Alþýðublaðið - 10.08.1965, Qupperneq 9
Úr Davíðshúsi
þessari samkomu. Ekki skal
gleyma því, aS sýslunefnd Suður-
Múlasýslu veitti okkur, ótilkvödd
35 þúsund króna styrk til að halda
svona hátíð.
Sýslumaður Suður-Múlasýslu,
Axel Tulinius og skógarvörðurinn
á Hallormsstað, Sigurður Blön-
dal, hafa veitt okkur allan hugsan-
legan stuðning. í svona samkomu-
haldi liggur mikil vinna, en þetta
hefur gengið vel, með góðri lög-
gæzlu og 35 manna gæzluliði UÍA.
Án þessara sjálfboðaliða hefðum
við ekki getað framkvæmt þessa
dagskrá. Ég efa, að piltarnir í
gæzlusveitinni geri sér þess grein,
hve mikið og gott starf þeir hafa
unnið.
Þetta sagði formaður UÍA. Úti í
rjóðrinu hitti ég sýslumann Sunn-
mýlinga og lögreglustjóra á staðn-
um, Axel Túliníus.
— Þetta hefur tekizt framar
öllum vonum, sagði hann. Það er
lítið um brot og það eru ekki fyrst
og fremst táningarnir, sem brotið
hafa af sér.
Og ég held áfram að ganga um
samkomusvæðið. Auðvitað hitti ég
Einar bónda í Mýnesi og fæ að
heyra skemmtilegan þátt um við-
skipti hans við Eystein, Bjarna
Benediktsson og Ingólf á Hellu.
Og þó að hvergi hilli undir kosn-
ingar, er Einar þegar albúinn í
slaginn. Það er komið fram yfir
miðnætti og Lögurinn liggur speg-
ilsléttur í kvöldhúminu. Þoka á
fjallabrúnum. Danspallurinn í
rjóðrinu er farinn að gefa sig og
síga. Hann dúar þægilega undir
fótum dansenda. Flestir virðast
kunna þessu ágætlega, einhver
heyrist þó kvarta um sjóveiki í
þessum veltingi. Tvær stúlkur
dansa teygjutvist utan við pallinn.
Kannski hafa þær ekki þolað öldu-
ganginn. Lögreglutjaldið er upp-
Ijómað og örfáum vellyktandi
herrum hefur verið stungið inn í
mjólkurbílinn. Þar syngja þeir:
Kvöldið er fagurt og önnur hjart-
næm ljóð, sér til sálubólar. —
Nokkrir unglingar standa hjá og
hlusta kímileitir á sönginn.
Framhald á 15. síðu.
Sigurður Anton Friðþjófsson:
NÆTURLJÓÐ
Bókaforlag Odds Björnssonar,
Akureyri 1965. - 66 bls.
Bók Sigurðar Antons Friðþjófsson
ar er gefin út á Akureyri; ljóð
hans eru bersýnilega ort í nám-
unda við verk og minningu Dav-
íðs Stefánssonar. Svona lýsir Sig-
urður skáldskap sínum í fyrsta
ljóði bókarinnar, samnefndu
henni:
Ég kveða vil ljóð um lífið,
ijósið og sumarsins blóm.
Gull og glitrandi veigar,
gigjunnar fegursta hljóm.
En myrkrið í sál mína sækir,
og sigur að huga mér> hljótt.
Ég get ekki kveðið það kvæði,
sem kveða vil ég í nótt.
Og þetta má heita nákvæm lýs-
ing á skáldskaparviðleitni hans í
þessari bók. Hann hefur augljós-
lega lesið bezt og lært mest af
skáldakynslóðinni sem bar hæst á
þriðja tug aldarinnar með Ðavíð
Stefánsson fremstan í flokki; það-
an eru andstæðurnar runnar, sem
hann lýsir í þessu stefi. Og flest
kvæði hans eru skynuglegt berg-
mál hugsana, tilfinninga, boðunar
þessara skálda; Davíð er t. d. ákaf-
lega nærri ljóðum eins og Nótt
í erlendri borg, Rut, Gamall mað-
ur á torgi, Við ströndina, Ást svo
einhver dæmi séu nefnd. En ekki
er það hin frjálslegu kveðandi
Davíðs á yngri árum sem laðan
Sigurð til eftirlíkingar; öllu held-
ur formbundnari ljóð hans; einn-
ig ber hann við að yrkja „speki-
mál” í anda Davíðs. En það er
tilfinningin í ljóðum Davíðs og
hans samtíðarmanna, sem einkum
hefur heillað hann. Og bergmál
hennar hljómar óneitanlega mis-
jafnlega í þessum ljóðum; sumt
hefur grófgerzt til muna, einkum
gleðiljóðin:
í kvöld er það Verner sem veitir
og vín skulu allir fá.
Koníak, viský, kók og romm.
Komið og smakkið á!
