Skólablaðið - 01.12.1915, Blaðsíða 3
SKÓLABLAÐIÐ
179
sveit var skyld aö nota þessa menn. Hins vegar átti aö nota
sér skólafýkn unga fólksins og fá þaö til aö ganga í skólann.
Ef hinir útskrifuöu kennarar gætu fengiö eitthvaö aö gera viö
kenslu að afloknu prófi, þá væri þaö gott. Og þótt þeir hættu
aö kenna eftir eitt eða tvö ár, kæmu nýir menn í staðinn, yrðu
jafnlengi og svo tæki maður við af manni. En þótt kennararnir
hættu fljótt kenslunni, eða hinir útskrifuðu yrðu aldrei kenn-
arar, væri lítill skaði skeður. Þeir væru þá að minsta kosti
eins konar gagnfræðingar. Af þessu, sem ekki verður hrakið
með sannindum, má sjá stofnun kennaraskólans og fyrirkomu-
lag hans og fræðslulaganna var í mörgum atriðum s t e f n u-
laust verk, eins konar „haltu-mér-sleptu-mér“-ráðstöfun.
Til dæmis er óskiljanlegt, hvers vegna var farið að stofna kenn-
araskóla, úr þvi að allir menn gátu verið kennarar, að minsta
kosti a 11 i r, s e m r e k i ð h ö f ð u n e f i ð i n n í e i n-
hvern skóla.
En úr þvi minst er á þetta mál, verður ekki hjá því komist
að ráðast á tvær undirstöðuvillur i þessari mentamálaráðstöfun
þings og stjórnar. Annað atriðið er að hafa skólann í
R v í k. Hitt' er að h a f a námstímann ó h æ f i 1 e g a
s t u 11 a n. Menn deildu á þinginu mjög mikið um staðinn,
en ekki það sem átti að deila um: kaupstað eða sveit, heldur
um Rvík og Hafnarfjörð. Kennaraskólinn átti skilyrðislaust að
vera í sveit, til þess að veran þar gæti verið ódýr, svo að
námstíminn mætti vera langur, án þess að íþyngja of mjög
með kostnaði. Það var ekki nema einn þingmaður, sr. Sig-
urður í Vigur, sem skildi þetta atriði, eftir því sem séð verður
af þingtíðindunum. Reynslan var þó búin að sýna, t. d. á
Möðruvöllum, að dvalarkostnaðurinn var helmingi minni í sveit
en í Rvík, fyrir jafnlangan tíma. Og sama sýnir reynslan ár
eftir ár í hverjum einasta sveitaskóla, t. d. Núpi, Hólum,
Hvanneyri. Á þessum stöðum leika menn sér að því að lifa
góðu lífi í sex mánuði fyrir 200 kr., en þurfa 400 kr. til að
standast jafnlanga dvöl í Rvík. Menn héldu að dvölin í Rvík
hefði sérstaklega mentandi áhrif, en mjög lítið er úr þeim ger-
andi, allrahelst fyrir þá sem vegna fátæktar verða að spara
hvern eyri og hafa eigi tæki til að kynnast, nema af ytri sjón,
því fáa, sem er eftirsóknarvert í andlegu lífi bæja-rins, og mý-
margir gallar vega upp á móti. En svo mikið kapp var lagt