Vísir - 15.01.1962, Page 3

Vísir - 15.01.1962, Page 3
Mánudagur 15. janúar 1962 V f S I R 3 MYNDSJÁ VISIS Ný stjarna skín Claudia Cardinale ítölsk kvikmyndagerð hef- ur verið í dálitlum öldudal síðustu þrjú til fjögur ár. Hinar eldri heimsfrœgu stjörnur þeirra hafa verið að lækka flugið á stjörnu- liimninum. En nú er að verða mikil endurreisn á Ítalíu. Það eru að vísu margir sömu leik- stjórarnir og áður svo sem Vittorio de Sica, Frederico Fellini, Luchino Visconti og Mauro Bolognini. En undir handleiðslu þeirra eru nú teknar að skína nýjar stjörnur, fegurri og bjartari en nokkru sinni fyrr, stjörnur sem skáka hin- um eldri kvikmyndaleikkon- um eins og LoIIobrigidu og Soffíu Loren. Auðvitað er þetta sama sagan og venju- lega, að ný kynslóð tekur við af þeirri eldri. ★ Claudia hefur þegar leikið í fjórum kvikmyndum. Mestu viðurkenninguna fékk hún fyrir leik sinn í kvik- myndinni „Rocco og bræður hans“ en varla eru dæmi til þess að, nein kvikmynd hafi unnið eins mörg verðlaun og hún. ★ Myndsjáin í dag birtir nokkrar myndir af Claudiu Cardinale. Á einni myndinni sést Mauro Bolognini hjálpa til við að farða hana, og á ann- ari myndinni sést hún í síð- ustu kvikmynd sinni „Elli- glöp'1, sem frumsýning var nýlega haldin á.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.