Alþýðublaðið - 10.08.1965, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 10.08.1965, Blaðsíða 5
Síðsumarferð til Brighton Alþýðublaðið vantar barn eða ungling til blaðburðar, um tíma á Hverfisgötu efri. Flugvél frá Flugsýn á litla sjúkraflugvellin um við Sigluf jörð. Bærinn í baksýnd. Mynd: ÓR. F lugvallargerð Sigíufirði Reykjavík — ÓR UNDANFARIN sumur hefur verdð Unnið að flugvallargerð á Siglur firði og er gert ráð fyrir að það verk verði langt komið á þessu sumri. Hefur sanddæla frá Flug- málastjórninni dælt upp sandi í flugbrautina og hefur því • vérki miðað mjög vel áfram. Flugbraut þessi verður austan megin fjarðarins og er gert -ráð fyrir að minni farþegaflugvélar! geti lent þar. Á Siglufirði er nú lítill sjúkraflugvöllur, sem aðeins er nothæfur fyrir minnstu flug- vélar. Er hann norðar en sá nýi verður, nær því beint á móti kaup- staðnum. Verður flugvöllurinn nýi mikil samgöngubót fyrir staðinn Og vona aliir Siglflrðlngar að hann geti komið í gagnið eins fljótt og mögulegt er. í byrjun september efnir Ferðaskrifstofan SAGA til þriðju hópferðarinnar til Brigh- ton á hinni sólríku suðurströnd Englands. Flogið verður beint til London 3. septem- ber og ekið þaðan suður til Brighton, þar sem dvalizt verður á góðu hóteli við strönd- ina í eina viku. Á heimleið verður höfð við staða í London í þrjá daga, en til Reykja- víkur verður komið aftur 12. september. Verð ferðarinnar er kr. 9.875,00, en inni- falið í því eru flugferðir til og frá London, bílferðir til og frá Brighton, vikudvöl í BRIGHTON ásamt öllum máltíðum, ferð um suður England og gisting í London með morgunverði. Hin nýja flugbraut lengist smám saman, því að það er drjúgt, sem dæla Fhigmálastjórnarinnar dælir upj> af sandi úr f jar ðarbotninum. Mynd: ÓR. STARFSMENN ullarverksmiðju nokkurrar í Helmshore í Englandi mótmæltu harðlega, þegar það komst til tals meðal forráða- manna verksmiðjunnar, að lengja sumarleyfi þeirra upp í fjóra mánuði. Kváðust þeir ékkert hafa við svo langt sumarfrí að gerá, og einn gekk meira að segja svo langt að krefjast þess, að yrði sumarfríið lengt, yrði kaupið einn- ig að hækka, svo að þeir hefðu að mmnsta kosti fyrir bjór. þessa fjóra mánuði! FREGNIR herma, að 76 manns hafi látizt af völdum umferðar- slysa í Svíþjóð í júlímánuði síðast- liðnum. Þar. hafa alls látizt 570 manns af þessum sökum það sem af er árinu. Síðastliðið ár létuzt þar 81 vegna umferðarslysa og 542 týndu lífi á þennan hátt fyrstu sjö mánuði ársins. 32 SJÁLFSTÆÐ afrísk ríki skor- uðu nú fyrir nokkrum dögum á Öryggisráðið að koma saman til að fjalla um apartheid-stefnu Suð- ur-Afríkustjórnar. Ferðaskrifstofan gegnt Gamla Bíói — Símar: 17600 og 17560. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. ágúst 1965 §

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.