Alþýðublaðið - 24.11.1964, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.11.1964, Blaðsíða 3
 BREZKA STJÓRNIN HÆKKAR FORVEXII WWWtWWWMWWMMWW LONDON, 23. nóvember. NTB- Reuter). — Brezka Verkmanna- flokksstjórinin sætti harðri gagn- rýni íhaldsflokksins og Frjáls- f lynda flokksins í Neðri málstof- unni í dag vegna ákvörð'unar henn ar um að hækka forvexti úr fimm í sjö prósent. Að vísu hefði ver ið búizt við hækkuninni vegna versnandi stöðu sterlingspundsins StjórnAlþýðu- flokksins... Framhald af 1. síðu arson, Sigurrós Sveinsdóttir, Soff ía Ingvarsdóttir, Stefán Gunn- laugsson, Stefán Júlíusson, Unnar Stefánsson, Hörður Zóplianíasson, Eyjólfur Sigurðsson, Jónas Ást- a'áðssoh, Sigurður Guðmundsson, Sigþór Jóhannesson. Nánar verður skýrt frá öðrum kosningum á þinginu í Aiþýðu- blaðinu næstu daga og sömulclð is verða þá birtar allar álvktanir þingsins um hin ýmsu mál. sem það tók afftöðu til. erlendis, en ekki var búizt vii svona mikilli hækkun og ákvörð- unin var einnig tekin fyrr en ætl að var. James Callaghan fjármálaráí hei'ra sagði í Neðri málstofunni að tilgangur aðgerðanna væri af gera öllum ljóst að stjórnin vær staðráðin í að viðhalda stöðr pundsins og binda enda á fjár magnsflóttann. Callaghan minnt á hinn umdeilda innflutningstol og skattaívalnanir við útflytjend ur og kvað þessa íhlutun í efna hagsmálunum mundu leiða ti þess að greiðslujöfnuðurinn bati aði þegar fram í sækti. Maudling fv. fjármálaráðherr; lýsti yfir stuðningi við þá við leitni stjórnarinnar að viðhald. stöðu pundsins, en kvað erfiðleil ana stafa af aðgei'ðum stjórnar innar, einkum fjárlagafrumvarp inu, nýjum sköttum og innflutn- ingstollinum. Callaghan kvað íhaldsstjói-nina hafa gert ástandið veri-a en ella með því að fresta kostningunum og gera ekki nauð- synlegar efnaliagsráðstafanir á réttum tíma. Þið byggðuð upp efnahaginn eins og spilaborg og fyrsti litli sannleikagusturinn þeytti henni um koll, sagði hann. Árás á Stanley- ville yfirvofandi Leopoldville, 23. nóv (NTB-Reut er). Kongóskar Átjórnarhersveitir undir stjórn hvítra málaliffa Flugslys Framh. af 1. síðu. segir, að hætt hafi verið við flug- tak um leið og áreksturinn átti sér stað. Eldur kom strax upp í flugvél- inni. Billinn var á sérstakri bíla- braut við hliðina á flugbrautinni. Flugvélin hafði haft viðkomu í Róm og kom frá Kansas City, Chi- cago, New York og Milano. í vél- inni var tvöföld áhöfn, alls 17 menn. Auk þess voru 26 aðrir starfsmenn Transworld Airlines um borð. Aðeins 29 þeiri'a, sem í vélinni voru, voru venjulegir far- þegar. Forstjóri TWA gaf ekki skýr- ingu á því, hvers vegna flugstjór- inn ákvað að hætta við flugtakið, en formælandi flugumfei'ðarstjórn arinnar á flugvellinunr kvað flug- stjórann hafa sagt á eftir, að hann hefði séð eld koma upp í einum hreyflinum. Á samri stundu hafa hann stigið á hemlana og tilkynnt að hann hefði hætt við flugtak. Framhaldsaðal- fundur Varðbergs Kassamað- urinn" vill til ísrael RÓM 23. nóv. (NTB-Reuter) „Maffurinn í kassanum“, Mordecai Luk, sagffi ræffis- manni ísraels í Róm í dag, aff hann væri fús til aff fara til ísrael og láta dómstól f jalla um mál sitt. Luk sneri sér sjálfur til sendiráffsins. Interpol hefur sagt, aff lýst sé eftir Luk í ísrael fyrir fjárdrátt. Aff sögn blaffs nokkurs er Luk cnn gest ur ítölsku leyniþjónustunniar. twwwwwwwwwww GOSIÐ DÝRARA EN BRENNIVÍNIÐ Rvík, 23. nóv. - ÓTJ Gosdrykkjarflaskan kostar *ú á sumum veitingastöffum 28 krónur, og er þá brennivínssjússinn 2 krónum ódýrari. Þar sem álagníng er frjáls er verffiff nokkuff misjafnt eftir því hvar verzlaff er. Sumstaff- ar kostar flaskan ekki nema 25 krónur. Þess má geta aff úr búff kostar kókflaskan 4.25. bjjuggu sig í dag undir vífftæka lokaárás á höfuðborg uppreisnar manna, í Stanleyville. Moise Tshombe forsætisráðherra sagffi að innan nokkurra klukkustunda yrffi unnt aff lýsa þvi yfir, aff bund inn hefff’ veriff endi á undirróðurs starfsemina í Kongó. Hann vildi ekki tala um þetta nánar. í síðustu frétt'um segir ,að stjórnarhersveitirnar hafi í kvöld verið komnar til Lobutu, sem er um 200 km. frá Stanleyville og sóknin eftir góðum vegum til Stanleyville þyrfti ekki að taka nema fjórar klukkustundir. í Leo poldville er talið. að árásin geti hafizt á morgun. í kvöld sendu uppreisnarmenn forsætisráðherra Kenya, Jomo Kenyatta, boðskap þess efnis, að