Alþýðublaðið - 24.11.1964, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 24.11.1964, Blaðsíða 16
ÍÁ flokksþingi Alþýðuflokksins síðastliðinn sunnudaff, afhenti fulltrúaráð Alþýðuflokksins í |! Reykjavík AlþýðuOokknum að gjöf málverk af Jóhönnu Egilsdóttur. Málverkið gerði Sigurður Sig- !> urðsson listmálari. Hér á myndinni sjáum við Jóhönnu Egilsdóttur og Emil Jónsson. j! I iMtWWWMWMWWMMMMW»WMWWWWWðWMMWMMWW*WMMMMMMMWMMMM*W LÁG FJÖLSKYLDUFAR- GJÖLD F.l. TIL ÚTLANDA Reykjavík, 23. nóv. NÝLOKH) er í Aþenu sex vikna fargijaldaráðstefnu Alþjóðasam- foands flugfélaga, I.A.T.A., þar isem rædd voru og teknaj* ákvarð anir um fargjöld á millilandaflug ffeiðum á tímabilinu 1. apríl 1965 til ^l. marz 1967. Ráðstefnuna Sátu frá eitt hundrað flugfélögum um 300 fulltrúar og var gengið •érá braðabirgðasamþyliktum um mörg mál, sem háð eru samþykki viðkomandi ríkisstjórna. Ráðstefnan var haldin í Hotel Hilton í Aþenu. fulltrúar Flug- félags íslands voru Birgir Þor- gilsson sölustjóri og Ingvi M. Arnason fulltrúi. Flugfélag Islands hefur alla tíð beitt sér fyrir hagstæðum far- gjöldum milli íslands og útlanda. Er þar skemmst að minnast vor- og haustfargjalda sem gilt hafa frá íslandi til Evrópulanda s.l. tvö ár og jóla- og fjöiskyldufar- gjalda, sem gilda í desember milli nágrannalandanna og íslands. Á nýafstaðinni fargjaldaráðstefnu í Aþenu fékk Flugfélagið sam- þykki fyrir fjölskyldufargjöldum frá íslandi til Norðurlanda, sem þýðir stórlækkuð fargjöld á þess Framhald á 4. síðu iWWWWWVWVWWHWWWHMiVWMVftWVVmWVVVWWHMHWWVWWWiWW Krefjast Norðmenn landgrunns í íshafi? Að sögn norska blaðsins „Aft enposten" munu Norðmenn gera kröfu til þess, að þeir megi áskilja sér allan rétt tii að liagnýta málma á botni Iand grunnsins á milli Svalbarða og Noregs og umhverfis eyjaklas ann. Þetta táknar, að Norð- menn gera kröfu til yfirráða yfir sjávarbotninum langt inn í Barentshaf og í átt að Norð urheimskautinu. Samkvæmt samningi frá 1920 veittu stórveldin og önnur ríki, sem hagsmuna höfðu að gæta, Norðmönnum yfirráð yf ir Svalbarða. Borgarar og fyrir Framhald á 15. síðu ■iWlWWWWVAM'W/tWVVlVIAWMVUVWMHWlHV Alþýðublaðið kost or aðeins kr. 80.00 á mánuði. Gerizt á' skrifendur. Þriðjudagur 24. nóvember 1964 Fundu 45 smygluðu Rvík. 23. nóv - ÓTJ. TOLLGÆZLAN í Reykjavík fann í gær 45 kassa af smygluðu áfengi um borð í togaranum Þormóði Goða sem var að koma úr söluferð til Þýzkalands. Einnig fannst um borð nokkuð af smygluðum heim- ilistækjum, frystikistum og þess- háttar. Forsaga málsins var sú að í gær komu þrír togarar til landsins, og meðal þeirra Þormóður Goði. Einn skipverja þar hafði pantað-sér leigubíl niður að höfn í þeim til- gangi að færa á brott nokkuð magn af veigum sem hann kærði sig ekki um að yfirvöldin fengju nasasjón af. Eitthvað mun þó