Alþýðublaðið - 24.11.1964, Page 4
Nú býður BALLOGKAF fram stærstu nýjung síðan
kúlupenninn var fundinn upp, en það er blekoddur
úr ryöfríu stáli. Það er 20 sinnuin lengur verið að
smíða þcnnan 'nýja odd en þann gamla, sem gerður
er úr kopar. Þér finniö greinilega muninn, þegar hin
heimsfræga Ballograf-Wolfram kúla snýst í hinum
nýja stáloddi. Hvert Ballograf blekhylki tryggir yður
jafna blekgjöf til síðasta blekdropa. Penninn skrifar
jafnara, lengur og betur.
Ballograf
epoca
KÚLUPENNINN HEÐ BLEKODDiN N Ú8 RYFRÍU STÁLi
Heiidsala: ÞórSur Sveinsson & (o. hi.
Andvígir NLF
Framhald af síðu 1.
halda aftur til Washington þegar
hann hefði rætt við aðra evrópska
leiðtoga eftir fyrstu Washington
heimsókn sína 7. og 8. desember
Wilson svaraði hins vegar ekki
annarri hinna tveggja spurninga,
sem lagðar voru fyrir hánn í land-
varnaumræðunum í Neðri málstof
unni: Hvort stjórnin mundi leggja
niður sjálfstæðan kjarnorkuher-
afla Breta og hvað stjórnin hefði
hugsað sér í staðinn fyrir MFL.
Forsætisráðherrann kvaðst ekki
geta svarað þessu fyrr en hann
hefði rætt við Johnson forseta í
Washington.
Leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
Sir Alee Douglas-Home kvaðst
mundu bera fram tillögu um van-
traust á stjórnina ef hún sýndi
merki þess að hún væri fús til að
afsala sér kjarnorkuheraflanum.
Hann sagði, að líf og dauði þjóðar
innar væri undir þessu komið.
Fjölskyldu-
fargjöld FÍ
Framhald af 16. síðu
um flugleiðum þegar hjón eða
fleiri fjölskyldumeðlimir ferðast
saman.
Þessi nýju fjölskyldufargjöld,
sem verða í fyrsta sinn í gildi
næsta vetur, erd með svipuðu
sniði og fjölskyldufargjöld þau
sem nú gilda á flugleiðum félags
ins innanlands. Fyrirkomulag er
í stórum dráttum þannig, að for-
svarsmaður fjölskyldunnar greiðir
fullt gjald, en síðan greiðir hver
fjölskyldumeðlimur (maki og börn
að 26 ára aldri) aðeins hálft far
gjáld.
Var- og haustfargjöldin, sem
Flugfélag íslands fékk samþykkt
á fargjaldaráðstefnu I.A.T.A. fél
aganna í Chandler, Arisona fyrir
tveim árum síðan og sem síðan
hafa gert fjölmörgum íslending
um kleyft að njóta sumarauka
í útlöndum, verða í gildi áfram,
■ en með smávægilegum breyting
um ágildistíma. Auk þeirra borga
erlendis, sem vor- og haustfar-
gjöldin giitu til, bætast nú Berlín
og Frankfurt við.
Islendingum sem erlendis dvelja
mun eins og að undanförnu verða
gefinn kostur á ódýru ferðalagi
heim um jólin, því jólafargjöld
félagsins verða áfram í gildi og
munu um jólin 1965 einnig gilda
frá Norðurlöndum, en þaðan er
nú um fjölskyldufargjöld að ræða.
Almenn fargjöld milli íslands
og annarra Evrópulanda haldast
óbreytt með þeirri undantekningu
-að flugvallarskáttur að upphæð
7 sh. 6d. sem farþegar hafa áð
undanförnu greitt við brottför frá
Bretlandi verður innifalinn í far
gjöldunum millj íslands og Bret
lands. Er hér um að ræða skipu
lagsbreytingar sem koma tirfram
kvæmda í Bretlandi á næsta ári.
Fargjöld milli íslands og 'ann
ara Evrópulanda eru nú þau lægstu
í Evrópu miðað við flogna vega
lengd og er það árangur af ára
löngu starfi Flugfélags íslands
innan Alþjóðasambands flugfél-
aga, I.A.T.A.
Fyrir nokkrum árum fékkst
samþykki fargjaldaráðstefnunnar
fyrir sérfargjöldum frá Bretlandi
í því augnamiði að örva Breta til
íslandsferða. Þetta gaf góða raun.
Allmargir brezkir ferðamenn hafa
'lagt hingað leið sína og standa
vonir til að svo ve.rði áfram.
Á fargjaldaráðstefnunni í Aþ-
enu fékk Flugfélagið því fram-
gengt, að svipuð sérfargjöld
mættu gilda frá Norðurlöndum
og Þýzkalandi til íslands vissan
tíma ársins.
IT-fargjöld, þ.e. fargjöld sem
notuð eru til að búa til vinsælar
og ódýrar ferðir þar sem allt er
keypt í einu, flugfar, dvöl á hót-
eli, máltíðir, ferðir á landi o.s.
irnar njóta mikilla vinsælda, enda
eru þær mjög ódýrar og hentugar.
Að þessu sinni var nýjum stöðum
bætt við, t.d. Kanaríeyjum, Mad
eira, Júgóslavía og Norður-Afríku.
Eru þá möguleikar til IT-ferða
fleiri en nokkru sinni fyrr, eða
til 53 staða alls.
Einanfpnargler
Framleitt einungls Úr irralt
rleri. — 8 ára ábyrgð.
Pantlð tímanlega
Skúlagötu 57 _ Sími 23200.
Korkiðjan h.f.
Flugfélag íslands hefir nú uHÍ
fjórtán ára skeið starfað í Al.
þjóðasamtökum flugfélaga, I.A.-
T.A. og þar með haft áhrif á
stefnu mála varðandi fargjöld
milli íslands og Evrópu, sem eru
þau lægstu í álfunni, en 'auk þe$s
tryggt að ísland og íslenzk mál-
efni væru ekki sniðgengin í al-
þjóðlegu samstarfi flugfélaganna*
ÁSVALLAGÖTD 69.
SÍMI 2 15 15 og 2 15 16.
KVÖLDSÍMI 3 36 87.
TIL SÖLU:
2ja herbergja íbúð á 1. hæð 1
Hlíðahverfi. Herbergi í risl
fylgir, með sér snyrtingu. GótJ
ur staður.
3ja herbergja íbúð í nýlegu sam
býlishúsi í Vesturbænum.
4ra herbergja nýleg íbúð í saHI
býlishúsi rétt við Hagatorg.
Glæsilegur staður.
5 herbergja jarðhæð á. Seltjam*
arnesi. Sjávarsýn. Allt sér.
Fullgerð stóríbúð í austurbæn-
um. 3—4 svefnherbergi, stór
stofa ásamt, eldhúsi og þvotta
húsi á hæðinni, Hitaveita.
FOKHELT einbýlishús á Flötun
um í Garðahreppi. 4 svefnher*
bergi verða í húsinu, sem er
óvenjuvel skipulagt, Stærð: ca,
180 ferm. með bílskúr.
TIL SÖLU í GAMLA BÆNUM.
5 herbergja íbúð, ásamt Vz kjall-
ara (tveggja herbergja íbúð)
við Guðrúnargötu er til sölu.
Hagstætt verð.
Munið að elgnaskiptl eru eft
möguleg hjá okkur.
Næg bíiastæði. Bílaþjónusta
við kaupendur.
i frv., verða áfram í gildi. IT-ferð
4 24. nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