„Eitur, meira eitur, ör vil ég
dansa og heitur”, orti skáld a£
fyrri kynslóð; svona hljómar þetta
hjá Sigurði:
Eg hirði ekkert
um horfna drauma
né heilög vé.
Eg tíni forboðnar
ferskar þrúgur,
af föllnu tré.
V
Eg dansa óður,
því eitrið gefur
mér aldrei hlé.
Þetta dæmi sýnir einnig að Sig-
urður hefur litið eitthvað í Stein
Steinarr, og sézt það víðar í bók-
inni, í ljóðum eins og Tilgangs- i'
leysi eða Tilmæli til vegfaranda.
Af þessu má ráða að skáldskapar-
áhugi hans nái til allra millistriðs-
áranna; og er það að vísu nokkuð
að leggja upp með.
Ég þekki engin deili á Sigurði
Antoni Friðþjófssyni, og engar
persónulegar upplýsingar er að fá
um skáldið á eða af bók hans. En
hann er bersýnilega dável hag-
mæltur, og hann umgengst læri-
meistara sína tiltölulega kurteis-
lega; hann stælir ekki beinlínis
einstök kvæði; það eru kvæði ann-
arra manna sem koma honum til
að yrkja. Væntanlega er maður-
inn ungur. Þá er þess líka að
vænta að honum notist hagmælsk-
an og ljóðakunnáttan betur síðar
meir; honum auðnast kannski síð-
ar að kveða þau kvæði sem hann
vill; Davíð og Steinn eru ekki al-
deilis ónýtt veganesti. — Ó. J.
JRBÚAR SVIPTIR RÉTTINDUM
KYPRIANOU:
skýlaus afstaða
ur það í för með sér, að ekki er
við því að búast að gríska stjórn-
in geti haft áhrif á gríska Kýpur-
; búa í hófsamari átt eins og hún
hefur gert ótal sinnum á undan-
förnum 18 mánuðum.
Þetta hefur einnig það í för með
sér, að tyrkneska stjórnin, sem er
á hinn bóginn traust í sessi, telji
sér hag í því að skerast í leikinn
með vopnavaldi á sama tíma og
griska stjórnin á í miklum erfið-
leikum með að styðja gríska íbúa
Kýpur.
Það er Tyrkland, sem hefur bor-
ið málið upp við Öryggisráðið og
tyrkneska stjórnin hefur sent Ör-
yggisráðinu kvörtun eftir að hafa
hvað eftir annað látið í ljós alvar-
legar áhyggjui- vegna ástandsins
og meintra brota á réttindum tyrk-
neska minnihlutans á Kýpur sam-
kvæmt samningunum um stjómar-
skrá Kýpur í Ziirieh 1960.
★ Afleiðingar
Stjórn Grikkja á Kýpun hefur
vísað kvörtunum tyrknesku stjórn
arinnar á bug. Spyros Kyprianou,
utanríkisráðherra Kýpur, sagði
áður en hann hélt til New York
að sitja fund Öryggisráðsins, að
Tyrkland reyndi að grafa undan
fullveldi Kýpur. Afstaða Kýpur-
Framhald á 15. síðu
MAKARIÓS:
leikur að eldi
DRAGTIR - KJÓLAR
Lækkað verð frá kr. 595.—
Skólavörðustíg 17.
Kona óskast
Konu vantar í eldhús Kleppsspítalans.
Upplýsingar gefur matráðskonan í síma
38160, milli kl. 13 og 16.
Skrifstofa ríkisspítalanna. * >
Skrifstofumaður
og skrifstofustúlka óskast. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun og/eða starfs-
reynslu sendist sem fyrst.
Skipaútgerð ríkisms.
Atvinna
Stúlka óskast til afgreiðsiustarfa, vakta-
skipti.
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 11588.
HÖFN auglýsir
Nýkomið mikið af nýjum vörum; úrval af kjólaefnum,
fóðri og allt sem tilheyrir saumaskap.
★
Damask, silki og bómull. Lakaefni 2,30; 2,20 og 1.40 á
br. Einnig 90 cm. damask.
★
Hvítur handklæðadregill flónel og bleyjur, og allt fyrir
ungbörn.
★
Snægurver, koddaver og lök. Falleg handklæði. Ódýr
nærföt og sokkar á alla fjölskylduna. Sængur í öllum
stærðum.
— Geymíð auglýsinguna —
— Póstsendum. —.
VERZLUNIN H Ö F N
Vesturgötu 12.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i að rífa geymsluhús (Svendborg) byggt úr
tirnbri. Húsið stendur við Vesturgötu i Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu hafnarstjóra, Strandgötu
4, Hafnarfirði, eigi síðar en 16. þ. m.
Hafnarstjórinn í Hafnarfirði.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. ágúst 1965 $
.... . i; --...........................- 1 ----- -—... , .....................: <■ nirttiái ■.ÉátiéiA