Skólablaðið - 01.08.1914, Side 3

Skólablaðið - 01.08.1914, Side 3
SKOLABLAÐIÐ 115 marki að því er mér virðist. Hefði gengið greiðlega með stofnun og viðhald smáfélaganna, var svo til ætlast, að hið ísl. kennarafélag legðist niður, og kæmi i þess stað allsherj- ar sambandsþing fyrir smáfélögin. Hefði mátt vænta þess, að á þessu aldarfjórðungs afmæli kennarafélagsins yrði smá- félögunum fjölgað svo, að það gæti hallað sér rólega út af til eilífs svefns. En það er öðru nær en svo sé. það verður enn að lifa og starfa þangað til smáfélögin eru orð- in langtun fleiri og öflugri. Ekki treysti félagið sér að svo stöddu til að gefa út kennaramálgagn. En til þess að gera þó eitthvað í þá átt keyfti það „Timaut um uppeldi og mentamál“, sem áður er á minst að byrjað var að halda úti árið áður, til út- býtingar meðal félagsmanna. Eftir að það rit hætti að koma út, var á fundi kennarafélagsins samþykt að kaupa „Heim- ilisb!aðið“ handa hverjum félagsmanni. Nú er hlé á útgáfu blaðs. Um áramótín 1907 tóku kennarar Flensborgarskólans að gefa út nýtt blað: Skólablaðið, en á ársfundi kennara- félagsins næsta ár var samþykt að útgefendur afhentu kennarafélaginu blaðið til eignar og umrá ða og var það gert 27. des. það ár. þá átti félagið áiltiegan sjóð, en um áramótin 1910 var sá sjóður að mestu leyti eyddur til útgáfu blaðsins, og varð það þá að ráði í stjórn félagsins að hætta útgáfu blaðsins að sinni. Síðan hefur blað- inu þó verið haldið úti eins og menn vita, en með þannig löguðum stuðningi af félagsins hálfu seinustu árin að það kaupir fullu verði eitt eintak þess handa hverjum skilvísum félagsmanni. Áður hafði félagið styrkt blaðið með 150 kr. framlagi. 4. Kennaramentunin er næsta málið, sem eg vil nefna Eitt af fyrstu málunum, sem rædd voru á félagsfundum var kennaramentunin. Tillaga um að stofna til sérmentunar- kennurum hafði að vísu verið flutt á Alþingi áður, því að á þingi 1887 lá fyrir og var ail mikið rætt frumvarp um alþýðumentun, all ítarlegt, sem meðal annars gerði ráð fyr- r sérmentun handa barnakennurum. Og þó að undarlegt

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.