Alþýðublaðið - 12.11.1965, Side 11
tiRifstjóri Örn Eidsson
Kennsludagur fyrir
giímukennara
Á stjórnarfundi Glímusambands
ins þann 7. nóv. 'sl. var ákveðið
að hafa kennsludag fyrir glímu
kennara sunnudaginn 21. nóv. n.k.
í Reykjavík.
Kennarar verða: Þorsteinn Ein
arsson, íþróttafulltrúi, sem verður
yfirkennari. Þorsteinn Kristjáns
son, Guðmundur Ágústsson, Haf
steinn Þorvaldsson.
Allar nánari upplýsingar um
kennsludaginn veitir formaður
Glímusambandsíns, Kjartan Berg-
niann.
Glímubúninganefnd:
Stjórn Glímusambandsins hef-
ur skipað þrigg.ia manna nefnd
til að gera athugun á glímubúnaði
glímumanna og semja reglugerð
um hann.
Nefnd'na sk’pa þessir menn
Gísli Guðmundsson .formaður,
Þorsteinn Kristjánsson og Rögn-
valdur R. Gunnlaugsson.
Verkaskipting stjórnar Glímusam
bandsins.
Formaður var kosinn á ársþingi
Glímusambandsins Kjartan Berg-
mann Guðjónsson, Reykjavík, og
með honum í stjórn voru kjörnir
eftirtaldir menn, sem skiptu síð
an með sér verkum á fyrsta fundi
stjórnarinnar þannig: Varaformað
ur var kjörinn S'gurður Erlends
son Vatnsleysu, Biskupstungum,
bréfritari Ólafur H. Óskarsson,
Reykiavík, fundaskrifari Sigurður
Geirdal Kópavogi, og gjaldkeri
S'gtryggur Sigurðsson Reykjavík i
Varastjórn skipa þessir menn:
Sigurður Ingason, Reykjavík, Valdi
mar Óskarsson, Reykjavík og Elí
as Árnason, Reykjavík.
§pl|§g§
Þessi hraastlegi náungi heitir Romuald Klim og er rússneskur,
Klim varð ólympiumeistari í sleggjukasti í Tokyo.
Efnilegar
sundkonur
Sundfólk æfir nú af miklu
kappi, en síðast í þessum
mánuði fer fram fyrsta sund j
mót vetrarins í Reykjavík.
SUilkxirnar á myndinni eru j ;
allar í Ármanni. Þær heita, ;;
talið frá vinstri: Hrafnhild- !!
ur Kristjánsdóitir, Mátthild-
ur Guðmundsdóttir og Eygló
Hauksdóttir. Þessar stúlkur
haf sett fjölmörg íslandsmet
i boðsundum undanfarið, en
ennþá hcfur þeini ekki tekizt
að sigra sunddrottningu okk-
ar Hrafnhildi Guðmunds-
dóttur, ÍR.
1 WWWMWWWWWMWWMMII
★ Nokkrir leikir fóru fram í
fyrrakvöld í evrópskri knatt-
spyrnu auk þeirra, sem við skýrð-
um frá l blaðinu í gær. Sport-
ing, Portúgal vann Barcelona,
Spáni 2:1 í fxjrri leik 2. umferð
liðanna í borgabikarkeppninni.
í Búdapest sigraði Dukla, Tékkó
slóvakiu Honved með 2:1 í síð-
ari leik liðanna í Evrópubikar-
keppni bikarmeistara. Dulka vann
fyrri leikinn með 3:2 og fer í
3. umferð. Borussia, V,Þýzkalandi
sigraði CSK, Búlgaríu i fyrri leik
liðanna í Evrópubikarkeppni bik-
armeistara með 3:0.
★ Ensk blöð eru mjög óánægð
með leik enska liðsins við Norð-
ur-írland í fyrrakvöld, þrátt fyrir
sigurinn 2:1. Það er sérstaklega
framlínan, sem blöðin skamma,
hún hefur aðeins skorað 9 mörk
í sjö leikjum og það þykir lélegt.
Blöðin hrósa aðeins einum manni
Joe Baker, Arsenal, sem lék með
í stað Jimmy Greaves, sem fékk
inflúensu.
-0—
★ Joey Archer sigraði Sugar
Ray Robinson á stigum í 10 lotu
keppni í millivigt i fyrrakvöld.
íslandsmeistarar KR í körfu-
knattleik fóru áleiðis til Stokk-
hólms í gær með flugvél Loftleiða.
í förinni eru 10 leikmenn, en farar
stjóri er Halldór Sigurðsson, for
maður körfuknattleiksdeildar KR,
en þjálfarinn, Phil Benzing, er
einnig með í förinni.
Eins og kunnugt er töpuðu KR-
ingar fyrir Alvik á Keflavikurflug
velli á sunnudaginn með 12 stiga
mun, 60:48 og til þess að komast
í aðra umferð og fá tækifæri til
að leika við Evrópumeistarana,
Real Madrid, þurfa þeir að sigra,
Svíana með 13 stiga mun á morg
un.
KR-liðið er staðráðið í að leggja
sig fram til hins ítrasta og liða
menn eru hinir bjartsýnustu á,
að þeim takizt að sigra Svíana 4
morgun.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. nóv. 1965