Alþýðublaðið - 01.06.1965, Qupperneq 14
Vietcong
( DAG ER þriSjudagur 1. júnf. Tungl hæst á lofti. ÁriS 1931 bar fyrsta
júní upp á mánudag og þar gat aS líta m.a. í AlþýSublaSinu. StækkaSar
landslagsmyndir úr Commander-cigarettupökkunum eru komnar aftur. Tó-
iiaksverzl. íslands h.f. Yfirlýsing. AS gefnu tilefni lýsi ég því hér meS
Iffir, aS ég fér úr þjónustu Bergs Jónssonar sýslumanns af eigin ósk, og
aS þaS er algjörlega rangt aS hann hafi sagt mér upp atvinnunni. Reykja
vík 30/5 ‘31. Ragnar Kristjánsson.
veðrið
Suðvestan gola eða kaldi, súld
eða rigning-. í gær var vestan átt
á landinu, sums staðar súld. í
Reykjavík var norðvestan kul, tíu
stiga liiti, alskýjað.
Sjomannadagur
Framh. af bls. 3.
náttúruauðlindum en þeim sem í
hafinu felast. ,.Ef fiskimiðin bregð
ast, ef sjómennirnir bregðast, fær
íslenzkt þjóðfélag ekki staðizt til
lengdar,” sagði ráðherrann. Enn-
fremur minnti hann á, að það væri
verkefni framtíðarinnar og líðandi
siundar að skapa skilning með öðr
um þjóðum fyrir nauðsyn á vernd
un fiskimiðanna við ísland. Að
lokum sagði hann, að á sjómanna-
daginn þakkaði íslenzka þjóðin sjó-
mönnum sinum störf þeirra og
samgleddist þeim á hátíðisdegi
þeirra.
í ávarpi sínu fjallaði Jón Sig-
Urðsson einkum um afkomu tog-
aranna og skipulagsmál sjómanna
samtakanna. Hann lagði ríka á-
herzlu á að togararnir væru enn
sem fyrr nauðsynleg tæki til hrá-
efnasköpunar. Aldrei kæmi til
mála að lengja vinnutimann á tog-
urunum, þó að ýmsum virðist það
eina ráðið til úrbóta. Vel væri
hægt að komast af með 26 manna
áhöfn og til þess að fá góða menn
út á skipin, yrði að bæta kjör
togarasjómanna.
Um skipulagsmálin sagði Jón,
að nú væri svo komið, að sjó-
menn gengju til samninga í mörgu
lagi, en útgerðarmenn mættu til
samninga sem ein heild. Samein-
ing sjómannastéttarinnar í ein
lieildarsamtök myndi á allan hátt
styrkja aðstöðu hennar í samning
um við vinnuveitendur og einnig
gagnvart ríkisvaldinu, en' sjó-
mannastéttin væri sú sem einna
mest ætti undir löggjafann að
sækja.
„Á þessum sjdmannadegi skul-
um við lieita því að vinna ötullega
að því að endurskipuleggja og
styrkja samtök okkar sem bezt,”
sagði Jón Sigurðsson að lokum.
Loks söng Karlakór Eeykjavík-
ur nokkur lög undir stjórn Páis
P. Páissonar.
Bezta tímann í kappróðrinum,
sem fór fram í Reykjavíkurhöfn
að loknum hátíðahöldunum á
Austurvelli, fékk róðrarsveit björg
unarbátsins Gisla J. Johnsen. —
Sveit Ólafs Járnhauss HV 1 sigr-
aði í sínum riðli við mikinn fögn
uð áhorfenda.
Þrír aldraðir sjómenn voru
heiðraðir að þessu sinni, þeir Jó-
hann Björnsson vélstjóri, Guðni
Pálsson skipstjóri og Sigurjón
Júlíusson háseti. Ekki var ástæða
til að veita sérstök afreksbjörg-
unarverðlaun að þessu sinni.
Framhald af síðu 3.
staðið í tvo sólarhringa. Mikið
mannfall hefur orðið í liði beggja.
Stjórnarhermennirnir stóðu aug-
sýnilega verr að vígi þegar banda-
rísku flugvélamar komu á vett-
vang og létu til skarar skriða gegn
f j andmönnunum.
Herdeild, sem senda átti til
aðstoðar í gær, var sundrað áður
en liún kom til orrustusvæðisins.
Bráðabirgðatölur sína, að um 400
menn hafa fallið í liði stjórnar-
innar. Sennilega á eftir að koma
á daginn að enn fleiri hafi fallið.
Bandarískar flugvélar rákust á
fjórar norður-vietnamiskar MIG
orrustuþotur er þær gerðu árás á
svæði eitt um 72 km. sunnan við
Hanoi, en þoturnar héldu norður
á bóginn án þess að leggja til
atlögu. Bandarískar flugvélar vörp
uðu niður 40 lestum af sprengj-
um á þetta svæði, og sjö bygging-
ar eyðilögðust en þrjár löskuðust.
