Vísir - 04.08.1961, Page 16
VISIR
Föstudagur 4. ágúst.
Bræðstusíld
fyrir 4,8 millj.
Siglufirði 3. ágúst.
Síldarverksmiðjur ríkisins og
Rauðka mala nú gull allan sól-
arhringinn, og hafa þær á yfir-
standandi síldarvertíð tekið á
móti miklu magni síldar. Síld-
arverksmiðjurnar eru komnar
með nær 220.000 mál og Rauðka
nálgast óðum 100.000 mál. Með
því sem S. R. á Raufarhöfn hafa
tekið til vinnslu eru Ríkisverk-
smiðjurnar alls búnar að taka á
móti 382.000 málum. Miðað við
bræðslusíldarverðið eins og það
var ákveðið í byrjun vertíðar,
hafa því Síldarverksmiðjurnar
greitt fyrir þessa síld nær 4.8
milljónum króna.
Síldarsöltunin er samkvæmt
síðustu tölum orðin 333.594 tn.
og hefir ekki verið saltað ann-
að eins allt frá árinu 1938.
Stdraukið eftirlit um helgina.
Nú um verzlunarmanna-
helgina mun lögreglan gera
sérstakar ráðstafanir til
þess að halda uppi röð og
reglu á vegum úti, og á
þeim stöðum þar sem mest
kemur saman af fólki. —
Þetta tjáði lögreglustjóri,
Sigurjón Sigurðsson, Vísi
í morgun. Munu lögreglu-
menn og aðrir eftirlits-
menn verða staðsettir út
um land allt og hafa aldrei
áður verið gerðar eins víð-
tækar ráðstafanir vegna
þessarar helgar. Eitt af ný-
mælum er það að nú verða
staðsettir 4 lögregluþjónar
á Þórsmörk, en þar hefur
viljað bera á ólátum á und-
anförnum árum. Er þar
Norrænir forsætis-
ráðherrar á fundi.
Forsætisráðherrar Svíþjóðar,
Danmcrkur og Noregs komu
saman til fundar í fyrradag á
sveitasetri sænska fjármálaráð
herrans. Einnig voru komnir til
Annar ölvaöur
hinn próflaus.
í fyrrinótt komu lögreglu-
menn að bifreið sem ckið hafði
verið út af Sogavegi.
Lögreglumennirnir þóttust
sjá á hjólförunum að eitthvað
hafi verið athugavert við þann
sem bílnum ók. Fóru þeir því
heim til eigandans, sem hátt-
aður var ofan í rúmið sitt og
var þá rakur nokkuð. Fluttu
þeir manninn í lögreglustöðina
og játaði hann að hafa ekið
bílnum nokkurn spöl aftur á
bak, en verið sjálfur undir á-
hrifum áfengis. Missti hann
bílinn út af veginum en nennti
ekki að eiga meira við hann og
fór heim og háttaði.
Sömu nótt varð árekstur
milli tveggja bifreiða á mótum
Rauðarárstígs og Laugavegar
kl. 2.10 eftir miðnætti.
Annar bíllinn var varnarliðs-
bifreið og sá sem henni ók var
réttindalaus. Kvaðst hann hafa
fengið bifreiðina að láni hjá
kunningja sínum í þessa öku-
ferð. Ekki er getið skemmda á
farartækjunum, en lögreglan
'tók bifreið varnarliðsmannsins
vörzlu sína.
fundarins fulltrúar hagsmuna-
samtaka sérlærðra verka-
manna.
Ekki er vitað um umræðu-
efnið annað en það. að rætt var
um hvernig mætti viðhalda nor
rænni samvinnu við þær að-
stæður að Norðurlöndin gangi
inn í sameiginlega markaðinn.
Þá var einnig rætt um það
hvernig kanna mætti þau
vandamál, sem rísa kunna fyr-
ir launþega, með inngöngu
Norðurlanda í markaðinn.
meS reynt að girða fyrir,
að einstakir menn geti
skemmt helgarfriSinn fyrir
öSrum, meS óhóflegri
drykkju og skrílslátum.
Hér á Suðurlandi munu verða
staðsettir lögreglumenn, og
deildir frá lögreglunni á Þing-
völlum, Laugarvatni og öðrum
þeim stöðum, þar sem mest er
um aðkomufólk. Lögreglumenn
úr Reykjavík munu halda uppi
gæzlu á vegunum frá Reykja-
vík, bæði upp í Hvalfjörð og
austur yfir Hellisheiði, og
verða þar á ferðinni menn úr
umferðadeild lögreglunnar hér,
en þeir hafa bæði til umráða
grimi'j,'
bifreiðar og bifhjól.
Er austur kemur fyrir Kamba,
þá tekur vegalögreglan við, en
auk þess mun Selfosslögreglan
annast gæzlu á sínu umráða-
svæði. Vegalögreglan mun
þannig hafa eftirlit á öllum
vegum sunnanlands.
