Alþýðublaðið - 10.08.1965, Síða 15
Kýpur
Framhald úr opnu.
stjórnar er skýlaus, sagði Kypri-
anou. Stjórnin viðurkennir ekki,
að nokkurt erlent ríki hafi rétt
til að skipta sén af innanríkismál-
um Kýpur, enda er sú afstaða í
fullu samræmi við sáttmála SÞ
og ályktunartillögu Öryggisráðs-
ins um Kýpurmálið.
Þegar Kýpurþing samþykkti liin
umdeildu kosningaákvæði voru að-
eins grískumælandi þingmenn við
staddir. Tyrkneskumælandi þing-
nienn hafa ekki tekið þátt í störf-
um þingsins síðan bardagar brut-'
ust út á eynni í desember 1963.
Þegar málið var tekið fyrir
settu grískir Kýpurbúar fjölmörg
skilyrði fyrir því, að tyrknesku
þingmönnunum yrði leyft að taka
þótt í umræðunum. Tyrkir töldu
þessi skilyrði óaðgengileg og litu
svo á, að um hreina uppgjöf væri
að ræða ef gengið yrði að þeim.
Þar sem Kýpurbúar af grískum
stofni eru í yfirgnæfandi meiri-
liluta á eynni mundu tyrkneskir
Kýpurbúar fá sárafáa þingmenn
kjörna ef gengið yrði til kosninga
samkvæmt nýju kosningalögunum.
Til þessa hefur tyrkneski minni-
lilutinn haft 15 fulltrúa á þingi
samkvæmt Kýpur-samningunum.
Auk þess bera þeir fram þá
kröfu, að felld verði úr gildi lög,
sem hafa verið samþykkt og eru á
þá lund, að embættistími Makari-
osar forseta og þingmanna allra
verði lengdun um tólf mánuði.
Embættistími dr. Fazil Kutchuk
varaforesta, leiðtoga tyrknesku-
mælandi manna, sem skipaður var
í embættið samkvæmt Zurich-
samningunum, verður ekki lengd-
ur.
★ Ólöglegt
Stjórn grískra Kýpurbúa tekur
þá afstöðu, að síðan SÞ skárust í
leikinn á Kýpur séu Ziirich-samn-
ingarnir fallnir úr gildi. í sam
ræmi við þessa kenningu hefur
stjórnin hafnað kröfum um fram-
lengingu embættistíma dr. Kutc-
uks og mótmælaorðsendingum frá
stjórnum Englands og Tyrklands,
sem ásamt Grikklandi eru skuld-
bundin samkvæmt samningum að
ábyrgjast það að samningarnir um
Kýpur séu liafðir í heiðri.
Síðan bardagarnir á Kýpur
náðu hámarki í ágúst í fyrrasumar
hefur allt verið með tiltölulega
kyrrum kjörum á eynni. Eitthvað
virtist rofa til í deilunni þegar ut-
anríkisráðherrar Grikklands og
Tyrklands ræddust við um deiluna
á NATO-ráðstefnunni í London í
vor, og samþykktu að stjórnir
landanna skyldu hafa samband sín
í milli um Kýpurdeiluna.
En vegna síðustu þróunar mála
liefur óttinn við nýja bardaga aft-
ur skotið upp kollinum. Og ef bar-
dagar brjótast út á nýjan leik er
ekki talið óhugsandi að Tyrkland
láti skeika sköpuðu og setji her á
land á eynni. Tyrkland lieldur fast
við það, að Zurieh-samningarnir
séu enn í fullu gildi. Og sam-
kvæmt samningunum hefur Tyrk-
land rétt til íhlutunar til þess að
vernda tyrkneska þjóðarbrotið á
eynni.
Stjórnmálamenn viðurkenna, að
ástandið sé hættulegt. Og því meir
sem gríska stjórnarkreppan
dregst á langinn því hættulegra
verður ástandið á Kýpur.
★ Hættulegt
„New York Times” segir um
málið, að það geti tæpast verið
nein tilviljun, að stjórnarkreppa
riki í Grikklandi á sama tíma og
forseti Kýpur reyni að ógilda kosn
ingaákvæði Kýpursamninganna.
Blaðið segir í forystugrein, að
Makarios forseti og grískir Kýpur-
búar hafi notað sér ólguna í Aþenu
til að freista þess að koma á lagg-
irnar stjórn á Kýpur sem verði al-
gerlega undir hans stjórn.
Tyrkir geta hins vegar brugðizt
hart við þótt þeir hafi enn ekki
beitt hinum mikla hernaðarmætti
sínum, bætin blaðið við.
„Vonandi er, að Makarios for
seti reyni ekki að láta sverfa til
stáls nú. Samt er það raunalegt
fyrir fólk í öðrum löndum heims
að fylgjast með því hvernig erki-
biskupinn leikur sér að eldinum“,
segir „New York Times”.
Atlavík
Framhald úr opnu.
Klukkan eitt þagna hljómsveit-
ir-nar og fólk drífur að bílum sín-
um. Innan skammg er vegurinn út
með Leginum varðaður Ijósaröð.
Hafi UÍA þökk fyrir framtakið.
