Tölvumál - 01.05.1986, Side 16
ASlUBÚAR SffiKJA AÐ IBM
í þessu hefti TÖLVUMÁLA kemur fram að vinnslutaxtar
fyrir tölvuþjónustu opinberra aðila hér á landi hafi
lækkað um 23% á ári reiknað á föstu verðlagi undan-
farinn áratug. Vinnslutaxtarnir samanstanda af launa-
kostnaði, orku, húsnæðiskostnaði og fleiri kostnaðar-
liðum auk tölvukostnaðar. Þrðun þeirra er af þeim
sökum ef til vill ekki lýsandi fyrir tölvukostnaðinn
einan sér. í Bandaríkjunum telja menn að söluverð
tölvubúnaðar hafi lækkað á þessu tímabili um nálægt
20% á ári. Við getum því gengið að því sem gefnu að
tölvunotendur I opinbera kerfinu hér á landi hafi
notið þessara hagstæðu þróunar hingað til.
Verðlækkunin hefur reynst breytileg eftir þeim tækjum
sem í hlut eiga. Sum hafa lækkað minna, en önnur hafa
lækkað um meira en 20%. Verð einmenningstöla hefur
lækkað um 30% á ári undanfarin ár reiknað I banda-
rískum gjaldmiðli. Margt bendir til að sú þrðun eigi
eftir að halda áfram enn um sinn.
ASÍUMENN KOMA TIL SÖGUNNAR
Iðnfyrirtæki I Austur Asíu hafa sýnt það á
undanförnum árum að þau verða sífellt betur I stakk
búin að keppa við vestræn fyrirtæki. Bandaríkjamenn
hafa lengi haft áhyggjur af sðkn Japana í framleiðslu
bíla, rafeindatækja og annars iðnvarnings. Nú hafa
fyrirtæki frá Suður Kðreu, Singapore, Formðsu og
fleiri Aslulöndum bæst I hðp hinna japönsku.
Asíubúar þykja standa vel að vígi þegar um "staðlaða"
vöru er að ræða, ekki slst ef framleiðslan krefst
mikillar handavinnu. Til þessa hafa menn talið að
tölvuframleiðendur á vesturlöndum stæðu vel að vlgi
gagnvart austurlandabúum. Tölvur eru margflðkin
tæki, sem sífellt eru að breytast. Framleiðsla þeirra
krefst mikillar sjálfvirkni. Mjög ðveruleg
handavinna er til dæmis við samsetningu tölva. Af
þeim sökum hafa Bandaríkjamenn ekki reiknað með
umtalsveðri samkeppni frá Asíu I framleiðslu
einmenningstölva, nema ef vera skyldi frá Japan.
Þrátt fyrir það er nú farið að kveða nokkuð að fram-
leiðendum frá Aslu á bandarlska einmennings-
16