Alþýðublaðið - 10.08.1965, Qupperneq 7
Minningarorð:
ÞORUNN HELGADOTTIR, HAFNARFIRÐI
FRÚ ÞÓRUNN Helgadóttir lézt í
Landsspítalanum í Reykjavík 3.
ágúst sl. eftir stutta legu. Við frá-
fall hennar hefur Alþýðuflokkur-
inn, og alveg sérstaklega Alþýðu-
flokkurinn í Hafnarfirði, orðið á
bak að sjá einni af sínum ágæt-
ustu forustukonum. Hún bar í
brjósti einlægan áhuga fyrir mál-
efnum flokksins, vexti hans og
viðgangi, og lét ekkert tækifæri
ónotað til að vinna að framgangi
þessara áhugamála sinna. Hún
stóð alla tíð fast við hlið manns
síns, Páls Sveinssonar yfirkenn-
ara, á meðan hann lifði, en hann
var um langan aldur í forustusveit
hafnfirzkra AIþýðuflokksmanna,og
eftir lát hans hefur hún síður en
svo dregið sig í hlé, heldur þvert
á móti bætt við sig -ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir flokkinn. Hún
var fyrsti kvenfulltrúinn, sem Al-
þýðuflokkurinn fékk kosinn í bæj
arstjórn Hafnarfjarðar. Hún átti
sæti í fræðsluráði, barnaverndar-
nefnd og ýmsum fleiri nefndum
innan bæjarstjórnar. Sem formað-
ur Kvenfélags Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði, meðlimur fulltrúa-
ráðsins þar og fulltrúi á flokks-
þingum hefur hún einnig unnið
mikið og gott starf fyrir flokkinn.
Þórunn var ljúf og vingjarnleg
í umgengni og samvinnuþýð við
samstarfsmenn sína, en hún hélt
líka fast á málum þegar henni
þótti það við eiga.
Ég flyt henni innilegar þakkir
mínar fyrir samstarfið, og flokks-
ins fyrir öll þau störf sem hún
hefur fyrir hann unnið. Börnum
hennar, tengdabörnum og öðrum
ástvinum votta ég innilega samúð.
Emil Jónsson.
ÞEGAR ég fyrir tæpum tveim-
ur árum skrifaði fáeinar. línur
í Alþýðublaðið á sextugsafmæli
frú Þórunnar Helgadóttur á
Sunnuvegi 7 í Hafnarfirði, grun-
aði mig ekki, að ævidegi hennar
mundi Ijúka svo skjótt. Við, sem
þekktum til Þórunnar og starfa
hennar, gerðum okkur vonir um,
að Hafnfirðingar og bærinn þeirra
fengi í mörg ár að njóta nær-
veru hcnnar og starfskrafta. Nú
hefur þetta farið á annan veg.
Þórunn lézt á Landsspítalanum
3. ágúst síðastliðinn eftir stutta
legu.
Þórunn Helgadóttir var- fædd
í Melshúsum í Hafnarfirði 17.
september 1903. Voru foreldrar
hennar, Helgi Guðmundsson og
Guðrún Þórarinsdóttir, miklar
eijumanneskjur. Helgi var hafn-
fizkrar ættar, einn hinna svo-
nefndu Hellubræðra, sem allir
gátu sér gott orð fyrir dugnað
og atorku. Guðrún var aftur á
móti ættuð vestan af Mýrum, dótt-
ir Þórarins Þórarinssonar í
Fornaseli. Stóð að henni dugmik-
ið fólk, og má geta þess, að Guð
rún var þremenningur að skyld-
leika við þá Þorstéinssyni frá Mel
í Hraunhreppi, séra Bjarna á
Siglufirði og skipstjórana Halldór,
Kolbein og Þorstein (í Þórs-
hamri).
Þórunn Helgadóttir ólst upp
Þórunn Helgadóttir
við iðjusemi og þá hugsun að taka
hverju starfi, er byðist, og ganga
að því með dugnaði og trú-
mennsku. Hún lærði sauma hjá
Einari Einarssyni klæðskera í
Hafnarfirði, vandvirkum kunnáttu
manni. Stundaði hún allmikið
sauma næstu ár á eftir og vann
reyndar oft við sauma síðar.
Þórunn giftist 31. desember
1929 Páli Sveinssyni kennara við
Barnaskóla Hafnarfjarðar, síðar
yfirkennara. Reyndist hún ágæt
húsmóðir og manni sínum hin um-
hyggjusámasta eiginkona, en Páll
var maður ékki heilsuhraustur, en
vann þó mjög að ýmsum félags-
störfum af miklum áhuga, var t.
d. gjaldkeri Byggingarfélags al-
þýðu í Hafnarfirði. Þau eignuð-
ust eina dóttur>, Guði-ún, mynd-
arstúlku, sem er gift Sigurði Páls-
syni glerslípara og speglagerðar-
manni í Hafnarfirði og eiga þau
5 börn. Sonur Þórunnar áður en
hún giftist er Guðmundur Bene-
diktsson læknir í Kópavogi, mæt-
ur maður og vinsæll laaknir,
kvæntur Elínborgu Stefánsdótt-
ur frá Tungu í Fáskrúðsfirði. —
Eiga þau 4 börn.
