Alþýðublaðið - 07.08.1964, Síða 7
ininmnmifiiiitifmiiiiiitiiiiffii
KIMA
NORÐUR
VIETNAM
w.^ HANOI
T ofjcmc
FLÓI_
3ANCKOK
PNONPENH-
'+SMCON
SIAMSPLOI
^MIIIIHIIIIHMIHIIMIIIIIIIIMMIil illllll IM 1111111111111111111111111111111111IIIIlllllii iIlllllllllllilUlllllllimjM«ftiM«:»*»»»: illllllflllllllllllllllllIIMII»IIIIIIIIIHIIMIIIIIIMmifmmilllltl»lllllfl«|IIIIIMI|IIHWI|ll|IIIMIIIIIIIIIIIII«IMIMllriIIHI||ll IMHIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMMllMM^j
erastí
TIL SKAMMS tíma var það
kallað einu naíni Indó-Kína,
sem nú eru í'jögur ríki: Laos,
Combodia, Norður og Suður-
Vietnam. Var þetta mikla land
frönsk nýlenda fram til 1954.
Eftir síðasta ófrið hófu komm
únistar og fleiri aðilar mikla
hyltingu gegn stjórn Frakka
og stóð sú borgarastyrjöld ár-
um-saman með miklum blóðsút
hellingum. Lá við að Frakk-
landi blæddi út við þá blóðfórn .
Árið 1954 lauk þeim ófriði og
var landinu skipt í fjögur sjálf
stæð ríki. Kommúnistar néðu
þogar yfirtökum í Norður-Vier
nam, og varð það að alþýðulýð
veldi undir stjóm Ho Shi Minh.
Hafa kommúnistar ekki talað
um hlutleysi því ríki til handa.
Bandaríkjamenn fengu þeg-
ar mikil áhrif í Suður-Viet-
nam og byggðu það ríki upp til
varnar gegn frekari sókn komm
únisía. Var hinn umsamdi frið
ur ckki nema pappírsgagn eitt í
augum kommúnista, sem hófu
þegar skæruhernað í Suður-
Vietnam og Laos.
Augljóst var, að kommúnist-
ar ætluðu að ná öllu þessu
svæði smám saman. Þar með
mundi yfirráðasvæði þeirra
komið á næsta leyti við Ind-
land og Ástraliu. Hér gilti hið
sama og í Kóreu: Ætlaði hinn
frjálsi heimur að veita komm-
vinistum viðnám — eða láta þá
leggja undir sig hvert smárik-
ið á fætur öðru?
Samningar um hlutleysi La-
os hafa aðcins reynzt gálga-
frestur. Innan stundar eru
kommúnistar aftur komnir á
kreik. Sýna svæðin með punkt-
unum á kortinu, hversu mikl-
um hlutum Laos og Suður-Vi-
etnam kommúnistar hafa náð
á sitt vald.
Bandaríkin eru staðráðin að
stöðva frekari.sókn kommúnism
ans hvar sem knýr á. Þetta
hefur NATO gert- í EVRÖPU,
þetta gerði Kóreustyrjöldin.
Þess vegna styðja þeir Suður-
Vietnam og hafa voldugan
flota undan ströndum Asíu.
Þessi floti hefur haldið vernd
sinni yfir Formósu og Filipps
eyjum og hann er sterkasta
mótvægið gegn útþenzlu komm
únista í Suður-Asíu. Þegar '
kommúnistar í Norður-Kóreu
réðust á þennan flota langt ut-
an landhelgi, á alþjóðlegum
siglingaleiðum, vissu þeir hvað
þeir gerðu. Bandarikin hlutu að
svara slíkri árás af festu til að
sýna, að þeim er alvara um að
veitu kommúnistum viðnám í
þessum hættuíegasta hluta
heims.
BURMA
■ %
*
/ m.
