BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Síða 5
Allir ökumenn, sem koma
skyndilega í þéttbýli úr langri öku-
ferð utan þess, kannast við, hve lús-
hægt þeim finnst þeir fara er þeir
eru komnir á leyfilegan hraða þétt-
býlisins. Nú finnst þeim 35 til 45
km/t hraði eins og kyrrstaða en voru
ósköp ánægðir með þann hraða er
þeir áður lögðu af stað úr þéttbýl-
inu út á þjóðvegina. Svona er hraða-
blindan.
Hraðablinda getur verið hættu-
leg. Vegna áhrifa hennar getur svo
farið að menn „gleymi" að minnka
hraðann í tæka tíð, er vegur breytist
eða er komið er í þéttbýli. Af þessu
getur leitt, að menn taka þá fyrst
eftir hættunni er of seint er að verða
hennar var til að afstýra tjóni eða
slysi.
Vegfesta
Þetta orð hefur ekki verið notað
áður í íslenzku svo mér sé kunnugt
um. En mér finnst það vel notandi,
stutt og laggott, lýsa einmitt því,
sem um ræðir. Það verður því notað
hér áfram er þess gerist þörf. Veg-
festan er fyrst og fremst komin
undir núningsmótstöðu barðanna við
veginn. Hún er aftur mjög misjöfn
eftir veðri og árstíðum og því, hvern-
ig vegurinn er. Allir þekkja hálkuna.
Laus vegur er miklu varasamari en
þéttur og góður vegur með malbik-
uðu eða steyptu yfirborði. Á vetr-
um geta þó slíkir vegir á stundum
orðið þeir hættulegustu vegna mik-
illar hálku.
Núningsmótstaða barða við veg
er táknuð með tölu, sem alltaf er
minni en 1. Segjum á þurrum, stein-
steyptum vegi sé hún 0,7. Á ísi lögð-
um vegi getur hún farið niður í 0,1
til 0,2 og á blautum ísi lögðum vegi
niður í 0,05, eða orðið 14 sinnum
minni en við beztu aðstæður. Það
munar um minna, enda sýna hálku-
tjónin - og slysin það.
Sjónskynjun og aðgát
Til þess að aka vel, verða menn
að sjá vel. Sjónskerpa og sjónvídd
þurfa að vera eðlileg. Djúp- eða
þrívíddarsýnin er einnig mikið atr-
iði, því ökumenn þurfa að geta á-
ætlað fjarlægðir í umferðinni nokk-
urnvegin rétt.
Að spara benzínið
Við skulum ekki fara mikið út í
þetta hér, enda sennilega þýðingar-
lítið að predika slíkt fyrir landanum.
Margir ökumenn, t. d. í Skandinavíu
hafa þann sið að drepa á hreyflin-
um niður í móti til að spara benzín-
ið. Ekki myndi ég ráðleggja neinum
það, hemlarnir gætu bilað. En eitt
er það þó, sem ég vil minnast á hér
í þessu sambandi. Á öllum, eða flest-
um nýtízku bílum er smádæla í
sjálfum blöndungnum. Ef þú ert
alltaf í tíma og ótíma að stíga á
benzínið, getur þessi litla dæla orðið
BFÖ-BLAÐIÐ
5