Skólablaðið - 01.08.1914, Side 7

Skólablaðið - 01.08.1914, Side 7
SKOLABLAÐID H9_ samhljóðanda skal tvöfalda samhljóðandann í fyrri liðn umsamkvæmt uppruna (t., d. mannfall, fjallgöngur). 4. Skrifa alstaðar f en ekki p á undan 1.1., d. oft, skifta, keifti (ekki opt, skipta, keipti). En ekki hélt kennarafélagið þessu máli til streitu; aftur á móti tóku einstakir menn upp þessa síafsetningu. Má sjálfsagt segja, að félagið hafi iátið málið að ófyrirsynju niður falla. Hefði það haldið fast á þessum tillögum, væru ekki þau vandræði í skólum vorum út af stafsetningarruglingnum, sem allir kennarar stynja nú undir og engin bót fæst enn ráðin á. 5. júní 1913 samþykti fundur í kennarafélaginu þá tillögu að aðhyllast Blaðamannaréttntunina svo kölluðu með þeim breytingum, að skrifa alstaðar s fyrir z, og beindi þeirri áskorun til fræðslumálastjórans að híutast til um að sú stafsenting yrði lögskipuð í öllum lýðskólum landsins. Af því stutta yfirliti yfir starfsemi Kennaraiélags Islands, sem hér er sagt, má sjá, að það hefur komið nokkuð víða við, og eins og vænta mátti hreyftýmsu til bóta um fræðslu- og uppeldismál landsins þann aldarfjórðung sem það hefur lifað. Má því kalla það góðu heilli stofnað, þó að það hafi ekki verið fætt undir þeirri lukkustjörnu að koma fram öllum sínum áhugamálum. Flestir munu félagsmenn hafa orðið um 100, eins og þeir eru nú — að nafninu. Eg segi að nafninu, því að þeir sem aldrei leggja orð til félagsmála og aldrei eyri í félags- sjóð, eru dauðar greinar á félagsmeiðinum. þegar litið er yfir æfiferil félagsins þykir mér sem fyrri hluti æfinnar hafi verið fjörugri og glæsilegri en síðari hlut- inn í stað þess að vænta mátti að félaginu ykist megn og þroski með árunum. Og síðustu 3 árin hefir félagið verið of aðgerðarlítið. Félagsmenn hafa ekki fengist til að koma á fundi, og þó að merkra mála hafi veriþ minst á þeim, er eins og einhver deyfð hafi verið yfir umræðum. Eg hefi ekki getað að því gert, að mér hefir stundum fundist kenn- ararnir eiga ekkert áhugamál, og ekki vita af því, að þeir eru stétt í þessu landi, og bresta skilning á því, að kenn-

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.