Þórunn Helgadóttir var mynd-
arleg kona í sjón og frarpkomu,
greind og athugul. Hún var ekki
gefin fyrir að láta mikið á sér
bera, en lagði alúð við heimiii
sitt. Rökstuddar skoðanir myndaði
hún sér þó á ýmsum málum, og
tryggð hennar við þær hugsjónir
sem hún hafði orðið snortin af,
var mikil. Gat varla hjá því farið,
að hún yrði kvödd til starfa í
félögum. þar sem hún á annað
borð var liðsmaður, og endurkjör-
in hvað eftir annað, þegar
reynsla var fengin af því, hverrf-
ig hún innti störfin af hendi. —
l’annig var hún í stjórn Kvenfé-
lags Alþýðuflokksins í Hafnar
firði samtals í 24 ár, þar af. for-
maður félagsins síðustu 8 árin.
Hún var oft fulltrúi þess félags
á þingum Alþýðuflokksins, — eg
mörgum fleiri störfum gegndi hún
fyrir það. Hún var bæjarfulltrúi
1958—1962. Hún átti sæti í barna
verndarnefnd og fræðsluráði, og
má -ég, sem þessar línur rita, trútt
um það tala, hvernig störf hennar
reyndust í fræðsluráðinu, hve hún
var athugul, velviljuð og lipur í
samstarfi. Mun þeirra eiginleika
hafa gætt í öllum störfum henn-
ar.
Síðustu 3 árin veitti Þórunn
dagheimili verkakvennafélagsins
á Hörðuvöllum forstöðu. Lagði
hún mikla alúð við starfið og þar
nutu ýmsir eiginleikar hennar sín
vel: kyrrlát stjórnsemi og festa
samfara lipurð og vilja til að
greiða sem bezt úr hverjum vanda.
Þórunn Helgadóttir var skap-
gerðarkona. Hún bar sterkar og
heitar tilfinningar i brjósti, ,en
hafði jafnan á þeim góða stjórn.
Stilling og hófsemi voru sterkir
þættir í gerð hennar. Vinátta
hennar var ákaflega traust, þar
sem hún tók henni, hvort sem í
hlut áttu menn eða málefni.
Bæjarfélaginu er eftirsjón að
konum eins og Þórunni Helga-
dóttur. Sárari er eftirsjón sam-
starfsmanna hennar á ýmsum
sviðum. Sárastur er þó missirinn
fyrir þá, sem henni voru nánastir.
Þannig er jafnan, þegar góðar kon-
ur kveðja.
Ólajur Þ. Kristjánsson.
FRÚ Þórunn Helgadóttir lézt 3.
þessa mánaðar eftir stutta legu.
Með henni er gengin ein af mæt-
ustu konum þessa bæjar.
Við í stjórn Kvenfélags A1
þýðuflokksins í Hafnarfirði viljum
senda henni hinztu kveðju með
hjartanlegri þökk og hrærðum
hiiga fyrir öll störf hennar fyrir
félagið okkar. og Alþýðuflokkinn
og fyrir frábæra samvinnu þau
ár, sem við fengum að njóta henn-
ár sem formanns og starfsfélaga.
Sérstaklega vil ég, sem þessi fá-
tæklegu orð skrifa, þakka henni
hartnær 25 ára samstarf í stjórn
Kvenfélags Alþýðuflokksins. í
því samstarfi var hún friðelsk-
andi kona, sem allt vildi sætta
og sameina, enda var Þórunn svo
kærleiksrík, að hún færði hvar-
vetna með sér birtu og yl, enda
átti húh ekki langt að sækja þá
éiginleika. Móðir hennar, sem ég
kynntist mjög vel, átti svo mikla ,
hjartahlýju, að þegar hún kom á
móti manni og rétti út sínar kær-
leikshendur, þá gleymdist allt, sem
erfitt var.
Þórunn var glæsileg kona, há
vexti og höfðingleg. Margir, sem
sáu hana í fyrsta sinn, spurðu,
hver hún væri, þessi myndarlega
kona; þannig var tekið eftir henni,
hvar sem hún fór.
Eg ætla ekki að íýsa hér ævi-
atriðum hennar, það gera aðrir,
mér færari. En ég hef verið beð-
in af Öllum starfsstúlkunum á
dagheimilinu á Hörðuvöllum að
færa hénni ynnilegar þakkir og
hinztú kveðju, og biðja þær guð
áð bléssa minningu hennar. Enn-
fremur vil ég þakka henni störf
hennar • sem f orstöðukonu dag-
heimilisins, sem hún tók að sér
fyrir mín orð, og á sú stofnun
henni niikið að þakka.
