Alþýðublaðið - 01.10.1965, Side 16
Lifir i
HVERNIG er ihann 'þessi maö-
ur, sem gat með köldu blóði, skot
ið fjóra lögreglumenn, því næst
gefið sig sjálfur fram, en segir við
varðhaldsúrskurðinn: — Ég veit
vel, að þetta er aðeins tylliástæða
til þess að fangelsa mi;g? Margir
spyrja þessarar spurningar í Dan
mörku um þessar imundir og svar
ið hlýtur að vera: Hann er tákn
rænn kleifhugi. Hann vild.i bæði
verða stórglæpamaður og venjuleg
ur borgari, þekktur af kurteisi og
hjálpsemi.
Einn af íbúunum i húsinu Itali
ensvej 6, frú Laura Rossmann sem
hefur þekkt morðingjann í 27 ár,
skilur varla enn þá, að það skyldi
vera hann, sem skaut lögreglu-
bjónana ifióra. Svb mik'ð varð
henni um fréttina að hún svaf ekki
næstu nótt á eftir.
★ ÞAÐ ER EKKI PALLI!
— Það er ekki, Palli! Það er
ekki Palli, sagði ég hvað eftir
annað við sjálfa mig, bæði þegar
ég sá Simca—bíl hans á götunni
og þegar hann gaf isig fram. Það
getur vel verið þessi bíll, en það
er ekki Palli, sem skaut lögreglu
biónana, sagði ég við sjálfa mig.
Ég hef þekkt Pallá I þau 27 ár,
sem ég hef búið hér, segir frú
Rossmann. Þegar hann var ungur,
var hann góður og þægur dreng-
ur, sem alltaf var hjálpsamur.
Hann sagði aldrei við mia eins
og hinir strákarnir: „Þú þarna,
gamla kerling“. Það gerði hann
aldrei.
★ FAÐIRINN LÖGREGLL’-
ÞJÓNN.
Það er hræðilegt. að móðir hans
skyldi þurfa að lifa þetta. Faðir
hans var lögregluþjónn, er. lézt úr
hjartaslagi 1949. Sumir segja, að
það hafi gerzt um sama leyti og
Palli brauzt inn í fyrsta skipti.
Þetta er óskiljanlegt. Pallj var
svo góður og þroskaður, sem hver
annar. Hann heilsaði alltaf og
•spurði hvernig gengi. Hann fékk
líka alltaf hegðunarnáðun í fang
oooooooooooooooooooooooooooooooo
Spilamennska.
Nú hef ég alla ævi
ótrauður setið við spil.
Stundum var styrkleikiun hinna,
en stxmdum mér í vil.
Og ásamir, einstaka Sinnum,
komu allir á mína liönd.
I hrifningu minni ég hróðugur
lirópaði: „Sex grönd!“
Oft voru álitleg spilin,
en alltaf þó stöðugt tap.
Og yfir því auðnuleysi
mér auðvitað rann í skap.
Þó virtist mér voðalegast,
og versta helvítis smán,
þegar átti ég f jóra ása
og varð ellefu slagi „dán.“
Kankvís.
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO'
AUtaf er gott að vita af
djassþætti — skenuntilegur
og lævíslegur áróður fyrir
i djassi er mikið nauðsynja
mál og holl lýsisgjöf í fá-
breytilegu blóðleysi bítla-
skruðningsins. . . .
Þjóðviljaspeki.
Mikil tíðindi gerast nú á
landi hér. Gosið á hálendinu
reyndist vera gabb. En gat
ekki verið um fyrirburð að
: ræða? Jú, það kom einmitt
á daginn: Prentarar fóru
nefnilega EKKI í verkfall.
Laura Rossmann hefur þekkt Palle Sörensen í 27 ár.i
elsinu, því hann hegðaði sér svo
vel. Hann er mjög gáfaður og
mjög laginn. Allt leikur í hönd-
um hans.
★ VARÐ AÐ LOSNA.
Morðið á lögreglumönnunum
fjórum hefur aftur vakið umræð-
ur um tilraunanáðunina og spurt
er, hvort nægilegt tiilit hafi verið
tekið til þess, hversu hættulegur
Palli var umhverfi sínu. Geðlækn
irinn Jan Sachs, yfirlæknir í rík
isfangelsinu í Ilorsen, sem hafði
Palla Sörensen undir höndum í
þau fjögur og iháLft ár, sem hann
var til gæzlu, segir:
— Palli Sörensen hafði setið ó-
vanalega lengi i fangelsi, þegar
hann varð látinn laus 1962, ef það
er Ihaft í huga að hann var dæmd
ur fyrir einfalt auðgunarafbrot.
Málið var þannig vaxið, að ekki
varð komist hjá að láta hann laus
an.
— Mál Palla Sörensen var at-
hugað af mikilli nákvæmni og við
vorum mjög varkárir. En hann
hafði þá ekki gert srg sekan um
nokkuð hættulegt afbrot og ástand
ið var þannig, að við urðum að
láta hann lausan sem og rétturinn
samþykkti.
★ LIFÐI í ÍMYNDUNARIIEIMI.
Við héldum einnig, að töluverð
ur árangur hefði náðst, segir
Satíhs. í rauninni fór það fram
úr öllum vonum. Við höfðum
mjög náið samband við PaJla Sör
ensen, sem yfirlögregluþjónninn
Tage Tiirck sá um, og við eigum
imikið efni í skýrslum um hann
eftir að hann var látinn laus. þetta
leit allt mjög vel út. Það var
tnjög gott trúnaðarsamband á
milli.Palla Sörensen og yfirlög-
regluþjónsins.
— Við vitum einnig frá samtöl-
um við Palla Sörensen, að hann
lifði að mjög mildu leyti í ímynd
unaráieimi, bæði í sambandi við
uppfinningar og einnig í sambandi
við afbrot.
— Auk þess er hann bitur út
í samféiagið, ekki livað sízt lög
regluna.
— Hvort það hafði áhrif, að fað
ir hans var lögregluþjónn, vil ég
sém minnst nm tala — segir yfir-
læknirinn að lokum.
★ LEYNILÖGREGLUMAÐ-
URINN ÁNÆGÐUR?
Við leit að morðvopninu. reyndi
Palli Sörensen allt livað hann gat,
til þess að hjálpa til, og þegar
liann fann morðvopnið varð hann
•mjög stoltur og spurði leynilög-
reglumanninn Hornslet, hvort
hann væri ánægður.
Sagt er að Palli Sörensen hafi
aldrei haft sérstakan áhuga á
kvenfólki og hann fór aldrei út
að skemmta sér.
Uppeldi hans var ekki neitt eér
staklega þvingað: Aftur á móti er
það vitað að hann átti í erfiðleik
um félpgslega, var feiminíi, en það
reyndi hann stundum að yfirstíg®
með því að látast vera stórmenni,
•með bílum, mótorbátum og penr
ingumi
Þaff eru sjö hlutir sem
sérhver gæi girnist: Sex og
brennivín. . .