Alþýðublaðið - 01.10.1964, Síða 6

Alþýðublaðið - 01.10.1964, Síða 6
★ ÍTALIR skemmta sér enn við að segja sögur af Soffíu Lóren og Ginu Lollobrigidu til skipt- is. Þetta er nýjasta gamansagan um Ginu: Einu sinni sátu þau á tali hjónin Milko Skofic og Gina. Þá sagði hann: — Hvernig stendur á því, að þú svarar mér alltaf með nýrri spurningu, þegar ég spyr þig að einhverju? Gina setti upp harnslegan undrunarsvip og sagði: — Geri ég það?! ^ ★ ERLENDIS tíðkast það talsvert, að fólk villi á sér heimildir. Þetta er erfiðara í okkar litla þjóðfélagi, þar sem allir þekkja alla, að minnsta kosti að afspurn. í Bandaríkjunum hefur nú komizt upp um mann einn, 29 ára að aldri, sem ólærður hefur gefið sig út fyrir að vera læknir og hefur unnið sér inn 24 millj. ísl. króna á fjórum hárum á „lækning- um“. Maður þessi keypti sér hlustunartæki og hvítan kyrtil. í þessari múnderingu gekk hann um á sjúkrahúsum og var viðstaddur fyrir- lestra og uppskurði. Nú hefur „læknirinn" verið leiddur fyrir lög og dóm, —. en það kom fram í réttinum, — að honum hefur gengið furðuvel að ■ gera sjúklinga sína heila meina sinna. (Kóngurinn á aö deyja Miðvikudaginn 30. september var frumsýning í Konunglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn á nýj- asta leikriti Eugene Ionesco, „Kóngurinn á að deyja". Leikstjóri er Edvin Tiemroth. Leikritið fjallar um konung, sem fær að vita, að hann á aðeins IV2 klukkustund ólifaða. Hann eyðir þessum síðustu mínútum í félagsskap drottninga sinna, — núverandi og fyrrverandi og lækn- isins (dómarans). John Price Ieikur hlutverk kóngsins, Bodil Kjer, fyrrverandi dottningu Iians, Malena Schwartz, núverandi drottningu hans, en Gunnar Lauring leikur hlutverk læknisins. ★ í NEW York hefur verið stofnaður tvlfaraklúbbur. Inntökuskilyrði er að sjálfsögðu það, að persónan líkist einhverjum frægðarmann: eða konu svo sláandi, að ekki verði um villzt. í klúbbnum eru nú ellefu Eisenhowar, sjö Churcillar, tvær út- gáfur af Soffíu Lóren, þrjár útgáfur af Ava Gardner, — en enn er leitað með logandi ljósi að annarri Liz Taylor. -★- SOFFÍA LOREN ER NÁGRANNI PÁFA ★ ALEXANDER prins af Belgíu, sonur Leopolds fyrrverandi konungs þar og Liliane de Réthy, — og þar af leiðandi hálfbróðir Baudouins ríkjandi kóngs, hefur valdið foreldrum sínum ærnum áhyggjum. Hann varð ástfangi-nn í Christine Davin nokkurri frá Leo- poldville í Kongó, og vildi endilega giftast henni, hvað sem hver sagði. Foreldrar litu fyrst í stað á þetta ástarævintýri sem æskuglöp, en þegar hann sat sem fastast vi-ð sinn keip, — sáu þau sér ekki annað fært en senda hann til Bandaríkjanna, þar sem hann lærir læknisfræði. Sérgrein hans er, eins og búast mátti við: hjartasjúkdómar! SOFFÍA Lóren virðist sífellt gefa tilefni til umræðna, - enda ekki að undra svo fögur, sem hún er. Nú eru ítalir að masa um það, að maffurinn hennar, Carlo Ponti, keypti handa henni eina fegurstu höll Ítalíu frá fornum tíma. Höll- in er umkringd fögrum garði, og næsti nágranni er páfinn, því að j sumarhöll hans, Castel Gandolfo, I er rétt þarna hjá. Höllin kostaði um hundrað milljónir ísl. króna, - en ítalir eru ekki mest að velta vöngum yfir bands, - þannig að þau séu raun- því. Þeir tala meira um það, að veruleg hjón” einnig á Ítalíu. þessi kaup séu merki þess, að Höllin og garðurinn eru dýrleg, Carlo og Soffía hafi ekki gefið upp að því er sagt er, - og allt er þetta alla von um að fá páfa til að við- í sama farinn og það var, þegar urkenna hjónaband þeirra og losa Carlo undan viðjum fyrra hjóna- höllin var byggð á 17. öld. Framhald & síðu 10. Kaupmaður nokkur í Chicago, 55 ára gamall, laumaðist út með kunningjunum eitt kvöldið. Hann kom nokkuð seint heim, - og þeg- ar hann ætlaði að fara að opna dyrnar hjá sér á þriðju hæð í húsinu, þar sem hann bjó, - komst hann að raun um, að liann hafði gleymt lyklunum heima. Ilann þorði ekki fyrir sitt litla líf að vekja konuna, - svo að hann tók það ráð að reyna að feta sig eftir planka, sem var í 15 metra hæð yfir götunni og ætlaði að fara inn um glugga á íbúð sinni. Því miður varð honum fótaskortur, en hann náði þó með höndunum um plankann og þarna hékk hann, þar til brunaliðið kom með stiga og bjargaði honum. — Þetta var hræðilegt, sagði liann við konu sína, - sem hann bjóst við að mundi þakka guði fyrir, að hann slapp lifandi. . En hún yppti aðeins öxlum og sagði: — Það var gott á þig, - fyrst þú getur ekki einu sinni munað að taka rneð þér lykil, þegar þú ert að laumast að heiman! Þessir óhugnanlegu skór komu fyrir sjónir manna á dögunum, þegar fjórar sýningarstúlkur voru, fengnar til að vekja athygli á frumsýningu á nýjustu kvik- rnynd James Bond, Gullfingurinn. Vonandi finnur enginn skóframleiðandi upp á því að láta sér þykja þetta fallegt, — hann hlyti aff fara á Iiausinn með framleiðsluna, — því að hver mundi vilja kaupa svona skó?! 6 1. okt. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIB

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.