Alþýðublaðið - 24.11.1964, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 24.11.1964, Blaðsíða 5
INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1964 ■'há;: -hxmm - - x • '.-.l,' «tÁMrt- jgggg'; Íí-vi.y SPARISKIRTEINI ÚTBOÐ Fjármálaráðherra hefur ákveðið að nofa heimild í lögum frá 20. þ. m. til þess að bjóða út 50 milljón króna innlent lán ríkissjóðs með eftirfarandi skilmálum: SKILMÁLAR 1. GREI N Hlutdeildarbréf lánsins eru nefnd spariskírteini, og eru þau öll gefin út til handhafa. Þau eru í þremur stærðum, 500, 2.000 og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í aðalskuldabréfi. 2. G R E I N Skírteinin eru lengsttil lOára, en frá 10. janúar 1968 er hand- hafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini innleyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við innlausn. Fyrstu 5 árin nema þeir 6% á ári, en fara síðan hækkandi, eftir því sem handhafi dregur innlausn, og verða tæplega 9,2% á ári síðasta ár láns- tímans. Innlausnarverð skírteinis tvöfaldast á 10 árum og verður sem hér segir að meðtöldum vöxtum og vaxtavöxtum: Skírteini 500 kr. 2.000 kr. 10.000 kr. Eftir 3 ár 596 2.384 11.920 —- 4 ár 631 . 2.524 12.620 —• 5 ár 669 2.676 13.380 — 6 ár 719 2.876 14.380 — 7 ár 777 3.108 15.540 — 8 ár 843 3.372 16.860 — 9 ár 916 3.664 18.320 — 10 ár 1.000 4.000 20.000 Við þetta bætast verðbætur samkvæmt 3. gr. 3. G R E1 N Við innlausn skírteins greiðir ríkissjóður verðbót á höfuðstól, vexti og vaxtavexti í hlutfalli við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á vísitölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skír- teini.s til gjaiddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa íslands reiknar Vísitölu byggingarkostnaðar, og eru núgildandi lög um' hana nr. 25 frá 24. apríl 1957. Spariskírteinin skulu innleyst á nafn- verði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnaðar lækki á tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. *Skírte?ni verða ekki ínnléyst að hluta. 4. GREIN Fastir gjalddagar skírteina eru 10. janúar ár hvert, í fyrsta sinn 10. janúar 1968. Innlausnarfjárhæð skírteinis, sem' er höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verðbótar, skal auglýst í nóvember ár hvert í Lögbirtingabiaði, útvarpi og dagblöðum, í fyrsta sinn fyrir nóvemberlok 1967. Gildir hin auglýsta inn- lausnarfjárhæð óbreytt frá og með 10. janúar þar á eftir allt árið fram að næsta gjalddaga fyrir öll skírteini, sem innleyst eru á tímabilinu. 5. GREIN Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðsfu verðbótar á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til nefndar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki íslands tilnefnir einn nefndarmann, Hæstiréttur annan, er» hagstofuitjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fell- ir fullnaðarúrskurð í ágreiningsmálum, sem hún fær til með- férðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu bygging- arkostnaðar, skal nefnd þessi koma saman og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli tengdar eldri vísitölum. Skulu slíkar ákvarðanir nefndarinnar vera fullnaðarúrskurðir. 6. G R Et N Skfrteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst á samo hátt og sparifé, samkvæmt heimild í 3. gr. nefndro faga um lántöku þessa. 7. GRIIN Innfausn spariskírteina fer fram f Seðfabanka fsfands. Eftir lokagjafddaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engirt verðbót er greidd vegna hækkunar vfsitöfu byggingarkostn- aðör eftir. 10. janúar 1975. 8. GREIN Allar kröfur samkvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekkl lýst hjá Seðlabanka íslands innan 10 ára, talið frá 10. janúar 1975. 9. G R EI N Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðlabanka fsfands. Spariskírteinin verða til sölú í Öllum bönkum, bankaútibúum, Stærrl sparisjóðum og hjá nokkrum yerðbréfasölum f Reykja- vik. Geta væntanlegir kaupendur kéypt skírteini gegn bráða- birgðakvittun frá og með mánudeginum 23. nóvember n.k., •n skírteinin verða tllbúin til afhendingar í Réykjavík frá og með 1. desember n.k. Afhending þeirra utan Reykjavíkur hefst nokkrum dögum seinna eftir því sem samgöngur leyfa. 21. nóvember 1964 SEÐLABANKI ISLANDS f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.