Tölvumál - 01.05.1986, Page 9
Svipuð þrðun hetur orðið hja Reiknistofnun Háskölans.
Hun er rekin á svipuðum grundvelli og SKÝRR að þvl
leyti að tekjur eiga að duga fyrir rekstrarkostnaði
ásamt endurnýjun og nauðsynlegri aukningu bönaðar.
Ekki ber að taka samanburð þennan of bðkstaflega.
Til þess eru stofnanirnar þrátt fyrir allt of ðlíkar.
Lengst af hafa þær rekið ósambærilegar vélar og
þessvegna er samanburður taxta vart raunhæfur. Auk
þess gæti verið einhver munur á efnistökum. Á línu-
riti Reiknistofnunar kemur það til dæmis ekki fram,
að gjald fyrir diskageymslu hefur verið nær óbreytt
árum saman, 1 krðnum talið.
Línuritin flytja þó bæði þann boðskap, að einingar-
verð I tölvurekstri hefur stðrlækkað á þessu 7 ára
tímabili og heldur enn áfram að lækka. -jg, si.
REIKNISTOFNUN H.I.:
9