Alþýðublaðið - 06.11.1964, Blaðsíða 10
n
©
1
BRUNATRYGGINGAR
á húsum í smíðum,
vélom og áhöldym,
effni og lagerum o.ffi.
Heimistpygigingi hentar yður
Heimilisfryggingar
Innbús
VatnsQóns
Innbrots
Glertryggingar
IRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIR”
IINDARGATA 9 REYKJAVlK SlMI 2 1 2 6 0 S I M N E F N I : S U R E T Y
Leitum nýrra hugmynda
Framhald af 7. síðu
i Stóraukin
engan veginn allir rætzt. Enn er ]
skipulag samtakanna hið sama og
þá og starfshættir allir. Er því
áreiðaniega tími til kominn að
taka þessi málefni öll til endur-
s]koðunar og endurbóta.
7 Ég hef nú leyft mér að gera' af-
mæli samtakanna og starf liðinna
ára að umtalsefni. Það minnir á
önnur tímamót, sem eru þó allt
annars eðlis. Um þessar mundir
. á sem sé Alþýðuflokkurinn að
v.þaki sér lengsta samfellt tímabil
aðildar að ríkisstjórn. Hann hefur
i)ú um 8 ára skeið tekið þátt í
• ríkisstjórn, og um tíma sat hrein
■ flokksstjórn að völdum. Vegna
þessa er nú sjálfsagt að íhuga
nokkuð, hvernig til hefur tekizt.
Segja má, að timabil þetta
:i skiptist í tvennt, það er aðildina
,i að Vinstri stjórninni svokölluðu
1956—1958, og tímabilið síðan. —
Allan þennan tíma hefur flokkur-
inn reynt að koma sem flestu og
beztu til leiðar með aðild sinni að
ríkisstjórn. En ekki er mér þátt-
. takan í Vinstri stjórninni minnis-
stæð fyrir þá sök, að framkvæmd
stjórnarstefnunnar hafi tekizt vel
:: eða stjórnin hafi gert helztu
i stefnumál Alþýðuflokksins að sín-
| um. Hins vegar skiptir mjög um
við myndun ríkisstjórnar Alþýðu-
flokksins haustið 1958. Tíminn
síðan hefur einkennzt af djarfhuga
ij og stórhuga stjórnarstefnu. Hrund
J- ið hefur verið i framkvæmd hverju
•f stórmálinu af öðru. Ber þar hæst
$ leiðréttingu kjördæmaskipunar-
j., innar, viðreisn efnahagsmála, stór-
eflingu almannatrygginga, sigur í
ff landhelgismálinu, frið um utan-
K ríkis- og varnarmál, stórefling
j mennta og skólamála, mikla at-
I* vinnu og öflugar framkvæmdir um
I allt land.
‘A
ó Á þessu tímabili hefur verið
[f lagt til atlögu við margan stór
“ vandann og sigur fenginn, nýjar
10 6. nóv. 1964 - ÁLÞÝÐUBLAÐI0
þjóðbrautir lagðar í andlegum og
verklegum efnum og há mið tekin.
Dómurinn um aðild Alþýðuflokks-
ins að ríkisstjórn síðustu 6 ára
getur því ekki orðið nema jákvæð-
ur, áhrif flokksins leyna sér ekki.
Auðvitað hefur sitthvað gengið
afskeiðis á þessu timabili og sitt-
hvað orðið til angurs, þótt heild-
arárangurinn verði að teljast góð-
ur. Það er til dæmis illt til þess
að vita, hvernig síðustu alþingis-
kosningar gengu flokknum í óhag.
