Skólablaðið - 01.08.1914, Blaðsíða 15
SKOLABLAÐIÐ
127
Spurnmgar og svör.
1. tr þafi einungis kaup kennara — eftirlitsmanns — sem 8.
gr. fræðslulaganna og 4. gr. fræðslusam. frumvarpssins sem
víðast mun hafa verið tekin upp óbreytt — segir að veit-
ast skuli af sveitarsjóði og vera börnunum ókeypis?
2. Hvað er farskóli? er það aðeins citt fyrirkomulag, eða get-
ur verið margvíslegt ?
3. Er það vítalaust að lögreglusíjóri sveitar legst á mðti störf-
um fræðslunefndar o; framkvæmd fræðslulaganna.
Formaður frœðslunefndar,
Svör:
1. Samkv. 8 gr. fræðsluluganna á allur kostnaður til barna-
fræðsunnar að greiðast úr sveitarsjóði. Fræðslusamþykt
getur því ekki gert neiua undantekningu fráþví.
2. Farskóli getur verið með ýmsu móti: fleiri eða færri kenn-
arar, lleiri eða færri kenslustaðir, lengri eða skemri kenslu-
lími, þó ekki skemri en 8 vikur á vetri.
í sama hreppi (eða fræðsluhéraði) geta verið 2 farskólar ef:
a. kennararnir eru tveir
b. hvor þeirra kennir í 6 mánuði á veíri,
c. hvor um s:g hefir til afnota lögboðin farskóla-kensluáhöld
(fræðsluhéraðið á tvenn fullkomin áhöld fyrir farskóla.
3. Þessari spurningu fær form. fræðslunefndar svarað með því
að kæra lögreglusijórann jyrir stfórnarráðinu.
Háttvirta »SkólabIað«.
1. Qetur fræðslunefnd heimtað það barn á skóla sem hefir
svo góða fræðslu heima, að skólagengnu börnin taka því
ekki fram ?
2. Er ekki sarna, hver hinna skipuðu prófdómara prófar barnið ef
það á annað borð lekur próf?
3. Er nauðsynlegt að krefjast þess, að barnið sé flutt crfiða og
langa leið til prófstaðar, þegar staðhættir eru þannig, að næsti
próft'undur er ekki fjær eu 5 til 10 mínútna göngu í burtu ?
4. Eg hefi áformað0að segja skilið við það fræðsluhérað sem eg
nú er í — likt og til forna voru leyst sóknarbönd. Hvaða skil-
yrði eru mér sett ?
20. júli 1914.
Heima-kennari,
1. Fræðslunefnd ræður því, hverjum hún veitir undanþágu
(fræðslulögin 6. gr. og niðurlag 14. gr.).