Á Vesturlandi verða einnig
staðsettar sérstakar deildir,
auk þeirra vegalögreglumanna
og annarra sem fylgjast með
umferð á vegum úti. Umferða-
deild Reykjavíkurlögreglunnar
mun annast gæzlu á Hval-
fjarðarveginum, en er nær
dregur Borgarfirði, og í honum
sjálfum verður eftirlitið bif-
reiðaeftirlitsins og sérstakra
lögregluþjóna. Að sjálfsögðu
mun Borgarneslögreglan að
auki annast gæzlu á sínu svæði.
Þá verða sérstakar deildir
lögreglumanna á öllum helztu
samkomustöðum á Vestur-
landssvæðinu. Þannig verður
sérstök deild í Bjarkarlundi. Á
sjálfum Vesturlandsvegi, þ. e.
í Dalasýslu og allt vestur á
Vestfirði verður sérstök vega-
lögregludeild á ferðinni.
Sérstakt nýmæli er löggæzl-
an á Þórsmörk, en þar verður
strangt eftirlit með óróaseggj-
um. Að lokum vildi lögreglu-
stjóri hvetja menn til varúðar
og aðgæzlu um þessa helgi, og
tekur Vísir undir þau orð.
Frk. Vigdís Jónsdóttir.
Árangurslaus fundur
með verkfræðingum.
f GÆR var haldinn stuttur
fundur verkfræðinga og vinnu
veitenda þeirra með sáttasemj-
ara. Hófst fundurinn klukkan
17 og var lokið um það bil
klukkutíma síðar. Ekkert gerð
ist á fundinum, sem breytir
stöðunni í málinu, eins og hún
hefur verið síðan verkfræðinga
verkfallið hófst Ekki hefur
verið boðaður annar fundur.
Skipuð skólastjóri.
Nýlega setti menntamála-
ráðuneytið frk. Vigdísi Jóns-
dóttur skólastjóra húsmæðra-
skólans að Varmalandi í Borg-
arfirði til að vera skólastjóri
Húsmæðrakennaraskóla Is-
lands um eins árs skeið frá og
Kommúnistar
með hækkun.
Þau tíðindi gerðust á fundi bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar í gær, að tveir kommúnistar af þrem, sem
þar eiga sæti, samþykktu með öðrum bæjarfull-
trúum, að nauðsynlegt væri að hækka útsvörin
vegna fyrirsjáanlegra útgjaldahækkana, sem hafði
ekki verið gert ráð fyrir við samningu fjárhags-
áætlunar. — Samþykkt var með átta samkljóða
atkvæðum, að hækka skyldi útsvönn um 200 tms-
und krónur. Níundi maðurinn sat hjá, og var það
þriðji kommúnistinn, sem i bæjarstjórninni situr.
Útsvörin eru 8% undir útsvarsstiga kaupstaðanna,
en að auki fá þeir, sem greiða útsvör sín að fullu
fyrir 1. september, 10% afslátt.
með 1. september n.k. að telja.
Jafnframt lætur frk. Helga Sig
urðardóttir sem verið hefur
skólastjóri Húsmæðrakennara-
skólans um langt skeið, af störf-
um.
er
Frk. Vigdís Jónsdóttir
fædd 6. marz 1917 að Deildar-
tungu i Borgarfirði. Stundaði
hún nám við héraðskólann að
Reykholti, Garðyrkjuskólanum
að Reykjum og Húsmæðra-
kennaraskóla íslands. Hún var
og á sérstöku námsskeiði í hús
stjórn við Árósaháskóla 1956
til 1957.
Frk. Vigdís varð kennari við
húsmæðraskólann að Hallorms
stað 1944—4. Hún varð skóla
stjóri að Varmalandi árið 1946
og hefur verið það síðan.
Komust ekki
fyrir Langanes
ALLGÓÐ síldveiði var síðdegis
í gær og fram eftir nóttu, en
minni aftur nú í morgun, sagði
fréttaritari Vísis á Raufarhöfn
laust fyrir hádegi. Yfir 50 skip
höfðu tilkynnt um afla og flest
með fullfermi. Ætlaði þorri
flotans inn til Raufarhafnar og
lengra, en þegar skipin komu
að Langanesi var þar bræla og
ekki lengra komist. Sneru þau
því inn til Austfjarðahafna. í
morgun var veiðiveður ekki
sem hagstæðast á miðunum, en
þó var ekki svo slæmt orðið
laust fyrir hádegi, að skipin
gætu ekki verið að.
Meðal aflahæstu skipanna
eru Akraborg með 1650 mál,
Víðir II. 1250, Guðrún Þorkels-
dóttir 1400, Ólafur Tryggva-
son 1100, Sigurður Bjarnason
1400
Landanir í Þýzkalandi.
Undanfarin ár hafa togararn
ir hafið Þýzkalandssöluferðir
þegar komið hefur fram í ágúst
mánuð, en í V-Þýzkalandi er
tollum af innf'uttum ísvörðum
fiski aflétt 1. ágúst.
í morgun skýrði Hafsteinn
Baldvinsson skrifstofustjóri L.
f.Ú. blaðinu svo frá, að land-
anir togara í V-Þýzkalandi
myndu ekki hefast fyrr en í
september. Til þess liggja ýms-
ar ástæður m. a. tregur afli hjá
togurunum.