S.Ó.P.
Mafían
Framhald af 6. síðu
brott úr Bandaríkjunum árið
1948. í Caltanissetta héraði á Mið-
Sikiley hefur baráttan gegn Maf-
íunni leitt til þess, að 161 hafa
verið handteknir á fyrri helmingi
þessa árs. Ennfremur hafa 810
verið ákærðir, en sleppt gegn
tr.vggingu. Gerð var húsleit í 468
húsum og 125 rifflar og skamm-
byssur gerð upptæk, ásamt 4000
skotum.
Kveðja
Framhald af 7. síðu
vegna hins skyndilega fráfalls
hennar.
Vertu blessuð og sæl, Þórunn
min. Far þú í friði, friður guðs
þig blessi, hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Fyrir hönd stjórnar Kvenfélags
Alþýðuflokksins.
Sigríður Erlendsdóttir.
Innbrotslbjófur
Framhald af 3. síðu
þar illa um. Þjófurinn virðist hafa
ge.ngið um rótandi í öllum hirzl-
um án þess að finna nokkra pen-
inga.
Leifur Jónsson hjá rannsóknar-
lögreglunni sagði Alþýðublaðinu
að svo virðist sem þjófurinn liafi
af ásettu ráði kveikt eld á þremur
stöðum. Svo hafi hann farið að
ráfa um húsið með logandi kyndil
í hendinni og hafi þá kviknað í á
nokkrum fleiri stöðum. Það var
einn af starfsmönnum ísafoldar
sem varð fyrstur var við skemmd-
irnar. Fann hann brunalykt, — og
skokkaði þá niður á slökkvistöð til
að láta vita af því. Þegar slökkvi-
liðið kom á vettvang var eldurinn
þó slokknaður, en töluverðar
skemmdir liöfðu orðið.
Skemmtiferð
Framhald af 7. slðu.
Um kvöldið sat svo ferðafólkið
kvöldverðarboð að Hótel Höfn, í
boði Skagfirðingafélagsins. Þar
voru mættir fjölmargir Skagfirð-
ingar, sem búsettir eru í Siglu-
f’rði og leið kvöldið í ágætum fagn
aði með hinum góðu gestgjöfum.
Vér viljum, fyrir hönd Kvenfé-
lags Sauðárkróks og gesta þess,
færa Skagfirðingafélagi Siglu-
fjarðar innilegustu kveðjur og
þakkir fyrir móttökurnar.
Ferðanefndin.
Singapore
Framhald af 2. síðu.
hafi komið á fót og að aðskilnað-
urinn sé alvarlegt áfall fyrir ný-
lendustefnu í nýrri mynd er leitt
geti til upplausnar sambandsrikis-
ins.
Ákvörðun Singapore um að
segja sig úr Malaysíu er hápunkt-
ur vaxandi úlfúðar hinna innfæddu
íbúa eyjunnar, en þeir eru Ma-
layar, og Kínverja, sem eru 90%
hinna tveggja milljóna íbúa. Kín-
verjar hafa kvartað yfir því, að
stjórn Malaysíu hafi gert Malays-
um of hátt undir höfði, en Mal-
ayar hafa kvartað yfir því að þeim
hafi verið haldið utan við beztu
stöður í Singapore. Deilur sam-
bandsstjórnarinnar í Kuala Lump
ur og fylkisstjórnarinnar i Singa-
pore hafa sífellt færzt í aukana
síðan Malaysíusambandinu var
komið á fót fyrir tveimur árum.
Forsætisráðherra Malaysíusam-
bandsins, Tunku Abdul Rahman,
sagði á þingi í dag, að draumur
hans um Malaysíu væri að engu
orðinn. Forsætisráðherra Singa-
pore, Lee Kwan Yew, fékk tauga-
áfall á blaðamannafundi, þar sem
hann gerði grein fyrir aðskilnað-
inum.
Það var á laugardag að Lee
Kwan Yew hélt til fundar við Ab-
dul Rahman í Kuala Lumpur —
vegna versnandi sambúðar Singa-
pore og sambandsstjórnarinnar.
Niðurstaðan af fundinum var að-
skilnaður.
íbúar Malaysíu eru harmi slegn
ir vegna aðskilnaðarins, sem kem-
ur með öllu á óvart, en Kínverjar
í Singapore hafa fagnað honum.
Á sínum tíma greiddu 70% íbúa
Singapore með stofnun Malaysíu-
sambandsins.
HjélfoarðaviÖgerÖir
OPH) ALLA DAGA
(LÍKA LAUGARDAGA
OG SUNNUDAGA)
FEÁ KL. 8 TXL 22.
Gúmmívinnustofan h.f.
Sklpholti 35, BeykjivOt.
Sfmu: 31055, verkstæíiS,
30688, skrlfítotan.
Tækniskólinn
Framhald af 2. síðu.
Skólinn hefur nú starfað óslitið í
fulla 10 mánuði. Skólaárið hófst
2. október og þar með er fengin
skýring á því hversu seint skólan
um lýkur nú, en samkvæmt gild-
andi reglugerð skal skólinn starfa
10 mánuði á ári.