.... Og þótt við séum samþykkir
aðild flokksins að núverandi ríkis-
stjórn, eru margir andvígir því, að
samvinnan við Sjálfstæðisflokkinn
skuli sjálfkrafa vera látin ná til
bæja- og sveitarstjórna um land
allt, sem og til verkalýðshreyfing-
arinnar. Okkur þótti óhægt að
vera í hræðslubandalagi við Fram-
sóknarflokkinn, en ekki er betra
að vera í allsherjarbandalagi við
Sjálfstæðisflokkinn. Víst er á
margt að líta, þegar þessi mál eru
vegin og metin, en þegar öllu er
á botninn hvolft hygg ég, að sú
verði niðurstaðan, að Alþýðuflokk
urinn eigi að starfa og berjast oft-
ar einn og óstuddur en hann gerir
núorðið.
Stjórnmálasamtök, sem vilja
njóta trausts og áhrifa, verða að
vera í takt við tímann, benda á
leiðir til lausnar flestum vanda og
þjóðbrautir til farsældar. Stjórn-
málasamtök ungra manna, sem
vilja vera vanda sínum vaxin og
njóta fylgis og trúnaðar unga fólks
ins, verða að þekkja vanda þess
og leiðir til lausnar og gera fram-
tíðaróskir þess að sínum. Stjórn-
málasamtök, sem ekki eru í takt
við tímann, verða nátttröll. Því
skulum við nú vandlega íhuga mál
efni unga fólksins og dreyma þess
framtíðardrauma, jafnframt því
sem við ræðum þjóðmál dagsins.
Minnumst þess, að vandi fylgir
vegsemd hverri, og sá nýtur
skamma stund trúnaðar, sem ekki
finnur til ábyrgðar.
Mörg og brýn verkefni blasa
við. Einna efst í huga okkar er
vafalaust hin brýna þörf heildar-
löggjafar um húsnæðismál, þar
! sem hlutur byggingasamvinnufé-
laga verður gerður stórum meiri
og unnið að verulegri lækkun
byggingakostnaðar. Brýn nauðsyn
á alhliða viðreisn verkalýðssam-
takanna má heldur ekki fram hjá
okkur fara. Þá hljótum við að
ítreka fylgi okkar við 18 ára kosn-
ingaaldur, iðnnám verði tekið til
gagngerðra endurbóta, hjónagarð-
ar byggðir við ýmsa framhalds-
skóla og komið upp almennu
námslánakerfi og námsstyrkj-
um Við skulum heldur
ekki láta undan dragazt að gera
samþykktir um aðild starfsfólks
að stjórn fyrirtækja, að 1% þjóð
artekna renni til aðstoðar við þró-
unarlöndin, einstakar fram-
kvæmdaáætlanir til langs tíma
verði gerðar fyrir hina ýmsu lands-
hluta og atvinnugreinar, og komið
verði á fót stóriðju svo að á
margt ólíkt sé drepið í einu. Allt
þetta og margt fleira er næsta
framtið samtímans, óskalisti unga
fólksins til Alþýðuflokksins.
En fjarlægari framtíð er einnig
nauðsynlegt að gefa gaum. Vest-
ræn ríki standa nú frammi fyrir
tæknibyltingu, sem kölluð er Önn-
ur Iðnbyltingin. Kjarni hennar er
sjálfvirkni sú, sem nú ryður sér
mjög til rúms í iðnaði vestrænna
þjóða. Hún veldur atvinnuleysi
þeirra, sem ekki hafa nægilega
menntun til að bera og geta ekki
lagað sig að breyttum aðstæðum,
nýjum tímum. En hin nýja tækni-
bylting verður að reynast gull í
hendi fólksins, færa því fleiri
tómstundir og betri efni, en
þekkzt hafa áður. Vestrænar þjóð- 1
ir búa sig nú sem óðast undir
þessa tíma og ég fæ ekki betur
séð, en við íslendingar verður í
þessu efni að fylgjast vel með tím-
anum, en daga upp elli. Rétt eins
og þær verðum við að taka skóla-
og menntakerfi okkar til gagn-
gerðrar endurskoðunar og bæta
mjög menntun velflestra ung-
menna. Þetta er því meiri nauð-
syn, sem þjóðin er fámenn. Af
þeirri ástæðu einni verður liver
maður að vera hæfur, ef halda á
uppi þjóðlífi. Komandi tímar
munu krefjast menntunar af vel-
flestu ungu fólki, er jafnast á við
nútíma stúdentsmenntun. Á það
auðvitað við um andleg efni sem
verkleg. Það er þegar tímabært
að gera skólakerfið svo úr garði
að unga fólkið ráði við kröfur
tæknibyltingarinnar, er það stend-
ur andspænis þeim. Og það er
cinnig tímabært að undirbúa inn-
reið hennar í atvinnulíf þjóðar-
innar.
