Alþýðublaðið - 04.11.1964, Qupperneq 2
Bltstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjórl:
Ámi Gunnarsson. — Bitstjómarfulltrúi: Eiöur Guönason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsiö við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðubiaðsins. — Askriftargjald
lcr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandl: Alþýðuflokkurinn.
EINAR SENDIR
BREZNEV SKEYTI
ÞAÐ hefur vakið mikla athygli, að íslenzkir
kommún'istar eru nálega þeir einu í Evrópu, sem
ekki hafa látið í ljós minnstu áhyggjur út af falli
Krústjovs eða krafizt skýringa á örlögum hans.
Þvert á móti virðast kommarnir okkar vera orðn-
ir harðir fylgismenn hinna nýju herra í Moskvu.
Hinn 22. október birtist í blaðinu Pravda í
Moskvu heillaskeyti frá Einari Olgeirssyni til Brez
nevs. Skeytið var á þessa leið:
„Til fyrsta ritara miðstjórnar Kommúnista-
flokks Sovétríkjanna, félaga L. I. Breznev.
Sendi persónulega einlægar árnaðaróskir. Við
óskum þér af öllu hjarta gæfu til að verða vitur
leiðtogi flokksins.
Formaður Sameiningarflokks alþýðu, Sósía-
listaflokks íslands, Einar Olgeirsson, Reykjavík.“
Þetta heillaskeyti talar sínu máli. Einar byrj-
ar á persónulegri kveðju, en svo segir hann „Við!!
og undirritar skeytið sem formaður Sósíalista-
flokksins. Hvorki Einar eða flokkurinn hafa haft
neitt við fall Krústjovs að athuga.
Það leynir sér ekki, hvemig sambandið er milli
Einars og Sósíalistaflokksins annars vegar og valda
manna í Moskvu hins vegar.
BLÖÐIN OKKAR
ÞEGAR FREGNIN um lausn prentaraverkfalls
ins barst út um borgina í gær, heyrðist ungur mað
ur segja við félaga sinn: „Nú koma blöðin aftur,
og þá byrja árekstrar og slys, rán þjófnaður og önn
ur afbrot á nýjan leik.!<
Þessi orð voru að vísu ekki mælt í fullkominni
alvöru. Samt er ekki laust við, að mörgum þyki
friðsamlegri dagar, þegar engin blöð koma út og
þau minna ekki á hinar svörtu hliðar mannlífsins,
sem jafnan fá meira rúm í blöðum en hinar björtu.
í
Ekki verður deilt um hina miklu þýðingu dag-
blaða í nútíma þjóðfélagi, þá þjónustu sem þau
veita lesendum sínum og það hlutverk, sem þau
fara með í lýðræðislegu þjóðfélagi. Hins vegar
gætu þau viðbrögð, sem áður voru nefnd, orðið ís-
Ienzkum blaðamönnum umhugsunarefni. Þegar
fólk tekur blaðastöðvun sem hvíld, bendir það án
efa til þess, að blöðin séu yfirspennt, geri of mikið
úr tíðindum, haldi uppi of hóflausum skrifum um
menn og málefni.
wmmmpwmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
STARFSFÓLK ÚTVEGSBANKANS KOM
EKKI TIL VINNU Á MÁNUDAGINN
Var með þvl að mófmæla ráðningu úfibússtjóra á Ákureyri.
Reykjavík, 3. nóv. — AG.
Á mánudaginn mætti starfsfólk
Útvegsbankans og útibúa hans
ckki til vinnu. Gerðu starfsmenn
þetta til aS mótmæla ráðningu úti-
bússtjóra við útibú bankans á Ak-
ureyri, af því aö ekki var ráðinn
bankastarfsmaður í þá stöðu.
Starf útibússtjóra við útibú
bankans á Akureyri var auglýst til
umsóknar í sumar. Sóttu sex um
: starfið, þar af fimm starfsmenn
Útvegsbankans. Á fundi banka-
ráðs nú rétt fyrir síðustu mán-
aðamót, var ákveðið, að Bragi
Sigurjónsson yrði settur útibús-
stjóri til sex mánaða.
Á fundi Starfsmannafélags Út-
Jóhannes Elíasson bankastjóri tilkynnir þeim, sem úti biðu, að banka
stjórarnir séu til viðtals, en að öðru leyti falli starfsemi bankans niður.
SAFRAN LEIKUR
HÉR I KVÖLD
Reykjavík 3. nóv. GO.
