í New York, nokkurs
konar ríki í ríkinu. Aginn meðal
gæzlumanna er mjög strangur,
en vinnutíminn skiptist í nætur-
vaktir, dagvaktir og kvöldvaktir,
svipað og hér heima. Gæzlu-
menn eru frá flestum aðildar-
ríkjunum.
— Er mikið um ólæti í þing-
sölum?
— Það kemur fyrir, og þá sér-
staklega þegar verið er að ræða
liitamálin, svo sem Kýpurmálið
á dögunum og svo mun einnig
liafa verið þegar Kúbumálið var
á dagskrá, en að sjálfsögðu
skiptast menn í tvo hópa með og
á móti. Annars er alltaf eitthvað
að ske innan veggja SÞ, eins og
eðlilegt verður að teljast, þar
sem fleiri þúsund manns eru sam
an komin.
— Þið hafið að sjálfsögðu far-
ið á námskeið?
— Já, það hófst í janúar sl.
Þangað komu fyrirlesarar og sér-
fræðingar frá Washington FBI
og New York lögreglunni. New
York lögreglan hefur mjög full-
kominn skóla, eða akademíu. Frá
henni fengum við kennara sem
kenndu okkur margar greinar.
Þar var okkur meðal annars
kennt hvernig sjá mætti út vasa-
þjófa og var það sett á svið
fyrir okkur. Ennfremur kom til
okkar sérfræðingur í tíma-
sprengjum, sem kenndi okkur
hvemig ætti að meðhöndla þær
og stöðva. Ennfremur kenndu
læknar og sálfræðingar okkur
hvernig við ættum að umgang
ast andlega sjúkt fólk.
— Var mikið um að slíkt fólk
reyndi inngöngu í hús SÞ?
— Það kom fyrir. Einu sinni
kom til dæmis maður, sem bað
fyrir pakka til U Thants. Rann-
sóknarlögreglunni þótti maður-
inn grunsamlegur og var sam-
stundis haft samband við yfir-
mann lögreglunnar. Síðan var
haft samband við New York lög-
regluna og séi'fræðingur frá
henni athugaði pakkann. Hér
reyndist um fullkomnustu gerð
af timaspi'engju að ræða og var
hún að sjálfsögðu gerð óvirk.
Innan fjögurra klukkustunda
var New York lögreglan búin
að finna tilræðismanninn — og
reyndist hér um geðbilaðan
mann að ræða. Hann var sér-
fi-æðingur í gerð tímasprengja
á stríðsárunum, en bilaðist á
geðsmunum.
— Þú hefur séð margt frægra
manna þennan tíma?
— Að sjálfsögðu. Mér er
minnisstætt þegar Kennedy kom
til stöðva SÞ og ávarpaði alls-
herjarþingið, en það var í síð-
asta sinn sem hánn gerði það.
Þá var sérstakur lífvörður sett-
ur til að fylgja forsetanum. —
Fimmtán menn fylgdu honum
eftir um bygginguna. Allar hugs-
anlegar varúðarráðstafanir voru
gerðar, eins og venja er, undir
slíkum kringum stæðum. Lif-
verðinum var illa við hvað
Kennedy skaut sér oft úr fyrir
hina fyrii-fram ákveðnu leið, en
hann var þá að heilsa upp á hina
og þessa fulltrúa sem sæti eiga
á þingi SÞ. Þegar heimsóknin
átti sér stað, gi'unaði mig ekki
að þessi maður ætti svo skammt
eftir lifað.
— Svo kom fréttin um að for-
setinn hefði verið myrtur?
— Eg var á vakt, þegar það
var tilkynnt. Fréttin kom eins
og ' reiðarslag. Þingheim setti
hljóðan eftir að tilkynningin
hafði verið lesin, og svo var
þögnin djúp, að það hefði mátt
heyra saumnál detta. Fáni SÞ
var síðan dreginn í hálfa stöng
og öllum fundum frestað. í
marga daga var það svo, að fólk
trúði því varla, sem gerzt hafði,
þó svo að það stæði skýrum stöf-
um í öllum blöðum. Fólk vildi
ákaflega lítið ræða um þetta mál.
Á útfarardaginn var enginn
fundur haldinn, þá blakti ein-
ungis einn fáni í hálfa stöng
á húsi SÞ, en það var fáni sam-
takanna.
— Og fleiri frægir menn hafa
eflaust komið í heimsókn þann
tíma, sem þú varst þarna?
— Já, til dæmis kom Titó
Júgóslavíuforseti og Johnson
Bandaríkjaforseti. Þegar John-
son kom, voru gerðar sérstakar
ráðstafanir og var mér tjáð að
öryggisráðstafanir hefðu sjaldan
eða aldrei verið meiri, enda var
þá skammt um liðið frá morði
Kennedys og óhugur í mönnum.
Allt var fullt af vopnuðum vörð-
um, utan húss og innan. Forset-
inn kom í lokuðum bíl, en venj-
an er að svo tignir gestir komi
í opnum bílum. Þyrlur sveim-
uðu um loftið og vopnum búnir
verðir voru staðsettir á húsþök-
um í kring.
— Það var eins gott að Krúst-
jov var ekki á ferðinni?
— Það má segja, að gestir
þeir, sem komu til að skoða að-
alstöðvarnar, spyrðu flestir hvar
borðið væri, sem hann hefði bar-
ið skónum í, um árið. •
— Og þér líkaði vel við þetta
starf?