Það markverðasta, sem gerðist
á skólaárinu verður að telja upp
byggingu eðlis og efnafræðistofa,
en stofur þessar voru teknar í
notkun í byrjun apríl mánaðar.
Án fullkominna tækja til verk-
legrar kennslu ásamt góðri að-
stöðu til notkunar þeirra verður
Tækniskóli íslands ekki sá máttar
stólpi, sem vænst er til.
Það var því áríðandi, að vel tæk
ist til við uppsetningu hinna
fyrstu tilraunastofa skólans og full
yrða má af þeirri reynslu, sem
fengin er, að þessi áfangi í upp
byggingunni hafi farizt ágætlega
úr hendi þeirra, sem að honum
unnu.
Á vegum Tækniskólans hafa far
ið fram byggingarframkvæmdir
við vélasal Vélskólans og er þeim
nær lokið. Umræddar eðlis- og
efnafræðistofur eru m.a. staðsett
ar í þessum nýju húsakynnum.
Próf byrjuðu 5. júlí og lauk þeim
6. ágúst. Viðstaddir próf voru er
lendir prófdómarar og jafnframt
sérfræðingar á þessu fræðslusviði.
Þeir nemendur, sem nú hafa lok
ið fyrrihlutaprófi og eru hér mætt
ir til að taka á móti skírteinum
sínum fara væntanlega í baust til
seinnihluta náms erlendis til að
ljúka námi þar og þá fyrst og
fremst til Danmerkur eða Noregs,
en við T. í. er enn sem komið er
að^ins veitt undirbúningsmennit
un undir tækninám ásamt fyrri
hlutamenntun í tæknifræði. Náin
samvinna hefur verið höfð á skóla
árinu við skólafólk þessara
tveggja áður nefndra þjóða og til
marks um það má nefna, að próf
verkefni í höfuðgreinum fyrrihluta
komu frá Danmörku. Nákvæmlega
samskonar verkefni og lögð eru
fyrir hina erlendu tæknifræði-
nema.
Hæstu einkunn á fyrrihlutaprófi
hlaut Gunnar Ólason 180 stig, sem
er I. ágætis einkunn og þar með að
aðaleinkunn 9,0. 8 lilutu I. einkunn
3 hlutu II. einkunn. 1 ágætis eink
unn er 9,0—10 I. einkunn er 7,3—
8,9, II. einkunn er 6,0 — 7 2.
Ein verðlaun veitlr skólinn og
hlýtur Gunnar Ólason þau fyrir
liæstu einkunn á fyrrahlutaprófi.
Undir dráttarvél
Frh. af 1. síðn.
vél, sem stóð rétt við þjóðveginn,
en bærinn stendur við þjóðbraut.
Sennilega hefur drengurinn farið
að fikta við dráttarvélina, — með
þeim afleiðingum, að hún rann af
stað og yfir veginn og valt þar,
og varð barnið undir henni. Sjúkra
bíll var þegar sendur eftir drengn-
um frá Akureyri og flutti hann á
sjúkrahús þar, en þegar þangað
var komið var hann látinn.
Uppreisn
Framhal af 1. síðu
Menn úr bandarísku strandgæzl-
unni stigu um borð í „Seven Se-
as”, sem er skráð í Panama, í gær
og fann þrjá menn látna og einn
á lífi um borð. Maður sá, sem einn
var á lífi, heitir Elwin Burywaise,
25 ára að aldri, og kvaðst hann>
hafa séð mann af áhöfn skipsins>
skjóta fyrsta stýrimann í káetu
sinni á laugardagskvöld. Burywai-
se hljóp upp í brúna til að að-‘
vara skipstjórann, en fann hana
látinn. ’
I
Burywaise hljóp óttasleginn tll
káetu skipskattarins og faldi sig
þar. Hann heyrði að skipzt var á
skotum á þilfarinu. Seinna fann
hann þrjú lík og komst að raun
um að björgunarbátur var horf
inn. Burywaise telur að fjórir
menn hafi verið drepnir og telur
strandgæzlan að líki fjórða manna
ins hafi verið fleygt útbyrðis.
Fimm flugvélar, tvær þyrlur,
fjögur varðskip og einn kútter
leituðu í dag að björgunarbátnum
og þeim þremur mönnum af á-
höfn skipsins, sem saknað er.
Allir þeir átta sem, sem tili
heyrðu áhöfn „Seven Seas” voru
frá Panama eða Honduras. Skipið
sem flutti banana frá Mexíkó til
Miami í Florida, er í eigu fyrirtæk-
is í Miami. Báturinn var væntan-
legur til Key West seint í gær-
kvöldi.
Kært...
Framhald af 1. síðu.
en skipið leggur úr höfn aftur.
Frekari ráðstafanir verða því ekki
gerðar af hálfu Sjómannafélags-
ins, nema vanefndir verði á því
loforði.
Að því er næst verður komist,
er mál þetta einnig i rannsókn hjá
skipaeftirlitinu.
SMURI BRAUÐ
Snittur.
Opið frá U. 9—23,38
BrauSstofan
Yesturgötu 25.
Sími 16012
Ávallt fyrirliggjandi.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. ágúst 1965