-Ö -‘{msUÐUR
nn" vplETNAM
Þykk, brotin lína afmarkar það land, sem áður var franska nýlendan Indókína. Brotnar linur par
fyrir innan eru landamæri Norður- og Suður-Vietnam, Laos og Cambodiu. Punktasvæðið sýnir þá
hluta Laos og Suður-Vietnam, sem kommúnistar hafa á valdi sínu. Kommúnistar í Norður-Vietiiain
hafa meðal annars flutt vopn, menn og vistir til skæruliða sinna í Suður-Vietnam sjóleiðis nieð
ströndum fram. Þess vegna hefur bandarískur floti verið þar á varðbergi, og sést hvar átökín uióu
í Tonkinflóa.
^tlMiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiin <
IMMMMMMMMMMIM<l'< IIIIU'rHMMMMMMMMMMIi:tMMIIMmV /
Norrænir verzlunarmenn þinga
Reykjavík, 5. ágúst, GG.
Samstarfsnefnd norrænna verzl-
unarmanna hefur undanfarna
daga setið á rökstólum hér í
Reykjavílc, og er þetta í fyrsta sinn
sem slíkur fundur er lialdinn hér-
lendis. Aðild að samstarfsnefnd-
inni eiga sámbönd verzlunar-
manna á Norðurlöndunum fimm,
og var nefndin upphaflega s'ofn-
uð árið 1917. Heldur nefndin fundi
árlega til þess að ræða ýmisleg
Iiagsmuna- og áhugamál verzlun-
arfólks, og auk þess heldur eins
konar framkvæmdanefnd samtak
anna, sem skipuð er formönnum
sambandanna, fund einu sinni 'á
ári.
Formaður samstarfsnefndarinn-
ar, Erik Magnússen, formaður
sænska verzlunarmannasambands
ins skýrði fréttamönnum í dag
frá starfi sambandsins og ráðstefn
unnar hér nu. Alls eru í samband
inu um 270.000 meðUmir á Norð-
urlöndunum fimm, 110.000 í Sví-
þjóð, 105.000 í Danmörku, 30.000
í Noregi, 22.000 í Finnlandi og
4.000 á íslandi. Öll samböndin
eru meðlimir alþýðusambanda við
komandí lnnda, nema finnska sam
bandið, en vegna klofningsins í
finnsku verkalýðshreyfingunni
stendur það ulan við.
Samstarfsnefndin ræddi ýmis
mál á fundi sínum hér, svo sem
skipulagningu verzlunarnámskeiða
með 15 fulltrúum frá hverju sam
bandi, unglingavinnu, stöðu em-
bættismanna innan sambandsins
o. fl.
Erlendu fulltrúarnir komu hing
að sl. laugardagskvöld og fara ut-
an i fyrramálið. í gær fóru þéír í
ferðalag til Gullfoss og Geysis, og
síðdegis í dag fóru þeir að skoða
hitaveituna að Reykjum. I morg-
un flutti Ólafur Björnsson, pró-
fessor, fyrirlestur um íslenzk mál-
efni. Ennfremur hafði félagsmála
ráðherra boð fyrir þá.
Þeir, sem ráðstefnuna sátu voru:
Erik Magnusson, Erik Malmström
og Karl Áke Granlund frá Sví-
þjóð, Henry Gran, Henry Knud-
sen og F.B. Simonsen frá D.an-
mörku, Aarre Happonen, Pekka
Ylivuori og Armas Iltanen frá
Finnlandi, og Johan Oksnes, Otto
Totland og Björn Nielsen frá Nor
egi. Af hálfu íslenkra verzlunar-
manna sátu ráðstefnuna Sverrir
Hermannsson, form. LÍV, Björn
Þórhallsson, ritari, og Hannes Þ.
Sigurðsson frá Verzlunarmanna-
félagi Reykjavíkur.
Trúlofunarhrlng3[;
Fljót afgreiðsla
Sendum gegn póstkröfa.
Guðm. Þorsteinsson
gullsmiður
Bankastrætí 12.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 7. ágúst 1964