Skólablaðið - 01.08.1914, Qupperneq 16
128
SKOLABL.AÐIÐ
2. Prófdómarar eru skipaðir fyrir ákveðin svæði og eiga að
dæma um frammistöðu barna á því svæði, en ekki annara.
3. Þess má krefjast að barnið taki prófið þar, sem það er að
réttu lagi prófskylt. En svo getur borið undir að ástæða geti
verið til að bregða út af því í einstaka tilfelli, og getur þá
væntanlega orðið samkomulag um það.
4. Heimilt er yður að láta kenna börnum yðar, hvar sem þér
viljið, en skyldur eruð þér eftir sem áður að greiða gjöld
yðar til barnafræðslu í fræðsluliéraðinu, nema svo sé að þér
látið börnin ganga í skóla í öðru héraði og greiðið þar
lögboðin gjöld. (Sbr, 7. og 8. gr. fræðslul.)
Kennara
vantar í Borgarhreppsfræðsluhérað á Mýrum. — Skólinn
byrjar 15. nóv. og hættir 15. apn'l ár hvert.
Kent er á tveim stöðum : Brennistöðum og Svignaskarði,
sinn daginn á hvorum stað Milli kenslustaðanna eru 10
km. (upphleyptur vegur). Skólinn er farskóli. Laun sam-
kvæmt lögum.
Umsókn sendist fræðslunefnd fyrir lok ágústmánaðar þ.á.
Laus kennarastaða.
2. kennarastaðan við barnaskólann á Sauðárkróki er
laus. Laun samkvæmt fræðslulögum. Umsóknir séu komn-
ar til skólanefndar fyrir 1. sept.
Kennarastaða.
Kennara vantar við unglingaskólann í Borgarnesi, næst-
komandi vetur. Skólinn starfar 4 mánuði, — 1. nóv. til 1.
mars. —
Jafnhliða unglingaskólakenslunni, og eftir að henni er
lokið — til 1. maí — taki sami maður þátt í kenslu við
barnaskólann.
Sérstök áhersla lögð á söngkenslu oa tungumál.
Umsóknir og launatilboð sendist undirrituðum fyrir 1.
sept n.k., sem gefur nánari upplýsingar.
Fyrir hönd skólanefndarinnar í Borgarnesi.
Sig, B, Runólfsson.
Útgefandi: Jón Þðrarinsson.
Prentsmiðja D. 'Östlunds.