Harold Wilson, leiðtogi brezka
Verkamannaflokksins, var nýlega
að því spurður, hvaða eitt. orð
gæti lýst megininntaki jafnaðar-
stefnunnar. Hann sagði, að það
væri orðið vísindi. Einn flokks-
manna hans lýsti sig ósammála
þessu og sagði, að það væri orðið
siðgæði. Ekki skal ég reyna að
lýsa jafnaðarstefnunni með einu
orði, en ég hygg að það sé sann-
mæli, að jafnaðarstefnan sé feg-
ursti draumur um réttlátt og ham-
ingjusamt þjóðfélag, sem mann-
kynið hefur nokkru sinni dreymt, i
Jafnaðarmenn um allan heim
stefna að því að gera þennan
draum að veruleika og þau ríki
eru talin öðrum ríkjum fyrirmynd-
arríki, sem þeir hafa lengst stjórn
að. íslenzkir jafnaðarmenn liafa
mótað mjög þjóðfélagsþróunina á
liðnum áratugum með þeim
árangri, að ísland er í röð fremstu
velferðarríkja heimsins. Á kom-
andi tímum ber okkur að móta
þjóðfélagsþróunina í enn ríkari
mæli. Við ungir jafnaðarmenn
eigum að leggja okkar skerf til
þess að það geti orðið. Það gerum
við bezt með því að leita nýrra
hugmynda og nýrra leiða, með því
að vinna saman af einhug, stórhug
og framtíðarsýn. Þá mun vel til
takazt.
Framhald af 7. síðu
menna menningarstarfsemi er
nauðsynlegt að efla t. d. með sýn-
ingum Þjóðleikhússins, hljómleik-
um Sinfóníuhljómsveitarinnar og
listkynningu um land allt. Má
einnig benda á nauðsyn þess að
unnið verði að stofnun menning-
armiðstöðva sem víðast. Styrkir til
skálda og listamanna verði stór-
auknir. Mætti það gjarna verða
að nokkru leyti með skreytingum
opinberra bygginga.
Þingið telur mjög mikið verk
óunnið í æskulýðsmálum þjóðar-
innar. Löggjöf um æskulýðsmál
verðúr því að setja sem allra
fyrst, og hlýtur þar að koma
greinilega fram skilningur stjórn-
arvalda á gildi og starfi æskulýðs-
samtakanna. Löggjöf þessi verð-
ur að gera kleift að setja á stofn
umfangsmikla og lieilbrigða tóm-
stunda- og skemmtanastarfsemi
æskufólks. Harmar þingið mjög
drykkjuskap æskufólks og telur,
að hafa beri strangt eftiriit með
starfsemi hinna ýmsu skemmti-
staða og einstakra félagsheimili.
Ber brýna nauðsyn til, að sett
verði strangari lög um starfsemi
og rekstur áðurgreindra aðila.
20. þing SUJ telur að húverandi
menntamálaráðherra hafi áorkað
miklu til eflingar menntunar og
menningar í landinu. Væntir
þingið þess að á komandi tíð verði
enn stefnt hátt og drjúglega unn-
ið.
SENDISVEINN
óskast. — Vinnutími fyrir hádegi.
Aiþýðublaðið Sími 14 9ðð.
vantar unglinga til að bera blaðió áskrif'
enda í bessum hverfum:
Bergþórugötu
Melunum
Högunum
Laufásveg
Rauðarárholti
AfgreiðsEa Alþýðublað^^ %
Sími 14 900.