Alþýðublaðið - 13.06.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 13.06.1964, Blaðsíða 5
Minningarorð: Mér hefur sjaldan brugðið eins við andlátsfregn eins og þegar ég las að séra Helgi Sveinsson hefði látizt í Kaupmannahöfn af slys- förum með óvenjul. átakanlegum hætti. Ég átti einhvernveginn svo erfitt með að sætta mig við þetia. Það voru ekki nema örfáir dagar síðan fundum okkar hafði borið saman. Hann var þá í þann veginn að leggja af stað til Kaupmanna- hafnar í náms- og rannsóknarför Þetta át.i að verða iöng ferð og enda ekki fyrr en suður í Róm. Hann hafði fengið ársorlof frá embætti sínu, kenndi sig frjálsan og eftirvæntingarfullan eins og hann væri ungur stúdent. Hafði tímann fyrir sér og lá ekkert á. Og hann var ákaflega glaður. Mikil undur hiakkaði hann til þessarar ferðar. Hann hlakkaði svo til hennar að gleði hans var smitandi. Eg varð á svipstundu sannfærður um að þetta yrði ó- vlðjáfnanleg ferð, full af undrum og ævintýrum og fegurð, lifun hins óvænta og einstaka. Og nú er henni lokið í fyrsta áfanga með þeim a burði sem einstakastur verður í lífi manns að augnabliki fæðingarinnar einu undanskildu. Og allir vinir séra Helga Sveins- sonar eru lostnir harmi og þögn. En harmur og þögn voru svo sannarlega ekki að jafnaói fylgi- nautar séra Helga. Að sönnu var hann alvörumaður, sem'vel kunni að vera þar sem hljóðhelgi, inni- leiki djúprar samúðar og drottins heilögu alvörumál skyldu flutt. En á hversdags’eiðum lífsins var honum svo sannarlega tamara að vekja hlátur og gaman. Það mátti vera undarlega samsett samkoma þar sem séra Helgi Sveinsson hefði ekki getað kveikt bros og kátínu. Hann var í öllum kynnum gleðimaður og örlátur gleðigjafi. Naut hann til þess þeirrar frá- bæru íþróttar sinnar að geta grip- ið atvik liðandi stundar og gefið þeim mynd í hnyttinni stöku — oft skoplega mynd. En skop hans var a’drei grómtekið af græsku, meiddi ekki. Sá sem fyrir því varð gat hlegið ein« hjartanlega og hin ír. Honum var sú fágæta gáfa léð að geta skynjað hið kájlega í tilvikufn og hótterni sjálfs sín og annarra og fest það í smellið form. Slíkir menn verða hvarvetna au- fúsugetir. Ég á fjölmargar slíkar endurminningar um séra Helga Sveinsson frá samfundum okkar sunnlenzkra presta, þar sem hann yar hrókur alls fagnaðar. En séra Helgi kunni og fleira að yrkja en bráðfyndnar tækifæris vísur. Har.n var athyglisvert skáld einnig um þau efni þar sem alvara djúp hugmn og ströngustu kröf- ur um fegurð forms ræðugerð og svip verksins. Af þeim skáld- skap hans eru mér minnisstæðust Skálholtsljóð hans. Auk prentaðra Ijóða hans var mér og kunnugt um, að hann átti einnig í handrifi allmikið af ljóðum, ýmist full- gerðum eða því sem næst full- unnum, og hann mun hafa haft í hyggju að gefa út síðar. Vonandi koma þau einhvern tíma, þó að héðan af verði aðrar hendur um að fjalla en hans sjálfs. Ég átti þess luinn kost að kynn ast séra Helga í kennimannlegu starfi. Ég var -aðeins tvisvar við guðsþjónustu hjá honum. Fyrra skiptið var við setningu Slysa- varnarþings fyrir allmörgum ár- um, hið síðara við næstsíðustu ára mót. í bæði skiptin flutti hann prédikun, sem ,var langt fyrir of- an meðallag að skipan og verk- mannlegri kunnáttu. Hann var þekkilegur k'erkur í kirkju og að alprýði hans í þau skipti, sem ég sá hann við embæAisgjörð ýár rólegt látleysi. En það lærist eng um sem ekki hefur vald á því verki, sem hann er að vinna. Séra He'gi Svelns'on fæddist 