Bandaríkjamenn hefðu aðcins eins sólarhrings frest til að hætta sprengjárásum á stöðvar upp- reisnarmanna. Staðliæfingum þeirra um, að belgískir fallhlífa hermenn hefðu verið sendir til Bunia, semi er 480 km. austur af Bunia, var hafnað. Þar mun hafa verið átt við fallhlífahermenn serq Belgar sendu í síðustu viku til Ascension-eyju, þar sem þeir eiga að vera til taks ef lífi rúm lega 1000 hvítra manna í Stanley villg er ógnað. FRAMHALDSAÐALFUNDUR Varðbergs, félags ungra áhuga- manna um vestræna samvinnu, verffur haldinn nk. fimmtudags- kvöld, 26. nóv, aff Hótel Sögu og hefst kl. 20.00. Auk affalfundar- starfa mun Benedikt Gröndal, rit- stjóri, flytja erindi um „Vanda- mál Atlantshafsbandalagsins”, en hann er nýkominn af fundi þing- mannasamtaka bandalagsins, þar sem þau voru mjög til umræffu. Aðalfundur Varðbergs var hald inn mánudaginn 26. október sl. Á fundinum var flutt skýrsla fráfar- andi stjói-nar félagsins á sl. starfs- ári, rætt um framtíðarstarfsemi þess, kjörin ný stjórn félagsins og sýnd kvikmyndin „Saga Berlínar”. Fundarstjóri var kjörinn Björg- vin Guðmundsson fréttastjóri, og fundan-itari var Gunnar Hólm- steinsson viðskiptafræðingur. Formaður félagsins, Björgvin Vilmundarson viðskiptafræðingur, flutti skýrslu stjómar um starf- semi félagsins á sl. ári. Kom þar fram, að starfsemi þess hafði ver- ið mjög mikil og m. a. fólgin í ým- iskonar fundahöldum, kvikmynda- sýningum, útgáfustarfsemi og kynnisferðum félagsmanna. Við umræðurnar um skýrslu stjórnar skýrði Ólafur Egilsson lög fræðingur m. a. frá kynnisferð fé- lagsins fyrir skömmu til varnar- stöðva í Noregi og Þýzkalandi. í stjórn Varðbergs fyrir næsta starfsár voru kjörnir þessir menn: Fá ungum jafnaðarmönnum: Ás- geir Jóhannesson innkaupastjóri, Eyjólfur Sigurðsson prentsmiðju- stjóri og Karl Steinar Guðnason kennari. Frá ungum framsóknarmönnum: Ásgeir Sigurðsson rafvirki, Gunn- ar Hólmsteinsson viðskiptafræð- ingur og Jón Abraham Ólafsson fulltrúi yfirsakadómara. Frá ungum sjálfstæðismönnum: Hilmar Björgvinsson stud. jur., Hörður Einarsson, stud jur., og Hörður Sigurgestsson stud. oecon. í varastjórn félagsins hlutu kosn ingu: Frá ungum jafnaðarmönnum: Georg Tryggvason og Ólafur Stef- ánsson stud. jur. Frá ungum framsóknarmönnum: Dagur Þorleifsson blaðamaður og Valur Ai’nþórsson. Frá ungum sjólfstæðismönnum: Gunnar Gunnarsson stud. oecon, og Ragnar Kjartansson fram- kvæmdastjóri. Á fyrsta fundi sínum skipti stjórnin þannig með sér verkum: Formaður félagsins var kjörinn Hörður Einar^son, 1. varaformað- ur Jón Abraham Ólafsson og 2. varáformaður Asgeir Jóhannesson. Ritari féiagsins var kjörinn Gunn- ar Hólmsteinsson og gjaldkeri Karl Steinar Guðnason. Reykjavík^ 23. nóvember. — EG. FUNDIR voru í báðum deildum Alþingis í dag og-voru þeir venju fremur stuttir. í efri deild var aðeins eitt mál á dagskrá. Breytingar á lögum um ferðamál. Var þetta önnur umræða máisins og höfðu breytingar- tillögur verið lagðar fram, en voru dregnar til baka og látnar toíða 3. umræðu. í neffri deild var frumvarp til laga um verðtryggingu launa sam- þykkt við 3. umræðu og verður það nú sent til efri deildar. Þá kom til 3. umræðu frumvarp til breytinga á lögum um þingsköp Alþingis. Einar Ingimundarson (S) mælti fyrir breytingartillögu frá alisherjar- nefnd um að einnig verði fjölgað í kjörbréfanefnd og skipl hana eftirleiðis sjö menn. Frumvarpið fer nú til efri deildar. Fleiri mál voru ekki á dagskrá. Jón Þorsteinsson (A) og Jón Árnason (S) hafa lagt fram frum- varp til laga um breytingu á lögum um leigutoifreiðir í kauptúnum og kaupstöðxim. Frumvarpið er flutt að ósk Landssambands vöru- bifreiðarstjóra, og fjallar það um heimild á takmörkunum á fjölda leigubifreiða til vöruflutninga í þeim sýslum landsins, þar sem starf- andi er eitt stéttarfélag vönxbifreiðarstjóra, er hefur aff félagssvæði alla sýsluna og ekkert umfram það, eins og segir í lögunum. Sigurvin Einarsson (F) og Páll Þorsteinsson (F) hafa flutt svo- hljóðandi þingsályktunartillögu um kvikmyndasýningar í sveitum: Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni aff láta fara fram í sam- ráði við sveitarstjórnir athugun á þvl hvemig hagkvæmast sé að skipuleggja kvikmyndasýningar í sveittun landsins. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. nóv. 1964 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.