Dóttur hénnar og syhi, tengda-
börnum og barnabörnum, sem svo
mikið hafa misst, vottúm við
okkar ynnilegustu hluttekningu
é Skemmtiferðir |
•gM*ii með skipum g
= Baltic lirie: S
| Vín-Yalta-Vín. Með flugvél til Lúxemborgar og 53
5 Vínar og frá Vín til Yalta með fljótaskipi eftir g
Dóná með viðkomu í Bratisslava-Budapest-Bel- S
5 grad-T. Severin-Ruse-Djndrju-Galaz-Ismail og 3
5 til Yalta við Svartahaf. Sömu leið til baka, Verið 53
.3 daga á Yalta og stansað í hinum borgununi 53
5 part úr degi. AIÍs 14 daga ferð. Mjög heillandi og 53
5 skemmtileg ferð. Hljömsveit um borð í skipinu, 53
5 ágætis aðbúnaður. Verð: 21.500 kr. á mann. 16
5 daga ferð.
:)])))))]))))))]]])))))I))!))))]))1
London --Kaupmannahöfn — Gauta- 2
borg — Stokkhólmur — Hélsinki — Leningrad. 5
og til baka. 14 daga ferð. Vérð 13.400. Farið með 5
skemmtiferðaskipum i júní-júlí-ágúst og október. 5
á 12 daga fresti. Flogið til London og til baka
Rólegar ferðir um Norðursjó og Eystrasalt með 5
fýrsta flokks skemmtiferðaskipi, höfð viðkoma í 5
fyrrnefndum borgum. Hægt að hafa viðdvöl eftir £
þörf á útleið og heimleið í London 5
^ mwmmwm^
' MarseiIIes — Genoa — Napoíi ‘ |
tff'f - Pireaus - Istanbul ; Varna |
*— Constarita — Odessa — Yalta' 5
^ V °S Sochi- (Miðjarðarhaf og Svartahaf). §
Verð: 21.500..00. Flogið til Parísar Marseilles =
og farið með sketnimtiferðarskipi á fyrrtalda staði. =
= 21.daga ferð.
:))))))))))))))))))))))))))))))))1)))
_))))))
%
= Gdynia — Amarica line ES
5 London — Las Palmas — Martinque — Nassau ===
= Miami — Curaco — Barbados — London. 17.1- §
S 22.2 1966 36 daga ferð. Verö frá 24.570.00-46.170 §5
= 00. Flogið til London og til baka. Dvalið í 1 dag 5=
= til 4 daga á hverjum stað. 35
>)))))!)))))))))))) ' (((((((((((((((((((((((({((((((((U,
Kaupmannahöfn — London — Quebec Montre 53
= al. 18 dagar. Verð: 28170.00. í báðum tilfellum §
= ferðast með M.s. Batoxy. Glæsilegt skemmti- ^
I ferðaskip. =3
S Upplýsingar veittar í ferðaskrifstofu vorri §
LANOSyNt
__ FERBASKRIFSTOFA §
5= Skólavörðustíg 16, II. hœð |ý
§ SÍMI 22890 BOX 465 REYKJAVÍK §
?f///l/////)/)/)))]))/))/))))))))))])//)/)))))/)))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))))K
SKEMMTIFERÐ ALDRAÐS
FÓLKS Á SAUÐÁRKRÓKI
(Framhald á 15. síðu).
Þann 19. júlí sl. fór Kvenfélag
Sauðárkróks í sína árlegu
skemmtiferð með aldrað fólk úr
bænum. Farið var að þessu sinni
til Siglufjarðar og ekið sem leið
liggur þangað, í miklu blíðskap-
arveðri, — með þeim eina útúr-
krók, að skroppið var fram í Aust-
ur-Fljót, alla leið inn fyrir Stíflu-
hóla.
Til Siglufjarðar var komið kl. 3
síðdegis. Þar tók Skagfirðingafé-
lag Siglufjarðar á móti öllum hópn
um, yfir 40 manns, af mikilli
rausn. Var staðnæmst við Hótel
Höfn og setzt þar að hlöðnu veizlu
borði. Eftir vel þegnar veitingar
og stutt spjall við gamla og góða
Skagfirðinga, dreifðist fólkið og
hvarf til vina og vandamanna víðs-
vegar um bæinn, því sökum rign-
ingar síðari hluta dagsins var lítið'
hægt fyrir aldrað fólk að skoða sig
um. Þeir, sem ekki áttu til kurm
ingja að leita nutu húsaskjóls og
frábærrar gestrisni á hinu mynd-
arlega heimili formanns Skagfirð-
ingafélags Siglufjarðar, frú Hall-
dóru Jónsdóttur frá Sauðárkróki
og manns hennar, Jóhannesár
Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns.
Framh. á 15. slðu.
ALhÝÐUBLAÐIÐ - 10. ágúst 1965
7