Alþýðublaðið - 08.10.1964, Blaðsíða 2
f
lUtstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiöur Guönason. - Simar:
M900-14903. — Augiýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýöuhúsiö viö
■verfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Askriftargjald
kx. 80.00. — I lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Frumbýlingar
BLÓMLEGUR og sterkur landbúnaður er
þjóðinni nauðsyn. Um það eru flestir sammála.
’Hitt er umdeilt, hvernig skipuleggja eigi landbún-
aðinn til að ná þessu marki, og sýnist þar sitt hverj-
•um.
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins á Norður-
ttandi ræddi þessi mál fyrir nokkru og gerði um
þau samþykkt. Þar segir meðal annars:
'Gera þarf athugun til endurskipulagningar á
byggðinni í sveitum landsins með: tilliti til þeirrar
■gjörbreytingar, sem orðið hefur á öllum búnaðar-
háttum frá því hin gömlu býli voru staðsett.
Ábúendur þeirra jarða, sem kunna að teljast
óhæfar til nútímabúskapar, séu styrktir til að hefja
atvinnu við betri skilyrði.
Kjördæmisráðið telur nauðsynlegt, að auknar
séu lánveitingar til frumbýlinga í sveitum landsins
til byggingar íbúðarhúsa og nauðsynlegra útihúsa,
svo að lánin nemi allt að 80% af byggingakostnaði
húsanna. Nokkru af framlagi bænda til Stofnlána
deildarinnar verði varið til að lækka vexti af þess
um lánum all 'verulega frá því, sem nú er.
Fundurinn telur óréttmætt að framlengja skatt
gjald á bændastótt landsins til þess að standa und-
ir byggingu og rekstri gistihúss og danssala í
'Keykjavík.
Mjólkursala
ALÞÝÐUFLOKKSMENN á Norðurlnndi
.. gerðu einnig samþykkt um mjólkursölumál, og var
til þess ærið tilefni. Efni samþykktarinnar var
þetta:
Fundurinn beinir þeim tilmælum til þing-
| manna flokksins, að þeir beiti sér fyrir endurskoð
iun mjólkursölulaga, þannig að öllum matvöru-
j'verzlunum, sem þess óska og fullnægja kröfum
heilbrigðiseftirlits, sé heimilt að selja neyzlumjólk
til viðskiptamanna sinna, og sé mjólkursamlögum
skylt að afgreiða neyzlumjólk til nefndra aðila eft-
; ir óskum og þörfum.
Uppmæling
AÐ LOKUM verður hér tekið undir enn eina
samþykkt hinna norðlenzku jafnaðarmanna, en
hún varðar uppmælingu, sem þeir munu flestir
Ikannast við, sem hafa staðið í .húsby.ggingum. Sam
þykktin var á þá lund, að Alþingi beri að setja lög,
er setji verksölu eftir uppmælingu ákveðnar skorð
-ur með hagsmuni beggja fyrir augum, verksala og
yerkkaupanda, og verði leitað fyrirmynda til Noro
urlanda um lagasetningu þessa.
Ódýrir karlmannaskór
úr leðri með nælon-, gúmmí- og leðursóla.
Verð kr. 232.— og 298.—
I Skóbúð Austurhæjar |
I Laugavegi 100. ’ 1
n..ii.niiuiMii».iii»»iiin»iiimiiininuiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiii»ii»im»ii»imi»mmiiiiiíiHi;.iiiiiiinniiiiiiiimiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiii»iiiiiiiiiiiiiii«*i"""""«iiiiiii'"""ii«"i»"iimii»
iiniimimimtummHmimiHmmmiHmiHiimmHHHHiHHmimimimmmimiu « ai ihimhiM*hhiiiihmíw«í
★ Efnishyggjan er aS gera okkur geggjaSa.
ir Af tilefni skrifa um hjálp við indverja.
ir Bjóðum hingað ungum Indverjum til að læra fiskveiðar.
| ic Breytum hugsunarhætti okkar.
