Alþýðublaðið - 14.05.1964, Qupperneq 9
Nýtt bifreiðaverk-
stæði, Ventill s.f.
Reykjavík 12. maí, — GO
Á LAUGARDAGINN tók nýtt
bifvélaverkstæffi til starfa hér
í Reykjavík. Þaff er til húsa í
Sanítashúsinu viff Köllunar-
kiettsveg', en stofnendur þess
og eigendur eru tveir ungir
menn, sem áður hafa unniff
hjá hinu þekkta fyrirtæki Þóris
Jónssonar.
Fyrirtalkið nefnist Ventill
sf.^g mun éinkum sinna alls-
konar ventlaviðgerðum, still-
ingum og slípun. Tæki og að-
staða til vinnunnar er hin á-
kjósanlegasta og munu eigend
urnir kappkosta að veita eins
góða þjónusiu og unnt er. T.d.
munu þeir taka upp þá ný-
breytni að gera tilboð í verk-
ið áður en það er hafið, svo að
viðskiptavinurinn gengi ekki
gruflandi að kostnaðinum.
Til skoðunar á bílum, hafa
þeir fengið mjög fullkomna
vökvalyftu með öryggislásum.
Eigendur Ventils s.f. eru þeir
Jóhann Jóliannsson og Óskar
Engilbertsson, en starfsmaður
auk þeirra er Guðjón Tómas-
son.
iWWVWWtWWWWWWWMMWWtWWítWMVWtttWWWWWMWVMWWVWMWV
Starfsemi Farfugla fer stöðugt vaxandi
FARFUGLINN, 1. tbl. 8. árg. er
nýkominn út. Blaffiff er 1G síður
aff stærff, og er ætlunin, aff þaff
komi framvegis út tvisvar á ári.
Af efni blaðsins er þetta helzt:
Ferðaáætlun farfugla í sumar.
Ráðgerðar eru þrjár sumarleyfis
ferðir og þrjátíu helgarferðir víðs
vegar um landið. Þá er í blaðinu
grein, sem nefnist Grindaskarða-
vegur eftir Óttar Kjartansson. Rit
stjóraþankar, frásögn af aðal-
fundi Farfugladeildar Reykjavík-
ur, skýrsla um Alþjóðafarfugla-
þingið í írlandi 1963, greinaflokk
ur, sem heitir Úr malpokanum o.
fl- — Það kemur fram í blaðinu,
að Farfuglar hafa fest kaup á hús
eigninni Laufásvegi 41 og 41 a
fyrir starfsemi sína, sem er orð-
ín allumfangsmikil.
■ ■ •’ V ■ ' ' - :
í FRÍMERKI FRÍMEFi IKI m f RÍMEi RKI
Við vorum síðast að ræða um
síldar-frímerkin og síldina. í dag
skulum við taka fyrir þorska-merk
ín. Þau eru 4 og einnig gefin út
á árunum 1939-45.
Verðgildin eru 1, 5, 25 og 50
aurar. ;Uppiag þessara merkja var
hátt eða allt upp } rúmar 6 millj
ónir (5 aur.) Lægsta upplag þéirra
var í 1 eyfis-merkjunum, eða 3,3
millj. Þrátt fyrir stórt upplag,
eru þau nú öll uppseld fyrir löngu.
Þau hafa, eins og önnur uppseld
merki hækkað nokkuð í verði og
þó mismikið. 1 eyris-merkið er
virt á 25 sænska aura, eða um 2,30
kr. ísl. — Nú mætti til gamans
spy.rja einhvern bankamann:
„Hvaða upphæð stæði í minni
bankabók í dag, ef ég hefði lagt
inn einn eyri í hana fyrir 20 ár-
um?“ Líklega tæpast 230 aurar.
Á þessu sésc, að notuð uppseld
frimerki ávaxtazt og auka gildi
sitt með árunum, þótt misjafnt
sé það eftir tegundum o, fl. —
Eigum við að athuga nokkru nán-
ar þessa sjókind, þorskinn, sem
heiðrar frímerkin með mynd
sinni. — Já, ekki skulum við tala
óvirðulega um hann blessaðan,
sem er máttarstólpi „sá guli“ því
að gullitur er hann á belginn, en
þó nokkru dekkri á baki. — Bak-
uggar hans eru 3 og niður úr.neðri
skolti hans lafir þráður eða skegg.
Hann getur orðið yfir lVk metra
á lengd og mjög sver. Þorskurinn
er mjög gráðugur og étur hann
allskonar sjávardýr, er hann ræð
ur við, jafnvel sína eigin ætdngja
og frændur, en bezt þykir honum
loðna, sandsíli og síld. — Hann
lifir einkum við botninn, sá stærri
í djúpinu, en sá yngri, þyrskling-
urínn, á grunninu.
Þorskurinn hrygnir hér við suð
yfirborð sjávar og þar fljóta hrogn
in þar til seiðin eru komin út. —
Fyrst í stað eru seiðin út um
allan sjó, mikið undir margiyttum
og berast hópum saman að norð
ur- og austur-ströndinni. Loks
koma þau inn að landi og eru
þar fyrst um Sinn.
Þorskurinn hrygnir hér við
konar veiðarfæri: Net lóðir, botn
vörpu og hringnót. Einnig eru
handfæraveiðar stundaðar kricg
um allt land.
Við skulum þá láta þetta hjal
um „þann gula“ og frímerkin
hans niður falla, með ósk um að
hann verði vel við á miðúm okkar
næstu árin. —
NÝKOMIÐ
Ódýrir
KARLMANNASKOR
úr leðri á kr. 221.00
BARNASANDALAR
úr leðri. Stærðir: 27—34.
Kr. 109.00 og 139.00
KARLMANNASANDALAR
á kr. 200.00 og 216.00.
Skóverzlun
Péturs Andréssonerr
Laugavegi 17* — Framnesvegi 2.
NÝ SENDING
enskar, vor- og sumarkápur
einnig
svampfóöraöar kápur
Kápu og dömubúðin
Laugavegi 46.
NÝ SENDING
ítalskar kvenpeysur
Svissneskar blússur.
GLUGGINN
Laugavegi 30.
Forstöðukonustaða
við barnaheimilið í Grænuhlíð er laus til umsóknar.
Umsóknir sendist skrifstofu Sumargjafar, Fornhaga 8,
fyrir 25. maí n.k. 7
Stjórn Sumargjafar.
GARÐAR GlSLASON H F.
1 1 5 0 0 BYGGINGAVÖRUR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 14. maí 1964 9