Alþýðublaðið - 06.11.1964, Síða 4
Ódýrir karlmannaskór
úr leðri með gúmmí, nælon og leðursóla.
Verð kr. 232.- kr. 298.- kr. 304 og kr. 432-
Ný sending tekin upp í dag.
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.
IÞROTTIR
Framhalfl af síðu 11.
vndanfarin ár, en nú liefur ÍR
ínisst Gabor, þar sem liann hefur
s'ezt að í Englandi. Er því skarð
#yrir skildi lijá ÍR-ingum, sem
yinnu mörg góð afrek í sumar, sér-
Ktaklega í kvennaflokknum, sem
er sá bczti hjá einu félagi hér á
tandi. ÍR-ingar liafa fengið Arn-
írrím Gcirsson íþróttakennara til
að taka að sér þjálfun innanhúss
í vetur, en munu vera að athuga
að fá þjálfara frá Norðurlöndun-
utn fyrir vorið.
Mikið stendur til hjá utanbæjar
yr.önnum næsta sumar, þar sem er
tandsmót UMFÍ, sem fram fer á
i^augarvatni, en frjálsíþróttirnar
^kipa þar ávallt stærstan sess. —
ÍJianbæjarmenn munu því undir-
|»úa sig óvenjuvel fyrir næsta
.tkeppnistimabil, svo að í heild má
segja, að mikið standi til bæði
ínnanlands og utan. — ö.
Tónlistarfélagið
Framhald úr opnu.
at'a -skrifa, má ráða hvílíkt erfiði
t>að kostar að koma slíku riti á
tfaggirnar, þrek og einbeitni, og
er illt ef slíkt verk þarf að vinna
upp á nýtt á fárra ára fresti.
En það er víst að ungum skáldum
•og listamönnum verður jafnan
|>örf á riti sem ljái þeim sem
frjálslegast svigrúm til sinna and
tegu æftnga. Það má vel taka
.undir þá ósk Einars að greinarlok
u:m að þeir megi jafnan eiga sér
.fnálgagn „óháð pólitíkusum, pen
ingamönnum og menningardragbít
«m“. Slíku málgagni hafa Birt-
Sngsmenn haldið úti um sirtn,
eftir föngum .sínum, og liafi þeir
lieiður fyrir það.
ÓJ
Sfarf Ijósa-
meistara
við Þjóðleikhúsið er laust frá
1. janúar 1965. Laun samkvæmt
launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir sendist þjóðleikliús-
stjóra fyrir 1. desember 1964.
Grindavík
Afgreiðslumaður Alþýðublaðsins
í Grindavík er
SVAVAR ÁRNASON,
oddviti, Borg, sími 8040.
/NTflCTHnil
mmm
Vélritun — Fjölritun
Prentun
PRESTÓ
Klapparstíg 16. — Gunnars-
brairt 28.
c/o Þorgrímsprent
. . . 4 _ ^
SKIPAUTGCRB RIKISINS
Hekla
fer austur um land til Akureyrar
10. þ. m. Vörumóttaka á föstu-
dag og árdegis á laugardag til
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar.
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Rauf
arhafnar, Húsavíkur og Akur-
eyrar.
Farseðlar seldir á mánudag.
Látið stilla bifreiðina
fyrir veturinn!
BlLASKOÐUN
Skútagðta 8». Sfml 18-101
Nú er tíminn að ryðverja
bifreiðina með
TECTYL!
RYÐVÖRN
Grensásveg 18, síml 1-99-48
LAUGAVEG 178 - SÍMI 36570
Kaupi
hreinar tuskur
Bólsturiöjan
Freyjugötu 14.
Pússningarsandur
HelmkeyrOur pússningarstmdur
og vikursandur, slgtaSur eB*
ásigtaður vlS húsdyrnar e0»
kominn upp a hvaOa haeð senr
er, eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN vtS EUIffavo* ■ 4
Siml 41920.
SMURT BRAUÐ
Snlttur.
Opiff fri kl. 9—23,80.
BcauÖstofan
Vesturgötu 25.
Sfml 16012
DÓMUR
Framh. af bls. 3.
um yrði bannað að afgreiða sölu-
varning eftir venjulegan lokunar-
tíma verzlana.
Dómsorð Félagsdóms er á þessa
leið:
1. Ákvæði A-liðar 7. greinar úr-
skurðar Kjaradóms verzlunar-
manna frá 6. febrúar s.l. skerða
ekki rétt eigenda verzlaiia til þess
að selja og afgreiða úr opinni sölu
búð eða um söluop á lögleyfðum
tímum varning, sem þeir sjálfir
eða skyldulið þeirra, sem ekki er
félagsbundið í Verzlunarmannafé-
lagi Reykjavikur, annast afgreiðslu
á.
2. Verzlunarmannafélagi Reykja
víkur er heimilt að leggja bann við
því að félagsmenn þess vinni að
afgreiðslustörfum í opinni sölubúð
eða um söluop eftir þann tíma dag
hvern, sem loka skal sölubúðum
samkvæmt ákvæðum A-liðar 7.
greinar framannefnds úrskurðar.