■mmin .1111. *iMiii»iiuuiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmililiiliiilMlnilii,|ll,*,,l,,*,,,l,,*,|ii*|»l*||ii|***|,|l,*Mlil|lll,,l
JAFNABARMAÐUR skrifar
mér á þessa leið: „Ég lief tekið
eftir áhuga Alþýðublaðsins á hjáip
við fátæku þjóðirnar. Kom þetta
hvað skýrast fram í iritstjórnar-
greininni „Hjálpum Indverjum“,
sem birt var fyrir nokkru. Eins og
við mátti búast hafa nú heyrzt
mótmælaraddir gegn þessum leið
ara» byggður á þeim rökum, að
hér sé skortur á vinnuafli og ís-
lendingar því ekki aflögufærir.
ÞETTA ER EKKI .sá andi, sem
þarf til að útrýma fátækt, fá-
fræði og liungra í heiminum. Þeg-
*ar við jafnaðarmenn hófum starf-
semi okkar og komumst til áhrifa,
kom okkur ekki til hugar að spyrja
hina efnuðu og ríku, hvort jþeir
hefðu peninga aflögu til að leggja
í tryggingar og *aðrar umbætur.
Við lögðum skatta á þetta fóik,
sem það varð að bera, þótt hver
einasti burgeis gæti sagt, *að hann
þyrfti að nota peningana í annað,
eins og nú er ,sagt, *að við íslend-
ingar þurfum sjálfir að nota allt
vinnuaflið og afrakstur þess.
SPURNINGIN ER, hvort við
viijum nokkuð leggja á okkur fyr
ir þetta mál. Ef Sameinuðu þjóð-
irnar væru orðnar að heimsríki,
mundu þær samþykkja að leggja
sKatt á allar þjóðir, þar sem tekjur
á hvern einstakiing eru yfir til-
teknu lágmarki. Þá munura við
borga okkar skatt, hvort sem hér
vantaði menn á báta þá stundina
eða ékki.
ÉG TÓK SÉRSTAKLEGA eftír
því í leiðara Alþýðublaðsins, að
minnzt var á það gagn, sem við
sjálfir mundum hafa af slíkri
tæknihjálp til fátækra þjóða. Það
er sælla að gefa en þiggja. Það
gæti gefið þjóðinni eitthvað að
hugsa um, svo sem einn dag á ári,
annað en rifrildið um þjóðarauð-
inn hér heima. Það mundi veita
okkur aukinn skilning á því, hve
mikil gæfuþjóð við x raun og veru
erum,
VH> ÞURFUM ekki ,a« senda
marga sjómenn eða sérfræðinga í
fiskiðnaði. En við mundum senda
ungt fólk með til aö skipuleggja
skólastarfsemi í fiskveiðum og
öjðru. Við mundum þjálfa tugi.afs
hjúkrunarkonum til að fara aust-
ur um sinn — og svo hefðu þær
þjálfunina eftir að helm kæmi.
Við gætum sent ungt fólk til marg
víslegra verka og látið það dvelj-
ast eystra tiltekinn, en ekki mjög
langan tima. Þetta yrðu „friðar-
sveitir“ eins og þær, sem Kenn-
edy stofnaði. Margar þjóðir hafa
fetað í fótspor hans, þar á meðal
Norðmenn.
VIÐ ÍSLENDINGAR þurfum að
ýmsu leyti 'að gæta okkar. Áróð-
urstæki nútímans eru svo sterk,
að stjórnarandstaða (hversem hún
er) getur sífellt skarað eld að
óánægju og haldið þjóðinnl £
hættulegri taugaspennu árið út og
árið inn. Við erum að verða svo
gegnsýrðir af efnishyggju, a«
mörgum hryllir við.
SENNILEGA gætu 20-30 þú*.
und Indverjar, sem nú svelta Iif-
að allgóðu lífi á þeim matarleifum
sem ekki eru nógu góðar ofan I
okkur og við fleygjum. Og svo
segja menn, þegar Alþýðublaðið
nefnir mesta hugsjónamál okkar
samtíðar, baráttu við fátækt, fá-
fræði og hungur: Við íslendingar
höfum ekki ráð á að hjálpa! Okkur
Frh. á 13. síðu.
GARÐAR GISLASON H F
í 15 00 BYGGINGAVðRUR
Útsala
hjá Daníel í fullum gangi
Allt á að seljast.
Verzlunin hættir.
★ Aðeins nokkrir dagar eftir.
10—15% afsláttur.
★ Gerið góð kaup á meðan birgðir endast.
Verzlunin Danfel, Laugavegi 66
2 8. október 1964 - ALÞÝÐU8LAÐIÐ