Alþýðublaðið - 10.08.1965, Page 10
Keppendur Islands á
NM í Helsinki farnir
Á SUNNUDAG fóru tíu af ellefu
þátttakendum íslands á Noróur-
landameistaramótinu í frjálsum
íþróttum utan með flugvél Flug-
félags íslands. Fyrsti viðkomu-
gtaður hópsins er í Osló, en ís-
fendingarnir taka þátt í afþjóða-
ihóti á Bislet í dag. Hópurinn sam
einast síðan á Kastrup flugvelli 12.
ágúst og flýgur þaðan beint til
Helsingfors. Norðurlandamótið
liefst á Olympíuleikvanginum 15.
ágúst og stendur yfir í þrjá daga.
Alls taka um 260 íþróttamenn og
konur þátt í þessu 3. Norðurlanda-
móti í frjálsum íþróttum, Finnar
senda 100 keppendur, Svíar 80,
Norðmenn 50, Danir 25 og íslend-
ingar 11. Fararstjóni íslenzka
Bikarkeppni KSÍ
um helgina
ÞKÍR leikir áttu að fara fram í
bikarkeppni KSÍ um helgina, en
aðeins tveir voru háðir, ísfirðing-
ar mættu ekki til leiks gegn B-liði
KR og KR-ingar halda því áfram
keppni.
( í Hafnarfirði sigraði FH Hauka
i jöfnum leik 3-2. Á Akranesi vann
B-lið Fram B-lið Akurnesinga
með 4—0.
flokksins er Svavar Markússon,
ritari FRÍ, en auk þess er Bene-
dikt Jakobsson þjálfari með í för-
inni.
Fréttamaður íþróttasiðunnar
átti stutt viðtal við hvern þátttak-
anda, áður. en lagt var af stað.
Svavar Markússon kvaðst
hlakka til fararinnar, hann sagði
að ekki væri hægt að gera mikl-
ar kröfur til íslenzku íþrótta-
mannanna, en þó hefðum við von-
ir um verðlaunapeninga. Svavar
sagði að lokum, að hann byggist
við að margir íslendinganna bættu
árangur sinn verulega.
Ferðin leggst vel í mig, sagði
Benedikt Jakobsson, þetta er á-
gætur hópur. Vonandi komum við
heim með 2 til 3 íslandsmet og ein
hverja verðlaunapeninga. Mestar
eru vonir okkar í hástökki og tug-
þraut.
— Þetta verður hÖrð keppni,
fjórir Norðurlandabúar hafa stokk
ið 2.10 m. eða hærra og átta yfir
2.06 m. sagði Jón Þ. • Ólafsson.
Képpnin verður hörð og jöfn og
ómögulegt að spá neinu, en ég
mun gera mitt bezta. Venjulega
hef ég bætt árangur minn á mót-
um erlendis.
— Ég.ætla að sigra í tugþraut-
inni, sagði Valbjörn Þorláksson
og þar með sló hann okkur alveg
út af laginu.
— Ég geri mér engar vonir um
að komast í úrslit, en takmark
mitt er að bæta unglingamet Þór-
is Þorsteinssonar í 400 m. hlaupi,
en það er 49.6 sek. sagði Ólafur
>Guðmundsson. Einnig vonast ég til
að ná mínum bezta árangri í öðr-
um greinum.
Guðmundur Hermannsson, ald-
ursforseti flokksins, nýlega 41 árs,
kvaðst hlakka til að fá að reyna sig
á mótinu. Hann lét þau orð falla,
að sér litist vel á íslenzka flokk-
inn.
— Það er ekki gott að segja,
hvernig þetta gengur, sagði Hall-
dór Guðbjörnsson. Ég vonast til
að ná mínum bezta árangri í 800
og 1500 m.
— Met i hverju hlaupi er mitt
takmark, sagði Kristleifur Guð-
björnsson.
— Ferðin leggst vel í mig, sagði
Erlendur Valdimarsson, yngsti
þátttakandinn, 17 ára. Takmark
mitt er að setja unglingamet.
— Ég reyni að gera mitt bezta,
sagði Kristján Mikaelsson, á-
nægjulegt væri að setja met í 400
m. grindahlaupi og ná betri tíma
en 50 sek. í 400 m.
Björk Ingimundardóttir sagðist
ekkert geta sagt, nema það að hún
vonaðist til að ná sem beztum á-
rangri.
— Takmark mitt er að setja tvö
íslandsmet í 200 og 400 m. hlaupi,
sagði Halldóra Helgadóttir.
Kjartan Guðjónsson, sem fer
utan á morgun hefur verið meidd-
ur undanfarinn mánuð, en er nú
búinn að ná sér. Hann vonast eftir
að bæta árangur sinn í tugþraut,
en í fyrra setti hann unglingamet
í þriggjalandakeppni.
íþrottasiðan oskar hopnum geng Það var glaðlegur hópur, sem steig upp I Sólfaxa, Flugfélags
is og vonast til ao sem mest af
óskum hans rætist. ís,ands á slmnudaffinn.
Tveri af íslenzku keppendunum eru enn í unglingaflokki 19 — 20 ára og einn í drengjaflokki 17—18 ára.
Talið fra vinstri: Ólafur Guðmimdsson. 19 ára á þessu ári, Erlendur Valdimarsson. 18 ára og Halldór
Guðbjörnsson 19 ára. Myndir; Bj Bj.
* Steinius jafnaði finnska metið l
í langstökki á finnska meistara-
mótinu um helgina, stökk 8.04 m.
* Jens Erik Nielsen setti danskt
met í 400 m. grind á danska meist-
aramótinu um helgina, hljóp á
I 52.8 seg.
BANDARÍKJAMENN sigruðu Pól
verja bæði í landskeppni karla og
kvenna í Varsjá um helgina, í
karlakeppninni með 118 — 93 og í
kvennakeppninni með 59—51.
Wyomia Tyus hljóp 200 m. á 22.7
sek., sem er heimsmet. Hún sigr-
aði einnig í langstökki með 6.37
m. Pólverjar settu Evrópumet í
4x100 m. boðhlaupi, hlupu á 39.2
sek., en bandaríska sveitin á 39.5
sek. Nánar síðar.
* Finnar sigruðu Noreg í knatt-
spyrnu á sunnudag með 4 mörk-
um gegn engu. Áhorfendur voru
16 þúsund og fögnuður mikill.
* Alls voru sett fimmtán norsk
met á meistaramótinu í sundi um
síðustu helgi.
*
XO 10. ágúst 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
n