Tölvumál - 01.05.1986, Side 4
GLEÐILEGT SUMAR
Þetta tölublað er hið sxðasta, sem ut kemur á þvx
starfsári Skýrslutæknifélagsins, sem nú er að ljúka.
Það er því fyrir lesendur blaðsins að gera upp hug
sinn um það hvernig þeim falli sú tilraun, sem
núverandi ritnefnd hefur verið að gera í
útgáfumálunum.
Ef til vill eru einhverjir, sem ekki hafa orðið varir
við neina breytingu. Hinir eru þð vonandi fleiri,
sem veitt hafa þvl athygli að við höfum lagt
allnokkuð á okkur til að skapa áhugamönnum um
upplýsingatækni malgagn, vekja umræðu og koma
athyglisverðum málum á framfæri.
1 rauninni höfum við ritnefndarmenn aðeins oljðsa
hugmynd um það hvernig breytingarnar hafi fallið
hinum almenna félagsmanni. Flest okkar hafa þð orðið
vör við jákvæðar undirtektir frá því fðlki , sem við
höfum mest samband við, en til blaðsins hefur lltið
borist af ábendingum um það, sem betur má fara og
hugmyndir um úrbætur.
Reyndar barst okkur nú I vor grein frá nemanda I
framhaldsnámi í tölvunarfræðum I Bandaríkjunum, sem
lýsir þeirri von sinni að TÖLUVMÁL þrðist I það að
verða efnismikið tímarit, sem komi út mánaðarlega.
Grein, sem hann sendi okkur til birtingar, barst þvl
miður það seint að hún verður að blða næsta blaðs,
sem kemur út I september.
Félög tölvumanna og fagfélög, sem þeim tengist, hafa
ekki tekið boði okkar, um að birta fundarboð og
tilkynningar, eins vel og við höfðum vænst. Vonandi
hafa forsvarsmenn þeirra þð sannfærst um, þegar þetta
er ritað, að TÖLVUMÁL koma út reglulega 10 - 15 hvers
mánaðar, eins og þau fimm tölublöð, sem komin eru út
I ár. T haust getum við því vonandi öll tekið upp
þráðinn aftur. TÖLVUMÁL munu næst koma I pðstkassa
lesanda fyrir miðjan september. Þangað til ðskum við
ykkur gleðilegs sumars.
4
Ritnefnd TÖLVUMÁLA
Stefán Ingólfsson.