KLUKKAN 7 annaö kvöld, mið
vikudag, leikur sovézki sellóieik-
arinn Daníel Safran í Austurbæjar
bíói. Safran þessi er álitinn einn
af fremstu sellósnillingum heims
og hefur víða leikið við frábæra
dóma, allt frá A-Evrópulöndunum
vestur til Bandaríkjanna og .Jap-
an.
Safran fæddist árið 1923 í
Leníngrad. Hann hóf hljóðfæranám
sitt á níunda árinu hjá föður sín-
um sem einnig var sellóleikari og
konsertmeistari við sinfóníuhljóm
sveitina í Leningrad. 10 ára hélt
hann fyrstu liljómleikana, en
fyrsta stórsigur sinn vann hann
14 ára gamall, þegar hann vann.
1. verðlaun í samkeppni fyrir fult
orðna, en honum hafði fyrir náð
og miskunn verið leyft að vera
með.
Eftir þennan sigur keypti stjórn
in handa honum forláta hljóð-
færi, 17. aldar Amatti selló og
hefur hann ekki skilið það við
sig síðan. Hann hefur ennfremur
unnið tvennar alþjóðlegar keppn
ir í Prag og Búdapest árin 1949
og 1950.
Hljómleikarnir annað kvöld eru
haldnir á vegum MÍR, en undir-
leikari verður eiginkona lista-
rr j ninsins, Nina Mus/'njan. Þau
hjónin og fleiri gestir íslenzkir
og sovézkir, snæddu hádegisverð
í boði menntamálaráðherra í dag.
vegsbánkans síðastliðinn föstudag,
voru samþykkt mótmæli gegn því,
að ekki skyldi hafa verið ráðinn
til starfans einhver af banka-
starfsmönnum þeim, sem um
sóttu. i.
Á laugardagsmorgun ákvað
stjórn starfsmannafélagsins, að
fylgja mótmælum fundarins eftir
með því að starfslið bankans mættl
ekki til vinnu á mánudag. Til-
kynnti hún bankastjórum og f®r-
manni og varaformanni banka-
ráðs þessa ákvörðun. Bæði banka-
stjórarnir og formaður og vara-
formaður bankaráðs vöktu athygll
stjórnar starfsmannafélagsins &
því, að með slíkum aðgerðum,
væri starfsmannafélagið að brjóta
landslög, og gæti skapað sér á-
byrgð. Kröfðust bankastjórarnir
þess af stjórn starfsmannafélags-
ins. að starfsmenn mættu til
stari'a á mánudagsmorgun samkv-
venju, og óskuðu eftir að stjóm-
in léti starfsmenn bankans vitá
um þessa kröfu bankastjóranna.
Þessu neitaði stjórn starfs-
mannafélagsins, og mættu starfs-
menn því ekki til vinnu í bankan-
um á mánudaginn. í gærmorgun
mættu starfsmenn svo aftur til
vinnu. ’fi
Komin undir þak
Framhaid af 16. síðu
hægt að segja að veðrið væri
gott þá. Allan iaugardaginn
vann fjöldi manns við að moka
snjó af þakinu og um hádegl
á sunnudaginn v^r hægt að
byrja að steypa aftur. Síðan
var unnið stanzlaust í einn sói;
arhring af fullum krafti og var
lokið við að steypa þakið unj
hádegi síðastliðinn mánudag
þann 12. október.
Verksmiðjuhúsið er að mestu
ein hæð og er Þar hátt undir
loft. í hluta hússins er loft-
hæðinni skipt í tvær hæðir og
er skrifstofa °g kaffistofa &
þeirri efri. Allur gólfflötue
húgsins er vinnusalur, mjög
rúmgóður.
Yfirumsjón með bygging-
unni hefur Ríkharður Stein-
bergsson, verkfræðingur úe
Reykjavík. — Varðandi stærð
hússins sagði hann, að þa#
væri um 800 fermetrar og umi
4000 rúmmetrar. Breidd húss-
ins er 23 metrar og lengd 35
metrar.
Eins og fyrr segir er verk-
smiðjuhúsið nú risið, eni
geymsluhús fyrir tunnurnar &
að komia, við hlið þess. Á þafl
að vera stórt stálgrindarhús og
er nú verið að byrja á grunnl
þess.
Vonir standa til, að Tunnu-
verksmiðjan á Siglufirði getl
hafið störf um næstu áramót.
2' 4. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