Alþýðublaðið - 06.01.1965, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 06.01.1965, Blaðsíða 8
VIÐ höfum sennilega öll heyrt minnst á frostaveturinn mikia 1918 — 1919 og hann kemur ósjálfrátt upp í hugann( þegar við nú upplifum vetur sem er bæði kaldari og snjóþyngri en við eigum að venjast í seinni tíð. Vel getur svo farið að annar eins vetur, hvað veðráttu snertir, eigi eftir að koma yfir okkur á næstu árum, þá vonandi fylgi honum ekki þvílík piága, sem spánska veikin var 1918. Með þetta í huga hringdum við til nokkurra þeirra þjónustúfyrir tækja borgarinnar, sem fjalla um líkamlega, og þá um leið and- lega, velferð okkar Reykvíkinga, svo sem Vatnsveituna, Hitaveit- una og Raforkumála. krifstofuna. Við ræddum við forstöðumenn þessara stofnana og spurðum þá hvernig þeir væru undir það bún- ir, að mæta miklum frostavetri. Svöir þeirra fara hér á eftir( en fyirst skulum við líta á ástandið eins og það var veturinn 1918. Sagnir ganga um ævintýralegar íslagnir á Faxaflóa og Breiða- firði. Menn áttu til dæmis að hafa farið á sleðum þvert yfir Breiða- fjörð frá Snæfellsnesi yfir á Barðaströnd. Sundin við Reykja- vík voru öll á í: um og ekki skorti nema herzlumuninn að hægt væri að ganga beinustu leið upp á Akra nes. Um ástandið í húsum í Reykja vík höfum við eftirfarandi heim- ild úr bók Ágústs Jósefssonar fyrrv. heiibrigðisfulltrúa, „Minn- ingar og svipmyndir úr Reykja- vík“. Þar segir svo í kaflanum, sem fjallar um spönsku veiklna: „Þennan vetur áttum við hjón- in heima í hú.i mínu nr. 34 við Grettisgötu. í íbúðinni, sem var í rishæðinni( voru fremur léleg eldfæri og vegna kolaskorts urð- um við að mestu að notast við steinoliuofna, en þorðum þó ekki að láta þá loga á næturnar sök- um eldhættu. Til þess að verjast kuldanum breiddum við ýmsar yfirhafnir ofan á sængurfatnað- inn til þess að halda á okkur hita. Mæðgurnar vöfðu sjailklútum um höfuð sér og' herðar, en við feðg- arnir sváfum með trefil um háls- inn og kuldahúfu á höfði. Súð og veggir hrímuðu um nætur, en allt rann út í slaga að deginum til vegna hitans frá eldfærunum. Svona var aðbúðin hjá okkur og svona var víða ástatt í byrjun veikinnar. Jafnvel í bezt byggðu húsunum var kalt og ónotalegt, vegna þess að enginn maður fékkst til þess að kynda miðstöðvarkatl- ana. En ömurlega~tar voru þó aff- stæðumr hiá því fólki, sem bjó í gömnu kjallaraíbúðunum víðs vegar um bæinn, því þar voru bæði veggir og gólf rennblaut og svellaði yfir allt í mestu frostun um“. Þegar maffur les svona lýsingu á hitunaraðstæðum fólks í Reykja vík fyrir rúmum 46 árum, vepður manni hugsað til þeimar heims- frægu hitaveitu, sem báffum verð ur ko’T.jn í öll hús í Rpvlo™ík. Hitaveitustjóri, Jóhannes Zöega, svaraffi spurningu okkar eitthvað á þessa leið: — Eins og ^r, erum við ekki sér lega vel undir það búnir að mæta miklum frostavetri. Enn »r ekki Ágúst Jósefsson búið að virkja allar þær holur sem við höfum umráð yfir, vegna þess aff dælur og annað tilheyrandi vantar. Næsta vetur ætti málið að líta eitthvað betur út. Hitaveitukerfið er miðað við að halda jöfnum og fullum innanhúss hita i 6 stiga frosti, en það verð ur tjaldan meira hér í Reykjavík. í ráði er að byggja stærri geyma og verður þá hægt að komast yfir 12 stiga frostkast í 2—3 daga án þess að slaka á. Nú er reiknað með, að fyrir hver 2 stig sem hit inn fellur úti, fal'li hiti í húsi um 1 stig með sömu kyndingu. Innan hússhiti er nú um 22—23 stig, þannig að i lú stiga frosti fellur hiti í húsi niður í 20 — 21 stig. í 14 stiga frosti niður í >18 — 19 stig o. s. frv. Eins og nú standa sakir veldur vanstilling á kerfinu því, að heita vatnið hverfur á vis um svæðum þegar álagið eykst og kemur það jafnan niður á sömu rvæðunum. Unnið er að því að kippa þessu í lag, en það er ma’-gra mánaða verk ef vel á aff vera. Þetta sagði hitaveitustjóri. Nú höfum við ekki í fljótu bragði köm ist yfir heimildir fyrir ástandinu í vatnsveitumálum 1918, en hætt er við að það hafi ekki verið beys- ið í frostunum. Vatnsveitustjóri, Þóroddur Th. Sigurðsson, svaraði spurningunni einhvern veginn rvona: — Þessu er erfitt að svara í fljótu bragði. Þetta getur oltið á því hvernig sumarið næst á und an hefur verið. Langir frostkafl- ar hafa yfirleitt ekki haft mikil áhrif á vatnsmagnið í brunnunum, en vandræði gætu helzt skapast vegna frosinna heimæða og hús- lagna og sírennslis af þeim sök- um, Þá myndu allar framkvæmdir falla niður aff mestu leyti. Það sem helzt gæti haft áhrif á rekstur okkar, væri ef rafmagn ið brygðist, en við höfum engar vararafstöðvar til að knýja dælur okkar. Svo mörg eru þau orð, og þá liggur beinast við að tala við Jak- ob Gíslason raforkumálastjóra. Hann segir: JÓHANNES ZOEGA, hitaveitustjóri. ÞÓRODDUR TH. SIGURÐSSON, vatnsveitustjóri 3 6. janúar 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ Snjór og illviðri í Rey — Við erum alltaf viðbúnir hörff' um vetri, en mikil frost ;er ekki það versta, sem fyrir okkur getur komið. Langvarandi frostúm fylgja venjulega stillur og þá leggur árnar og rennsli í þeim verður hægt, en stöðugt og ttrtifi*- analítið. Hinsvegar er vatnsskort- urinn versti óvinur okkar og hann getur orðið af ýmsum öðrum or- sökum, sem of langt yrði upp að UiKOB GÍSLASOS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.