Alþýðublaðið - 10.08.1965, Qupperneq 6
Kvikmyndaleikarinn frægi, Gary Grant, gifti si r nýlega í kyrrþey óþekktri 27 ára gamalli leikkonu,
Diane Cannon að nafni. að nafni. Grant er nú 61 ára að aldri, og er þetta fjórða lijónaband hans.
Enn er maðurinn hinn vörpulegasti og lítt farinn að láta á sjá, þrátt fyrir háan aldur. Hér á mynd
inni sjáum við nýgifta parið, sem virðist í sólskins kapi . . .
UEEINN
Baráttan gegn Mafíunni
á Sikiley gengur allvel
ÍTALIR munu á næstunni fara
fram á það við Bandaríkjastjórn,
að afhentir verði fjórir menn, sem
taldir eru vera leiðtogar í Mafí-
unni og sluppu undan samstilltum
handtökuaðgerðum lögreglunnar á
Sikiley á mánudaginn var, segja
góðar heimildir í Rómaborg. Þó
að ítölsk skriffinnska sé venjulega
þung í vöfum, hafa yfirvöldin til
þessa látið hendur standa mjög
verulega fram úr ermum í síðustu
aðgerðum sínurn gegn eiturlyfja-
smyglurum og tilraunum til að'
Ioka hinum ólöglegu samgöngu-
leiðum milli Austurlanda nær, Sik-
ileyjar og Bandaríkjanna.
Beiðnin um framsal þessara 4
manna, sem taldir eru fyrirliðar
Mafíunnar á Sikiley, var undirrit-
, uð af dómara sl. fimmtudag og
send til dómsmálaráðuneytisins.
j Þessir fjórir menn, sem leitað er,
heita: Josep Cerrito, 54 ára, Ga-
stano Russo, 73 ára, Santo Sor-
eg, 57 ára, og Garspars Haggad-
i ing, 57 ára.
Samkvæmt nýjustu upplýsing-
um í Róm eru mennirnir allir
bandarískir ríkisborgarar, og má
búast við miklum dómsmála
flækjum, áður en af framsali get-
ur orðið.
Einn af þeim tíu glæpamönnum,
sem náðust í „razzíunni,” Frank
Cappola, 71 árs, hefur beðið yfir-
völdin i 'Palermo um að vera
fluttur úr fangelsinu í sjúkrahús
á þeirri forsendu, að hann þjáist
af sykursýki. Cappola var vísað
Framhald á 15. síðu
a, ■ ■——
HINN þekkti, spánski súrrealisti Sal
vador Dali hefur fengið pöntun frá
Vatíkaninu á 150 myndum í nýja,
myndskreytta útgáfu af Biblíunni,
sem koma á út í þrem bindum. Um
pöntun þessa segir blað Vatíkansins
Osservatore Romano:
—- Burtséð frá súrrealisma sínum
er Dali mjög samvizkusamur teiknari
og málari. Þegar um er að ræða
hann af auðmýkt, sem er til fyrir-
FRANSKA kvikmyndastjarnan Mart
ine Carol, sem sagt er að sé önnum
kafin við að falla í 'gleymsku, er á-
nægð yfir því, að kvikmyndahús eitt
í London hyggst hafa sérstaka Mart
ine Carol-viku. En það. sem hún
veit ekki, er það, að hinn ríki vinur
hennar í mörg ár, dr. Mike Ekland,
hef'ur tryggt bíóeigandaínum veru-
legan gróða á vikunni. Og eins og
allir vita, hefur enginn illt af því, sem hann ekki veit. Að við
segjum þetta gerir tæplega nokkuð til, því að eftir því, sem við
bezt vitum, er Marine Carol ein af fáum, sem ekki les Alþýðu
h’aðið — og hefur þá afsökun, að hún skilur ekki íslenzku.
•'•'•'U' '■ ------------
Biblíu-verkefni, starfar
myndar.
***WWWWIWWM<WVMIMWWtlWWWtWWWWWWMMW»
Óheillaviðburður
í Vietnam
í SÍÐUSTU viku gerðist sá ó-
happaatburður í Vietnam, að
Bandaríkjamenn skutu til bana
fjögur börn og eina konu í
suðurvietnamískum bæ. Átti
þetta sér stað, er landgöngu-
liðar úr sjóhernum réðust á
þorpið Chan Son , 16 kílómetr-
um fyrir sunnan flotastöðina
Da Nang. Þau földu sig í neðan-
jarðarbyrgi, þar sem hinir
bandarísku hermenn töldu, að
Vietcong-menn fælust. Lewis
W. Walt hershöfðingi, yfirmað-
ur landgönguliðanna, hefur lát-
ið í ljós hryggð sína yfir atburð
inum. Honum fórust m. a. orð
á þessa leið:
— Svo óheillavænlegar af-
leiðingar af hernaðaraðgerðum
snerta mig mjög djúpt, og ég
lýsi yfir hryggð minni vegna
þess, að þær skyldu bitna á sak-
lausu fólki.
Hershöfðinginn benti enn-
fremur á það, að áður en til á-
rásarinnar kom, hefði þyrla
með gjallarhom flogið yfir
þorpið og hvatt fólk til að
hverfa úr þorpinu, þangað sem
það yrði óhult.
Herstyrkur Bandaríkjamanna
í Vietnam er 80.000 manns eins
og stendur en mun innan
skamms vaxa upp í 125.000
samkvæmt ákvörðun Lyndon
B. Johnsons forseta. McNamara
hefur enn fremur látið þá skoð-
un í Ijós, að þörf sé 35.000
borgara til Iandsins hernum til
trausts og halds.
10. hver unglingur
tekinn fyrir ölvun
Tíundi hver piltur á aldrinum
18-20 ára var í fyrra tekinn fyrir
ölvun í Gautaborg. Misnotkun á-
fengis er meira í Gautaborg en'
í nokkurri annarri, sænskri borg
og heíur stóraukizt á síðari árum,
ekki hvað minnst meðal unglinga. !
Á fyrri helmingi þessa árs
jókst sala áfengis í Gautaborg um j
10 af hundraði, miðað við sama
timabil arið áður, og voru þar
drukknir rúmlega 4,3 lítrar af
brennivíni á hvert mannsbarn.
Jafnframt aukinni sölu eykst
misnotkun áfengis. í fyi-ra hafði
: iögreglan afskipti af 53 af hverj-
um þúsund íbúum, á móti 43 ár-
ið 1952. Verst er ástandið með-
al unglinga á aldrinum 18-20 ára,
nálega 1000 unglingar á þessum
aldri voru teknir fyrir ölvun, en
það þýðir, að tíundi hver ungur
piltur hefur gerzt sekur um alvar-
lega misnotkun áfengis. Satt er
það, að ýmsir voru teknir oftar
cn einu sinni, en allt um það
hafa unglingar í Gautaborg sett
heldur vafasamt met.
Hér var það, sem harmleikurinn gerðist. Bandarískur hermaður á verði fyrir framan neðanjarðarbyrgið,
■
16 10. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