Skólablaðið - 01.08.1914, Blaðsíða 1
SKÓLABLAÐIÐ
--SSSSS-
ÁTTUNDI ÁROANGUR
1914 ( Reykjavík, I. ágúst. j 8. tbl.
25 ára afmæli hins fsl. kennarafélags.
þegar hið íslenska kennarafélag var tvítugt, var nokk
uð ítarlega greint frá stofnun þess og starfsemi þau tuttugu
árin og má vísa til 8.-10. tbl. Skólablaðsins 1909 um það.
þegar égnú vil minnast nokkuð þessa félagsokkar á 25 ára
afmæli þess, verðursumt af því, sem eg segi endurtekning af
því, sem þar var sagt en fljótt skal yfir sögu farið.
Hvernig hér var umhorfs Með þjóðhátíðinni og stjórnar-
áratuginn fyrir stofnun skránni lifnaði nýr gróður hér í
hins tsl. kennarafélags, landj á ýmsum gviðum< þetta
kom einnig fram í lýðmentuninni. Örfáir barnaskólar voru að
vísu orðnir til í kaupstöðum og verslunarstöðum og sjó-
þorpum. En flestir bjuggu að heimilisfræðslunni einni.
Enginn barna fræðsla var lögboðin nema í lestri og kristn-
um fræðum, og engin alþýðukennarastétt var til. Og svo
stóð um barnafræðsluna til 1880, að Jón ritari kom fram
lögum um kenslu barna í skrift ug reikningi. þá kom það
þegar í ljós, að yfirborðið af heimilunum gat ekki fullnægt
þeirri kröfu að kenna börnum þetta; þau neyddust til að
útvega sér menn til að kenna, og þá fer þeim óðum að
fjölga, sem gefa sig við barnakenslu.
Um þessar mundir rísa þar að auki uþp skólar fyrir
konur og karla: Möðruvallaskólinn, Flensborgarskólinn,
kvennaskólar og búnaðarskólar. Kennurunum fjölgar því
óðum, en lítið vissu þeir hver af öðrum; milli þeirra var
enqin samvinna. og eiginlega ekkert andlegt samband, því