Vísir - 15.01.1962, Síða 2
2
V I S I R
Mánudagur 15. janúar 1962
Uppdrátturinn sýnir hugsanlega flugleið Neptune-flugvélarinnar sem týndist á föstudaginn.
12 vaskir menn fór-
ust í flugsiysinu. ■
Sá sorglegi atburður gerðist
s. 1. föstudagsmorgun, að
könnunarfluvél frá Varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli týnd-
ist á ískönnunarflugi yfir haf-
inu milli Vcstfjarða og Græn-
lands. Hefur vélarinnar mikið
verið leitað síðan, en vonir
eru nú orðnar litlar um að
nokkrir mcnn af áhöfninni
finnist á Iífi.
•
Flestir nýkomnir til landsins.
Með flugvélinni voru 12
bandarískir varnarliðsmenn,
allir úr flotanum. Allt voru
þetta ungir og vaskir menn.
Þeir munu alveg nýlega hafa
verið komnir hingað til lands,
nema einn þeirra að nafni
John A. Brown, sem hafði
dvalizt hér síðan í apríl s. 1.
Brown læknir hafði starfað
við hersjúkrahúsið á Keflavík-
urvelli og feetið sér miklar
John A. Brown læknir.
vinsældir þar. Hann var
fæddur 11. maí 1933 og því
ekki orðinn fullra 29 ára.
Hann var giftur sænskri konu
að nafni Ingrid Maria. Bjuggu
þau til skamms tíma á KefJa-
víkurflugvelli og voru barn-
laus. Fyrir nokkru sneri konan
heim til Bandaríkjanna, enda
körfuknattbik'
• Næstk. miðvikudagskvöld fer
fram hraðkeppni í körfuknatt-
leik að Hálogalandi.
Þátttakendur verða 5, ÍR, Ár-
mann, ÍKF, Stúdentar og KFR.
Mótið verður útsláttarkeppni,
leiktími 2x12 mín.. og engin
hlé. \
Mótið hefst kl. 8,15.
ártti Brown læknir bráðlega
einnig að fá að fara heim.
Brown var í flugferð þessari
að gera flughæfnisathuganir á
flugmönnunum og því voru
svo margir í flugvélinni, en
annars munu ekki vera fleiri
en 6 menn í slíku ískönnunar-
flugi.
Flestir 21—25 ára
Um fjölskyldur hinna mann-
anna sem fórust veit Vísir
ekki^ enda voru þeir allir ný-
komnir til landsins. En menn-
irnir voru þessir:
Hefst á morgun. -
Frh. af 16. s.
ur þorri bæjarbúa hafa ver-
ið bólusettur a. m. k. einu
sinni og víst er að þeir eru
taldir sterkir fyrir. Annað
mál er það, að menn eru
ekki taldir öruggir sé bólu-
setningin orðin eldri en
þriggja ára.
Við bólusetninguna, sem
tekur aðeins augnablik, ber
að varast beina snertingu
fingra þar sem bólusett hef-
ur verið. Er kvenfólk t.d.
ýmist bólusett aftan á herða-
blað eða í læri. Karlmenn
aftur á móti eru bólusettir
í handlegg. Illt getur hlotizt
af því, ef bóluefnið kemst í
opið sár eða einhverskonar
kaun, eða exem. Hugsanlegt
er að fólk kenni lasleika á
eftir, en það mun fljótlega
jafna sig.
ir
Bóluefni það sem notað
verður er frá Danmörku og
hingað keypt á vegum heil-
'brigðisyfirvaldanna. í til-
kynningu borgarlæknisemb-
ættisins var þess og getið að
Seltirningar geti einnig snú-
ið sér í Heilsuverndarstöð-
ina og fengið sig bólusetta.
Bólusetning barna fer fram
í Heilsuverndarstöðinni síð-
degis í dag, eins-og venju-
lega á mánudögum.
Benóný -
Hér sést Neptune-flugvél á Keflavíkurflugvelli. Sama tegund og sú sem fórst á föstudaginn.
Eriendir sérirteðimgur
rteða efnahagstnúlin„
Undanjarið liaja julltrúar jrá
Alþióða-gjaldeyrissióðnum í
Washington og Ejnahags- og
jramjarastojnun Evrópu í París
átt viðrœður hér í Reylcjavík
við julltrúa ríkisstjórnarinnar.