Aðrar bandarískar flugvélar
réðust á önnur skotmörk, m. a.
mikilvæga vegabrú 112 km. sunn-
an við Hanoi. Að sögn fréttastof-
unnar Nýja Kína var ein banda-
rísk flugvél skotin niður yfir Than
Hoa héraði í Norður-Vietnam í
dag.
Samningarnir
Framh. af 1. síðu
Þótt samningar renni út 5. júní
næstkomandi, hefur enn ekkert fé-
lag boðað vinnustöðvun frá þeim
tíma. en vinnustöðvun verður lög
um samkvæmt að boða með sjö
daga fyrirvara. Veitingaþjónar
hafa þó boðað vinnustöðvun frá
og með föstudeginum 4. júní, en
deila þeirra er ekki í beinum
tengslum við þá samninga, sem
nú eiga sér stað.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna
á Norður og Austurlandi hafa ver-
ið á stöðugum fundum með sínum
viðsemjendum og hófst sáttafund
ur hjá þeim klukkan 20,30 í gær
kvöldi.
ooooooock>ooooooooooooo<x>'<xxxx>ooooooooooooooooock>
21.00 Wiðjudagsleikritið „Hýrrans hjörð“ efti|r
Gunnar M. Magnúss
Leikstjóri: Ævar R. Kvaran.
Fimmti þáttur: Þjófaleit í Bólu.
Hjálmarskáld Róbert Arnfinnsso
Guðný kona hans Helga Bachmann
Hjalti son-ur þeirra, 8 ára Ævar Kvaran yn.
Ólafur sonur þeirra, 8 ára Lárus Sighvatss.
Sigríður dóttir þeirra, 4 ára Ragnh. Steind.
útvarpið
Þriðjudagur 1. júnl
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
15.00 Miðdegisútvarp.
16.30 Síðdegisútvarp.
17.00 Fréttir — Endurtekið tónlistarefni.
18.30 Harmonikulög.
18.50 Tilkynningar.
19.20 Veðurfregnir. — Fréttir.
20.00 Lýðræðishugsjónin sem stjórnfræðikenning
Hannes Jónsson félagsfræðingur flytur ann
að erindi sitt um þetta efni,
20.25 Pósthólf 120
Lárus Halldórson les úr bréfum frá hlust-
endum.
20.40 Tvö tónverk eftir Jón Leifs:
Eiríkur hreppstjóri
Pétur hreppstjóri
Sveinn bóndi
Jónatan bóndi
Geir
Grímur
Leitarmaður
Valdimar Helgason
Flosi Ólafsson
Þorgrímur Einarsson
Jón Aðils
Sigurður Eyjólfsson
Jón Júlíusson
Gunnar Gunnarssson.
22.00
22.10
21.50 Einsöngur: Mario Del Monaco syngur óperu
aríur eftir Wagner.
Fréttir og veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Bræðurnir” eftir Rider
Haggard í þýðingu Þorsteins Finnbogasonar.
Séra Emil Björnsson les (12).
Létt músik á síðkvöldi:
Dagskrárlok,
22.30
23.25
000000000000000000000000<>000000000000000000000000
vaiR
A ðstoðarlæknisstöður
Staða 1. aðstoðarlæknis við lyflæknis og farsóttadeild
Borgarspítalans er laus til umsóknar.
Staðan er til þriggja ára. Laun samkvæmt kjarasamning-
um Reykjavíkurborgar.
Staða 2. aðstoðarlæknis við sömu deild er einnig laus til
umsóknar. Staðan er til tveggja ára. Laun samkvæmt
kjarasamningum Reykjavíkurborgar.
Umsókrir um stöður þessar, ásamt upplýsingum um
námsferil og fyrri læknisstörf sendist Sjúkrahúsnefnd
Reykjavíkurborgar fyrir 15. júlí n.k.
Stöðurnar veitast frá 1. sept. 1965.
Reykjavík, 1. iúní 1965.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
IÐJUFÉLAGAR:
Farið verður í skógræktarferð miðvikudag-
inn 2. júní 1965.
Lagt af stað frá skrifstofu félagsins, Skip-
holti 19, kl. 8 e.h.
Fjölmennið.
Stjórnin.
Skólagarðar Hafnarfjarðar
taka til starfa föstud. 4. júní og verða starfræktir við
Öldugötu.
Innritun fer fram í skrifstofu bæjarverkfræðings dag-
ana 2 og 3. júní kl. 10 — 15,30.
Börnum á aldrinum 9—13 ára er heimil þátttaka.
Þáttíökugjald er kr. 300.00.
Garðyrkjuráðunautur.
Aðalfundur
Sölusambands ísl.
fiskframleiðenda
verður haldinn í Sigtúni Reykjavík föstudaginn 18. júní
n.k. og hefst kl. 10 f.h.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórn Sölusambands ísl. fiskframleiðenda.
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi
Magnús Jón Kristófersson
verkstjóri
andaðist s St. Jósepsspítala, Hafnarfirði, 29. maí. Jarðarförin ákveð
in föstudaginn 4. júní frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði kl. 2 e.h.
Laufey Guðmundsdóttir, böru og barnabörn.
14 1. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