Hver aðili beri sinn kostnað af
máli þessu.
Verzlunarbánkinn
Framh. af bls. 3.
stofustjóra bankans, Kristján
Oddsson. kvað hann núverandi hús
næði vera of lítið, og ef það ætti
að vera nægilegt í framtíðinni,
þyrfti bankinn að taka í notkun
sem mest af nýtízku vélum, svo
hraða mætti afgreiðslunni meira.
Kvað hann engan vafa á því, að
bankinn þyrfti að nota hvern krók
og kima, ef hann fengi heimild
til að verzla með gjaldeyri og
fengi þannig eðlilega samkeppnis-
aðstöðu við aðra banka.
Möguleikar á viðbótarbyggingu
i framtíðinni eru litlir, enda stend
ur liúsið á 90% hluta lóðarinnar.
Toppfundur
Framh. af 1. síffu.
flokkunum í mörgum mikilvægum
atriðum. Sagt var, að sovézki
kommúnistaflokkurinn vildi ekki
slaka til í grundvallaratriðum, en
þar með væri ekki sagt, að betri
gagnkvæmur skilningur gæti ekki,
tekizt með flokkunum, samskipti
þeirra komizt í eðlilegt horf og
hófsamari tónn ríkt þegar skipzt
yrði á skoðunum um hugmynda-
fræðileg mál í framtíðinni.
Flestir vestrænir fréttaritarar í
Moskva hallast að því, að Chou
En-Lai og Bresjnev muni reyna
að finna nýjan grundvöll fyrir
samskipti landanna og gera ein-
hvers konar „vopnahléssamning”
i viðræðunum, sem verða haldnar
einhvern næstu daga.
Að sögn fréttaritara Reuters í
Peking er búizt við að Chou—En-
Lai muni enn leggjast gegn til-
lögu Rússa um, að haldinn verði
fundur kommúnistaleiðtoga heims
tii að taka endanlega ákvörðun 1
hugmyndadeilunni, sem svo mikl-
um erfiðleikum hefur valdið í her
búðum kommúnista.
Komnar eru sendinefndir frá
Júgóslavíu, Kúbu, Mongólíu, N.-
Kóreu og N.-Vietnam til bylting-
arhátíðarinnar. Von er á fulltrú-
um frá öðrum löndum, t. d. Búlg-
aríu og Rúmeníu.
Formaður kúbönsku sendinefnd
arinnar er Ernesto „Che” Guev-
ara. Tsedenbal forsætisráðherra er
formaður nefndarinnar frá Mon-
gólíu, Iv Sung forsætisráðherra er
formaður nefndarinnar frá N-Kó-
reu og Pham Van Dong formað-
ur nefndarinnar frá N.-Vietnam.
Seta Júgóslava á fundinum getur
valdið erfiðleikum, þar eð Kín-
verjar telja Júgóslava versta allra
endurskoðunarsinna og vilja helzt
ekki setjast að samningaborðí
með fulltrúum frá Júgóslavíu.
Utanríkisráðherra Kína, Chen
Yi, marskálkur, lýsti því yfir í dag
að brottvikning Krústjovs hefðl
opnað möguleika á sættum í her-
búðum kommúnista og hægt væri
að leggja grundvöll að bættum
samskiptum Rússa og Kínverja.
Chen Yi hefur verið í viku heim-
sókn í Alsír og fór þaðan í dag*
Longo
Framh. af 16. síðu.
tók í dag við skýrslu þriggja manna
nefndar, sem flokkurinn sendi til
Moskva til að fá nánari upplýs-
ingar inn máliff.
Formaður kommúnistaflokksina
Luigi Longo, lýsti því yfir í ræðu
á stjórnarfundi í Bologna í kvöld
að það hefði ekki valdið ítalska
kommúnistaflokknum erfiðleikum,
að fallast á eða gagnrýna hvernig
sovézku félagarnir væru sínir eig-
in verstu foringjar.
15 drengir
Framhald af 16. síðu.
þeirra rændu fyrir nokkru litla
telpu, sem var á gangi á Lindar-
götu; Var hún með buddu í hend-
inni, en í henni voru 1000 krónur.
Þrifu piltar budduna og hlupu
hurtu.
Mál drengjanna hefur nú vcriff
sent barnaverndarnefnd. Nokkur
veski fundust hjá piltunum. JEitt
er enn í vörzlu lögreglunnar, en
það er merkt Guðlaugi Guðjóns-
syni. í sambandi við mál þetta
beinir rannsóknarlögreglan þeim
tilmælum til fólks, að gæta betur
fjármuna, sem það kann að geyma
á vinnustöðum.
SMUBSTðBIl
Sætúni 4 - Símí 16-2-27
Billina «r smnrður Ojótt og réL
•tíjnm iUu tajnmúir at
Mínar innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, sem
heiðruðu mig á sjötiu ára afmæli mínu, þann 28. þ. m.
með heimsóknum, skeytum, símtölum og gjöfum.
Guð blessi ykkur alla ókomna daga.
GUÐM. Þ. SIGURGEIRSSON,
Hamravík, Drangsnesi.
4 6. nóv. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