25. júlí 1908 að Hvítastöðum á Mýrum. Hann varð stúdent 1930, og tók þá að lesa Zæknisfræði. Hann hvarf þó brá.t frá því námi S og sneri sér að guðfræði og lauk embættisprófi 1934. Hann vlgðist að Hálsi i Fnjóskadal í ágú=t 1936, en var veitt Arnarbæli í Ölfusi í júní 1940 og sat jafnan í Hvera- gerði. Því embætti gegndi hann til dauðadags. Hann kvæntist árið 1936 Katrínu Magneu dóttur Guð- mundar bónda í Hákoti í Njhrðvík um og lifir hún mann sinn. Séra Helgi átti jafnan mörg á- hugamá'. Hin síðari ár lagði hann mjög s und á ættfræði, sat löng- um á söfnum í Reykjavík, þegar hann fékk því við komið og var orðinn lærður í þeim fræðum. Hann var og áhugamaður ura ýmis félagsmál, átti sæti í stúdenta- ráði háskólans á yngri .árum og var lengi sýslunefndarmaður í Árnessýslu. Um skeið vann hann og allmikið að slysavarnamálum, og svo kann að hafa verið um fleira, þó að mér sé ekki kunn- ugt. Unnar Stefánsson: Fáein kvebjuorb Séra Helgi Sveinsson Þetta er engin æviminning að- eins fátækleg kveðjuorð. — Ég þakka þér, kæri bróðir, fyrir sam- fylgdina og marga glaðværa á- nægjustund. Og ég bið þér bless- unar guðs á þeirri för, sem nú er hafin — lengri og meiri en sú, sem fyrirhuguð var. Vinum séra Helga Sveinssonar og ástvinum vil ég og tjá mína innilegustu samúð. Sigurffur Einarsson í Holti.. ÞEGAR Ólafur Magnússon í Arnarbæli lét af prestsþjónustu árið 1940 valdist séra Helgi Sveins son sem eftirmaður hans. Hann hafði áður gegnt embætti að Hálsi í Fnjóskadal, en fluttist búferlum til Hvei’agerð. sem þá var að vaxa upp sem þorp. Þá voru í presta- kallinu 650 íbúar en eru nú orðn ir tæplega 1500. Það lætur því að líkum, að prestverkin hafa orðið ærið mörg i Hveragerði og auk þess á 24 ára starfstímabili í þremur kirkjum, á Kotströnd, að Hjall'a og í Strandarkirkju. Ferm ingarbörnin eru orðin stqr hópur og nemendurnir margir, því að samhliða embætti stundaði hann kennslu í barna- og miðskólanum i Hvcjragarði, ó garðýrkjuskóla ríkisins og í Hlíðardalsskóla í Ölf usi. Það mun ekki vera ofmælt, að í prédikunarstóli átti séra Helgi fáa jafningja, hann var orðlagður sem prédikari og ræðugerð hans var frábær. Hvort sem var við f^rmingu, jarðarför eða önnur kirkjuleg tækifæri komu skarpar gáfur, þekking og orðsnilld vel í ljós, og yfir sérhverri slíkri athöfn hvíldi virðuleiki. Séra Ilelgi var snjall hagyrðingur og gott skáld. Hann stundaði fræðimennisku í tómstundum, og liggur meðal ann ars eftir hann rækilegt rit um í- íbúa í Ölfushreppi á síðari tím- um, auk Ijóða og sálma. Nú hafa sóknarbörn orðið at$ sjá að baki góðum kenniföðuiv nemendur vinsælum læriföður ogr fjölskylda, ættingjar og vinin sviptir góðum félaga með svipleg: um hætti. Séra Helgí valdist til marghátt-: aðra trúnaðarstarfa fyrir byggðar lag sitt innan félagasamtaka og: út á við sem sýslunefndarfulltrúl Hveragerðis allt frá því að hreppsí félagið var stofnað og til skamms tíma. Þá tók séra Helgi bátt í stört* um Alþýðuflokksins, skipaði sæti' á framboðslista flokksins í Árnesr sýslu, og var hinn trausti tals- maður fyrir hugsjónir jafnaðar- stefnunnar, eftir því sem við átti, enda fall'a þær að mörgu leytl, saman við boðskap kirkjunnar. í þessari viku ætlaði séra Ilelgi að vera fulitrúi Hveragerðis á vina bæjamóti í Danmörku, en örlög" sneru því á annan veg, svo þaðf sætið er nú autt. Fyrir hönd fólksins í Hvera- gerði, Ölfusi og í Selvogi, sem séra Helgi þjónaði, svo og Al- þýðuflokksins og frá