Alþýðublaðið - 12.11.1965, Page 9

Alþýðublaðið - 12.11.1965, Page 9
MARGAR GAMLAR VÉLAR ERU-ENN TIL i» Hér sannar Lárus Sigurbjörnson safnvörður, aS þessi gamla vél er enn gangfær. ur Bjarria riddara Sívertsen, — hún var hér í Reykjavík um 1840 og var saumakona. Maddama Sí- vertsen hafði fengið um þetta leyti saumavél og ég er alveg viss um, að sú fyrsta þeirra kemur á þessum árum, það er að segja í kringum 1840. — Manstu eftir fleiru í sam- handi við fyrstu saumavélarnar? —. Já, það var í bréfi, sem ég datt einu sinni ofan á, — að vísu var það frá 1880, en þar er kona að segja frá gamalli saumavél, sem hét Saxonía. Þetta var gömul ráðskona, sem var hjá séra Frið- riki Eggerz vestur á Skarðsströnd og hún átti þessa forláta sauma- vél, sem hét Saxonía og vakti vélin eftirtekt allra, sem hana sáu. Ráðskonunni var svo annt um hana og véiin orðin gömul um þetta leyti, því að hún var búin að eiga hana frá því um miðja öldina. Hún hét Ingiríður, þessi gamla kona, og þessu man ég vel J eftir, af því að ég hefi skrifað um konuna einhvern tíma fyrir löngu síðan. í bréfunum, sem hún skrifaði til séra Friðriks Eggerz, fer liún gæluorðum um Saxoníu sína. Þetta þótti alveg viðundur í þá tíð, á móts við það að hand- sauma allt. — Svo hafa líka verið til kon- ur, sem hafa verið svo lagnar við handsauminn, að þær hafa ekki viljað nota véltæknina, — eða er það ekki rétt? — Jú, jú; ég hef til dæmis séð | gamla konu falda léreftsskyrtu, með því að næla henni í hnéð á sér og sauma síðan að sér svo jöfn spor, að það var ekki milli- metersfeill á því. Þær voru mjög vel vinnandi margar af þessum gömlu konum, og það var sérstak- lega athyglisvert, hvað þær voru vel að sér til dæmis með skógerð. Þegar ég var ungur maður fyrir vestan, þá voru allir á íslenzkum skóm, fyrir svona 50 árum. Þá voru skórnir þarna við Breiða- fjörð og á Snæfellsnesi hrein- ustu listaverk á móts við skóna hér á Suðurlandi, þegar við fluttum hingað. Þeir voru bæði svo fallegir á fætinum og svo vel sniðnir, því að konur þeirra tíma voru alveg listakonur í að gera þessa skó. Maður tók eftir þessu, því að þeir voru það þéttir að fæt- inum, skórnir, að það komst alls ekki snjór ofan í þá. — Hefurðu séð einhverjar af fyrstu saumavélunum? — Þær voru úr eintómu járni þær fyrstu, en ekki á trébretti. Það þótti endurbót er aldamótavél arnar komu, þegar þær fóru að koma með póleruð bretti, og svo varð aítur mikil breyting, þegar þær fóru að verða stignar. Þá voru þær allar komnar á borð úr tré, glansandi og fallegar, með skúffu undir borðinu fyrir smá- hluti. Saumavélarnar hafa alltaf verið að breytast til hins betra. Þær voru allar fyrstar Að síðustu ákváðum við, að snúa okkur til Lárusar Sigurbjörnsson- ar safnvarðar hjá skjala- og minjasafni Reykjavíkurborgar, og spurðum, hvort nokkrar gamlar saumavélar væru í safninu hjá honum. Hann kvað já við því, og sagði, að þær væru víst einar 27 talsins, en óvíst væri með aldur þeirra flestra; þær væru allar gamlar, og margar hvérjar væru vel gangfærar og í bezta lagi. — Yfirleitt er það regla, þegar komið er með gamlar saumavélar hingað í safnið, sagði Lárus, að fólk telur þær hverja um sig vera fyrstu saumavélina, sem kom til landsins. -óís* Hin heimsþekkta Bernina-saumavél mælir með sér sjálf — það sannar hin stóraukna sala frá degi til dags. Fjórar gerðir fyrirliggjandi. Útvegum allar iðnaðarvélar. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: Ásbjörn Ólafsson h.f. Grettisgötu 2 A. « Stíllíð ú líf og saumíð - Það er þessi einfalda nýjung, sem kölluð er „Colormatic", sem á skömm- tim tíma. heíui* aukið vinsældir HUSQVARNA 2000 til stórra muna. •Beinn saumur, hnappagot, Mlndfaldur og úrval fÉte HUSQVAftNA heimilÍEtækl, saumavéla'r o, fl. rnynztursauma er hægt aS velja með einu hand- . fjjií eru þehkt hér á ianöi í yfir 60 ár. Hafa naíniná .a 1. Þar sem það er synt á greinilegan' hátt, i)tr mi annarstaSar stööugt vaxið vinsældir. i IUum, a „saumveljara ; íslenzkur leiðarvísir fylgir nú með vélunum. Ef þér komizt ekki til að kynna yður véiina, sendum vér yður sölumann heim eftir lokun. Hringrið og ieitið upplýs- inga. unnai Stfþzzetiööan h.f. Suðurlandsbraut 16 - Reykjavik - Simnefni: »Voiver« - Simi 35200 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. nóv. 1965 9

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.