hafa þótt grun- samlegt við þessa flutninga, því að lögreglan stöðvaði leigubílinn og gerði leit í honum. Fundust þar 55 flöskur. Eftir þetta var settur vorður við togarann meðan toll- verðir söfnuðu liði, en þá var haf- in vandleg leit. Þar var ekki kom- ið að tómum kofanum. Eftir langa árangurslausa leit fundu þeir smyglvarninginn í loftrásum í reykháfi togarans. Og þaðan voru dregnir 10 kassar af genever, og 35 kassar af 75 prósent vodka. Alls gerir þetta 595 flöskur. Þá funöu tollverðir og 2 kassa af smygluðu áfengi í öðrum hinna togaranna. Var þar um að ræða einn kassa af genever, • og einn kassa af gini, sem voru hirtir þeg- ar verið var að skipa þeim í land. Unnsteinn Beck fulltrúi tjáði blað- inu að málið væri nú í höndum rannsóknarlögreglunnar. SAMSÖNGVAR FÓSTBRÆÐRA í ÞESSARI viku efnir Karlakór inn Fóstbræð'ur til samsöngva fyrir styrktarfélaga sína. Fara þeir fram í Austurbæjarbíói, hinn fyrsti á morgun, miðvikudag 25. nóv. kl. ltj|15. Síðan á fimmtu- dag 26. nóv. á sama tíma, en laugardaginn 28. nóv. verður loka samsöngur kórsins að þessu sinni, og þá kl. 15.00 (kl. 3 e.h. Söngskrá Fóstbræðra nú er mjög helguð Norðurlándatónskáld um, og má af þeim nefna August Söderman, Grieg, Palmgren, Tör- nudd og Erik Bergman. Einnig ei'ú á efnisskránni lög eftir þrjá innlenda höfunda þá Oddgeir Kristjánsson, Sigfús Einarssan, og Sigurð Þórðarson. Einsöngvari með kórnum eru Erlingur Vigfússon, Kristinn Halls son og Hákon Oddgeirsson, en þeir Erlingur og Kristinn munu að auki syngja fáein lög án aðstoð ar kórsins. Fóstbræðrum hafa á þessu ári bæt2t óvenju margir nýir söng- menn, og skipa kórinn nú nær fellt 50 söngvarar. Sön|jstjc<ri Karlakórsing Fóst- bræðra er Ragnar Björnsson og undirleikari Carl Billich. Halidór Pálsson aftur tekur við Reykjavík, 23. nóv. Á FUNDI stjórnar Búnaðár- félags íslands í dag 23. nóv. tók Hefir Ólafur E. Stefánsson, naut- stjóri, aftur við starfi sínu hjá félaginu, en hann heflr sökum veikindaforfalla verið fjarverandi frá starfinu um 10 mánaða skeið. Hefir Ólfur E. Stefánsson, naut- griparæktarráðunautur, gengt staríinu á þessum tíma. Sýning á finnskum glerlistmunum Reykjavík, 21. nóv. - OÓ OPNUÐ verður um helgina sýn tog á finnskum glermunum í Vierzlun Kristjáns Siggeirsson ar. l-istinunirnir á sýningunni eru geröir eftir fyrirsögn hins lieimskunua finnska listamanns Timo Sarpaneva, og framleidd- ir hjá Karhula-Iittala glcrverk smiðjunni , en Kristján Sig- geirsson h. f. hefur einkaum- boð fyrir þær á íslandi. Sýning á glermunum þessum var haldin í Stokkhólmi í sept, sl. síðan í París og er nú kom- inn hingað til Reykjavíkur. Sýn • Framhald á 15. síðu Kristján Siggeirsson, fulltrúi frá Karhula-Iittala verksmiðjunum og Hjalti Geir Kristjánsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.