— Þetta var mjög Íærdómsríkt
tímabil og ég tel mig hafa liaft
mikið gagn af veru minni þarna.
Skipulagning löggæzlumála er
mjög góð. Við íslendingarnir
nutum velvildar allra og þeir
lögðu sérstaka áherzlu á að
fræða okkur um sem flest.
— Þú hefur kynnzt starfsað-
ferðum New York lögreglunnar?
— Að nokkru leyti. Þeir hafa
mjög fullkominn skóla. Þeir
hafa sérstakt inntökupróf á aka-
demíuna og í því prófi geta þeir
vitnað úr. Það hafa verið vand-
ræði með launamálin hjá þeim,
ekki síður en okkur, en nú hafa
þeir nýlega fengið bót á sínum
málum og fannst mér þeir vera
allánægðir með kjör sín. Það er
ekki eimmgís að launin hafi
hækkað, heMur nióta þeir ým-
issa hlunninda. Það má segja, að
skólafyrirkomulaeið hjá iþeím
sé svioafi og hjá okkur, en
deildaskipting er meiri. Þannig
er líka sérhæfing meiri og sér-
þjálfun. Ef einhver svnir dugn-
að í stai'fi eða námi lxefur hann
góð tækifæri til að hækka í
tign. Eg varð ekki var við að fólk
bæri kulda til lögreglunnar, enda
er mikil áherzla lögð á „frið-
samlega samV’úð.” T.ögreglan hef-
ur líka náið samband við al-
menning. og bá sérstaklega
yngra fólkið. enda stendur hún
fyrir útvarns- oe siónvarpsþátt-
um, þar sem fræðsla um lög-
gæzlustörf og fieira þess háttar
fer fx-am. Eg kvnntist einum lög-
regluþjóni sem hafði löggæzlu
í hverfinu bar sem ég bió. Hann
vissi um öH prakkarastrik, sem
fi'amin voru í hverfinu, enda
hafði hann gott samband við
ungdóminn. Mér fannst lög-
í-eglumenn í New York yfirleitt
mjög kurteisir og almenningúr
leitaði til þeirra veena ótrúleg-
ustu hluta. Eftir því sem ég
kynntist lögreglunni i Banda-
ríkjunum, tel ég hana standa
mjög framarlega í löggæzíu-
störfum.
— En hvað um íslenzku lög-
regluna?
— Löaeæzli'sförf hafa löngum
þótt erfið í Revkíavík, en það
hefur að sjálfsögðu skapazt
vegna fæðar lögaæzlumanna og
húsnæðisskorts en nú er þetta
að breytast. Með tilkomu hinn-
ar nýju stöðvar oe fiölaunar lög-
reglumanna, er éa ekki í vafa
um miklar framfarir f löggæzlu-
málum okkar á næstunni.
— Ferðu aftur utan?
— Þeir vilia að siálfsögðu fá
menn til að fastráðast hjá sér,
eins og gengur. Það kemur til
mála að éa fari aftur og þá á
eitthvert gæzlusvæði, en það er
óráðið.
— Þú hefur farið bessa ferð
á vegum ísVnzku löereglunnar?
— Já, víð vornm leystir frá
störfum bennan tíma. Eg tel
fcrðir þpssai' míög jnikils virði.
Þær gefa mönnnm víðari sjón-
deildarhrine með hví að kynna.st
sambærileaum störfum ei'lend-
Lögreglustiórinn i Reykjavik
hefur alÞnf lmft sérstakan á-
huga á, að eefa löereelumönnum
kost á þossu oe ég er honum
mjög þakkiátur að hafa fengið
tækifæri til að fara bessa ferð.
en af henni Viefi ég haft bæði
gagn og. gaman.
■ — Svo víð vi'kium að verunni
hjá SÞ á nv. hvað gerðuð þið. í
frístundum?
* — Úr næeu var áð velja. Með-
al stacfeióiks St> í New York
er rpikið skpmmtanalíf. Þar eru
meðal annars tennisklúbbár,
skákklúbbar skiðak'úhbar, skot-
klúbbar oe ai's konar íþrótta-
klúbbar. Fnnfr.emur eru flutt
fræðsluerindi og konnsla fer
fram í 10-15 tnnenmálum, syo
að sjá má. að maðnr befur ekki
komizt yfir nema Htinn hluta áf
því sem á bnðstólnm var. Þarna
er fólkið frá fiostum löndum
heimsins. iá. ba« var jafnvel
kennt júdó og ballett. Kennarar
voru starfsmennirnir í aðal-
stöðvunum.
Hilmar Þorbjörnsson, í einkennisbúningi öryggislögreglu SÞ.
Framhald á síðu 10.
tmillMMIMMIMIMllllllMIIIIMMIIIMMMIIMIMIIMIIIIIIIIIMMIIIIIIIIItltlMMIIIIIIIIIIIIMMMIIIIIMIIIIIJI IIMMIIIIIIIIIIIMMIIIIIIMIMIMIIIIHMIIIIIMMIIIIMMMIMIIIMIIIIIIU'IMIIMHMHIIHIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIIIimiiaiHIIIIIIMIIIIHIIIIIimMMIIIIIIIIIIUIIIIIIUIIIIIIUIIIIUmUMmiMMMMMIM I
3 14. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