Alþýðublaðið - 04.11.1964, Blaðsíða 13
MIÐNÆTURHUÓMLEI'KAR
VERÐA f HÁSKÓLABÍÓ MIÐVIKUDAGINN 4. NÓVEMBER KL. 23,3®
HAUKUR MORTHENS KYNNIR - VINSÆLUSTU BÍTLAHLJÓMSVEITIRNAR
GARÐAR OG GOSAR - SÓLÓ ■ HLJÓMAR
DÚMBÓ SEXTETT OG STEINI - TÓNAR
Békfelísútgáfan
ÁSTARSAGA
eftir
KRiSTMANN
Ármann og Vildís
Ármann og Vildís er ein
fegursta skáldsaga
KKISTMANNS
GUÐMUNDSSONAR
og sú bókin, sem einna
fyrst varð til þess að afla
honum viðurkenningar og
frægðar víða um lönd.
Þessi saga hefur aldrei
fyrr verið þýdd á íslenzku
í heild og gefin út.
Nú hefur höfundurinn sjálf
ur þýtt skáldsöguna og jafn
framt umskrifað hana að
nokkru, svo að hér er raun-
verulega um nýja skáldsögu
að ræða.
Ármann og Vildís er fag-
urt skáldverk og hugnæm
bók, sem jafnt eldri, sem
yngri inunu hafa ánægju
af að lesa.
Happdrætti Alþýðublaösins
ER FLUTT AÐ HVERFISGÖTU 4
kjallarinn
GENGIÐ INN FRÁ HVERFISGÖTU - SÍMI 22710
Framhald úr opnu.
vissulega eygja sigurvonir, og
voru fundarmenn honum sammála
um það, livað svo sem aðrir segja
og halda.
Leigubílstjórinn, sem ók okkur
á fundinn var ekki á þeirri skoð-
un, að Goldwater væri sigurstrang
legur. — í»að ®r of mikið af gáf-
uðu fólki, hér í landi til þess að
hann geti náð kosningu, sagði bíl-
stjórinn, sem var hvítur maður um
fertugt.
Það er ekki ofsagt að segja, að
það hafi undarleg áhrif á mann,
að heyra 78 þúsund manns æpa í
kór: We want Barry, og gefa frá
sér flest þau hljóð önnur, sem
mannskeppnan getur framleitt. —
Svona múgsamkoma vekur óneit-
anlega upp myndir af fundum Hitl-
ers í Þýzkalandi, þegar vegur
Hitlers var sem mestur. Fólkið
sem þarna var samþykkti allt, sem
ræðumaður sagði, alveg sama hvað
það var, og hvers eðlis, eða hvort
nokkur skynsemi var í því fólg-
in, því að múgurinn hafði misst
hæfileibann til að hugsa.
Á fundinum sá ég einn blökku-
mann. Hann var blaðamaður og
fór áður en Goldwater hafði lokið
máli sínu.
Framhald úr opnu.
drei með nafni, heldur sagði hann
ævinlega, „andstæðingur okkar,”
og einu sinni bætti hann við, —
„þessi hershöfðingi í flughern-
um,” er hann var að segja, að
Goldwater hefði greitt atkvæði
gegn fjárveitingu til flughersins.
Hvað eftir annað varð Johnson að
gera hlé á ræðu sinni, þegar mann
fjöldinn greip fram í fyrir honum
og hyllt.i hann.
Þegar Johnson var um það bil
hálfnaður með ræðuna, komu 20
til 25 stuðningsmenn Goldwaters,
mest unglingar, og gengu um þver-
an salinn og báru spjöld með
myndum af Goldwater og ýmsum
slagorðum. Fundarmenn gerðu
þegar í stað mikil hróp að þeim,
en Jolinson lét sér hvergi bregða.
Þetta fólk kemur stundum á fundi
okkar, sagði hann, af því að það
vilí komast í góðan félagsskap,
og mér þykir vænt um að þið
skulið taka vel á móti því.
Þegar liópurinn var að fara út,
sagði Johnson: — Eg sé meira að
segja, að á spjótunum þeirra
stendur: Gull fyrir hina ríku, vatn
fyrir hina fátæku og Johnson fyr-
ir forseta!
Allt fór þetta friðsamlega fram,
en Goldwatermenn kvörtuðu þó
undan því að hafa orðið fyrir að-
kasti eftir að þeir komu út.
Það bar til tíðinda þetta kvöld,
að stórblaðið The Sun í Balti-
more, lýsti því yfir í forsíðuleið-
ara, að það styddi Johnson. Þetta
blað hefur yfirleitt ekki stutt fram
bjóðendur demókrata í forseta-
kosningum.
Nú er talið að 398 banda-
rísk dagblöð styðji Johnson og
I-Iumphrey en 335 styðji Goldwat-
er og Miller. Johnson-blöðin eru
talin hafa 26 milljóna upplag, en
upplag Goldwaters blaðanna telja
áreiðanlegar heimildir ekki nema
7,5 milljónir.
Hér er alltaf verið að gera
skoðanakannanir og í þeim efn-
um er mest mark tekið á Gallup
og Louis Harris, en skoðanakann-
anir þessara beggja aðila ná til
alls landsins.
í morgun telur Gallup að John-
son njóti stuðnings 64% kjósenda,
Goldwater 29%, en 7% séu óá-
kveðnir, Louis Harris telur hins
vegar, að 60% fylgi Johnson, 34%
Goldwater, en 6% séu óákveðnir.
Fróðlegt verður að sjá hve
nærri þessar ágizkanir verða, en
lftill vafi virðist nú leika á því,
að Johnson muni vinna stórsigur
3. nóvember nk. E.G.
SMURT BRAUÐ
Snittur.
Oplð frá U. 9—13,30.
BrauSstofan
Vesturgötu 25.
Síml 16012
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningarsandur
og vikursandur, sigtaður eða
ásigtaður við húsdyrnar eðs
kominn upp á hvaða hæð sem
er, eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN við EUiðavof ul.
Simi 41920.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 4. nóv. 1964 13