Umræðuefnið hefur verið á-
stand og horfur í efnahagsmál-
um landsins. Fara slíkar viðræð-
ur jafnan fram árlega, síðast í
nóv.-des. 1960. Er svo fyrirmælt
í reglum Alþjóðagjaldeyrissjóðs
ins, að á hverju ári skuli slíkar
viðræður haldnar við þau ríki,
sem ekki hafa fullkomlega
frjáls gjaldeyrisviðskipti, en ís-
land er eitt meðal þeirra, sem
kunnugt er. Frá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum komu þrír fulltrú-
ar hingað til viðræðna, en tveir
frá Efnahags- og framfarastofn-
uninni. Er viðræðum þessum nú
lokið.
Frh. af 16. s.
Sólmundarson og Sigurður
Jónsson, Haukur Angantýsson
og Halldór Karlsson, Ólafur
Einarsson og Benedikt Hall-
dórsson, Björn Þorsteinsson og
Anton Sigurðsson.
A sunnudag:
Benóný vann Helga Jónsson,
Sigurður Jónsson vann Her-
mann, Haukur vann Ólaf,
Gylfi vann Bjarna, Björn vann
Þorstein, Bragi Björnsson vann
Anton, Jón Kristinsson vann
Egil Valgeirsson. Biðskák varð
Halldór, Karl vann Benedikt
og Bragi Kristinsson ’ vann
milli Kára og Jóns Hálfdanar-
sonar.
Staðan:
Eftir þetta er staðan þannig
að Benóný er efstur með 4
vinninga, Bragi Kristinsson
og Gylfi Magnússon koma næst
ir með 3 vinninga, en Sigurð-
ur Jónsson á 2% vinning og
biðskák.
Robert J. Kozak flugstjóri 40
ára, Anthony Caswic 24 ára,
Badger C. Smith 25 ára,
Michael Leahy 24 ára, Joseph
W. Renneberg 23 ára, Norman
R. Russell 23 ára Grover E.
Wells 25 ára Frank E. Parker
23 ára, Robert A. Anderson
24 ára, Robert E. Hurst 22 ára
og Alan P. Millette 21 árs. Eins
og sést af þessari upptalningu
voru þetta flest ungir menn
á aldrinum 21 til 25 ára og
munu fslendingar bera mikla
samúð til fjölskyldna þeirra.
Framh. af bls. 16.
milli bílanna. Voru tveir bíl-
anna komnir niður úr brekk-
unni þegar snjóflóðið féll, en
hinir urðu fyrir ofan það, svo
að engan sakaði. Þarna hrann-
aðist upp 6 metra hár snjóvegg-
ur á veginn, og var ýtan tvær
klukkustundir að ryðja bílun-
um braut í gegnum hrönnina.
Frá Bakkaseli og til Akureyr-
ar, sem er um 1 klst. akstur í
góðu færi, voru bílarnir 17
stundir á leiðinni.
Ös í bólu-
setningu. -
Framh. aí. 1. síðu.
stúlkan á myndinni var með-
al þeirra hugrökku. ,)
— Ertu að fara til útlanda,
spurðum við einn kunningj-
ann hjá Eimskip. — Nei,
þetta er komið til Leith, og
við erum alltaf að taka í
hendurnar á Leithmönnum.
Það er bezt að ljúka þessu
af. —
Kona með eitt barn sagð-
ist hafa komið af því að
þetta var barnatími.
Við spurður sjö stráka úr
sama tíu ára bekknum í
Austurbæ j arbarnaskólanum
hvort kennarinn hefði skip-
að þeim að fara. Þeir héldu
nú ekki, það hafði enginn
sagt þeim neitt. En hvers
vegna voru þeir þá að flýta
sér svona. — Heldurðu að
við viljum drepast, sagði
einn kotroskinn og svo rudd-
ist hann fram fyrir alla og
fékk afgreiðslu á mínútunni,
var búinn að bretta upp
skyrtuermunum áður en
konan var búin að finna
nafnið hans í spjaldskránni.
Svo vatt hann sér inn fyrir
og sagði: — Komið þið
strákar.
En þeir urðu að bíða eftir
afgreiðslu. Nokkrir strákar,
álíka djarfir höfðu hópazt
kringum stúlkurnar sem
voru að bólusetja og horfðu
á, hvernig þær settu eina
litla rispu í aðra öxlina á
öllum. — Djöfullinn, maður,
þetta er ekkert vont, sagði
einn.
(Ljósm. Vísis I.M.)