Alþýðublaðið - 24.11.1964, Síða 5
INNLENT LÁN
RÍKISSJÓÐS
ÍSLANDS 1964
■'há;: -hxmm - - x •
'.-.l,' «tÁMrt- jgggg';
Íí-vi.y
SPARISKIRTEINI
ÚTBOÐ
Fjármálaráðherra hefur ákveðið að nofa heimild í lögum frá
20. þ. m. til þess að bjóða út 50 milljón króna innlent lán
ríkissjóðs með eftirfarandi skilmálum:
SKILMÁLAR
1. GREI N
Hlutdeildarbréf lánsins eru nefnd spariskírteini, og eru þau
öll gefin út til handhafa. Þau eru í þremur stærðum, 500, 2.000
og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í
aðalskuldabréfi.
2. G R E I N
Skírteinin eru lengsttil lOára, en frá 10. janúar 1968 er hand-
hafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini innleyst. Vextir
greiðast eftir á og í einu lagi við innlausn. Fyrstu 5 árin nema
þeir 6% á ári, en fara síðan hækkandi, eftir því sem handhafi
dregur innlausn, og verða tæplega 9,2% á ári síðasta ár láns-
tímans. Innlausnarverð skírteinis tvöfaldast á 10 árum og
verður sem hér segir að meðtöldum vöxtum og vaxtavöxtum:
Skírteini 500 kr. 2.000 kr. 10.000 kr.
Eftir 3 ár 596 2.384 11.920
—- 4 ár 631 . 2.524 12.620
—• 5 ár 669 2.676 13.380
— 6 ár 719 2.876 14.380
— 7 ár 777 3.108 15.540
— 8 ár 843 3.372 16.860
— 9 ár 916 3.664 18.320
— 10 ár 1.000 4.000 20.000
Við þetta bætast verðbætur samkvæmt 3. gr.
3. G R E1 N
Við innlausn skírteins greiðir ríkissjóður verðbót á höfuðstól,
vexti og vaxtavexti í hlutfalli við þá hækkun, sem kann að
hafa orðið á vísitölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skír-
teini.s til gjaiddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa íslands reiknar
Vísitölu byggingarkostnaðar, og eru núgildandi lög um' hana nr.
25 frá 24. apríl 1957. Spariskírteinin skulu innleyst á nafn-
verði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnaðar lækki á
tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. *Skírte?ni verða ekki
ínnléyst að hluta.
4. GREIN
Fastir gjalddagar skírteina eru 10. janúar ár hvert, í fyrsta
sinn 10. janúar 1968. Innlausnarfjárhæð skírteinis, sem' er
höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verðbótar, skal auglýst í
nóvember ár hvert í Lögbirtingabiaði, útvarpi og dagblöðum,
í fyrsta sinn fyrir nóvemberlok 1967. Gildir hin auglýsta inn-
lausnarfjárhæð óbreytt frá og með 10. janúar þar á eftir allt
árið fram að næsta gjalddaga fyrir öll skírteini, sem innleyst
eru á tímabilinu.
5. GREIN
Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðsfu
verðbótar á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til
nefndar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki
íslands tilnefnir einn nefndarmann, Hæstiréttur annan, er»
hagstofuitjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fell-
ir fullnaðarúrskurð í ágreiningsmálum, sem hún fær til með-
férðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu bygging-
arkostnaðar, skal nefnd þessi koma saman og ákveða, hvernig
vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli
tengdar eldri vísitölum. Skulu slíkar ákvarðanir nefndarinnar
vera fullnaðarúrskurðir.
6. G R Et N
Skfrteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst
á samo hátt og sparifé, samkvæmt heimild í 3. gr. nefndro
faga um lántöku þessa.
7. GRIIN
Innfausn spariskírteina fer fram f Seðfabanka fsfands. Eftir
lokagjafddaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engirt
verðbót er greidd vegna hækkunar vfsitöfu byggingarkostn-
aðör eftir. 10. janúar 1975.
8. GREIN
Allar kröfur samkvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekkl
lýst hjá Seðlabanka íslands innan 10 ára, talið frá 10. janúar
1975.
9. G R EI N
Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá Seðlabanka fsfands.
Spariskírteinin verða til sölú í Öllum bönkum, bankaútibúum,
Stærrl sparisjóðum og hjá nokkrum yerðbréfasölum f Reykja-
vik. Geta væntanlegir kaupendur kéypt skírteini gegn bráða-
birgðakvittun frá og með mánudeginum 23. nóvember n.k.,
•n skírteinin verða tllbúin til afhendingar í Réykjavík frá og
með 1. desember n.k. Afhending þeirra utan Reykjavíkur hefst
nokkrum dögum seinna eftir því sem samgöngur leyfa.
21. nóvember 1964
SEÐLABANKI
ISLANDS
f