persónuleg- um vini, leyfi ég mér að bera fram. á þessum skilnaðardegi innilegt þakklæti jafnframt því, sem fjöl- skyldu hans og æftingjum er vott uð hin dýpsta samúð og hluttekn- ing í sárum harmi. Unnar Stefánsson. linnrtfigarorS: í DAG er til moldar borin frú Þórheiður Einarsdóttir, Hafnar- hvoli í Ó afsvík. Hún var fædd 4. apríl 1895 að Stóra Kambi í Breiðu vík og var liún því rúmlega 69 ára er hún lézt 6. þ. m. Foreldrar hennar voru hjónin Einar Þor- kelsson, síðar skrifstofustjóri Al- þingis, og Katrín Jónsdóttir, eij þau áttu 4 dætur. Hún ólsc upp hjá foreldrum sínum unz þau slitu samvistum þegar hún var 8 ára gömul, og dvaldist eftir það hjá móður sinni og fóstra, Guðmundi Guðmundssyni í Efstabæ í Ö'afs- vík, og gekk hann þenni í föður- stað. Þórheiður gifdst 1916 eftirlif- andi manni sínum, Sveini Einars- syni, sjómanni í Ölafsvík. Þau bjuggu allan sinn búskap í Ól- afsvík. fyrst í Miðbæ, síðan að Hafnarhvoli, en það hús byggðu þau 1946. Þau eignuðust 11 börn, sjö dreigi og 4 stúlkur, sem öll kom- ust til fullorðinsára. Tengdamóðir hennar, Sæunn Jónatansdóttir, dva.dist á heimili þeirra hjóna, þar til liún lézt 1922, og þau hjónin ólu upp bróðurdóttur Sveins, Þóru Stefánsdóttur, og dvaidist hún hjá þeim til fullorð- insára. Það var því mannmargt á heimili Þórheiðar þegar frá upp- hafi. En eins og hún hóf starf sitt á heimili sínu, með ósérplægni hógværð og þrautseigju, eins lauk hún því í stöðugri önn fyrir heimil ið. Ástæður voru oft erfiðar, eins og víðast á þeim árum, og þótt húsbóndinn væri harðduglegur maðúr, bæði til sjós og lands, var ofc þröngt í búi. En Þórheiður var nægjusöm húsmóðir og kunni að gera mikið úr litlu. Og börnin uxu úr grasi, hraust, framsækin og efnileg og léttu snemma lífs baráttu foreldra sinna. Er tímar breyttust og börnin komust upp, batnaði afkoma fjáiskyldunnar. En Þórheiður skipti ekki um fram komu að einu eða neinu leyti. Hún var sem fyrr, vinnusöm, traust og | hógvær. Árið 1947 var sorgarár í [ sögu fjölskyldunnar. Hinn 27. september það ár fórst bácur á höfninni í Ölafsvík með þremur mönnum. Þar fórust næst elzti sonur þeirra hjóna, Lárus, sem var formaður á bátnum, og Sigurður, sem var vélstjóri og nokkrum ár um yngri en Lérus, ásamt Þórheiður Einarsdóttir félaga þeirra bræðra, Magnúsi Jó hannssyni — allir hinir efnileg ustu menn. Þá var Þóihelður hi8 mikla bjarg fjölskyldunnar. Það var stutt á milli bæja í míði þorpinu í gamla daga, og þai* mynduðust tengsl, sem rofnuðui:: seint. Þórheiður átti vinum aCf - mæta í hverju húsi. Milli móður ~ mihnar og Þórheiðar tókst íraust 1 vinátta, sem hélzt æ síðan. Var oft fróðlegt að hlusta á þessar konur ræðast við. Ég hefi oft síðan furðf að mig á mannþekkingu þeirri og glöggskygni, ekki síður en léttrl kýmni, sem alltaf brá fyrir, á hverju sem gekk. Hjónaband þeirra Sveins var mjög til fyrirmyndar, þótt Þau væru mjög ólík. Hann mikill á- kafa- og fjörmaður, en hún stillt, og fer þetta stundum merkilega vel saman. Við fráfall Þórheiðar er mikill harmur kveðinn að fjölskyldu hennar, sérstaklega manni hcnnar, sem nú er heilsuveill orðimi. Eg og fjölskylda mín þökkum Þórheiði langa samfylgd og trausta vináttu um leið og við vottum. manni hennar og fjölskyldú inni lega samúð okkar. Ég veit, að í dag taka margir þorpsbúar undir þá samúðarkveðju. Ottó Árnason. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 13. júní 1964 $

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.