Vísir - 22.03.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 22.03.1962, Blaðsíða 5
Fimmtudagurinn 22. marz 1962. VISIR 5 Þau syngja gömlu Passíu- sálmalögin í útvarpinu Nu er hálfnaður að þessu sinni Iestur Passíusálmanna I útvarpinu, 27. sálmur í kvöld. Lesari í ár er séra Sigurður vígslubiskup Stefánsson á Möðruvöllum. Á undan og eftir lestri hans eru nú í fyrsta sinn í útvarpinu sungin gömlu Pass- íusálmalögin. Fjórir söngvarar syngja. Ljósmyndari Vísis tók þessa mynd í gær af æfingu söngfólksins í Dómkirkjunni. Talið frá vinstri: Þuríður Páls- dóttir, Magnea Waage, Erlingur Vigfússon og Kristinn Hallsson. Að baki þeim situr Páll ísólfs- son og leikur undir á orgelið. Það er Sigurður tónskáld Þórðarson, sem útsett hefir gömlu Passíusálmalögin, sem við heyrum nú á hverju kvöldi. Hann hóf að safna þeim víðs- vegar af landinu fyrir um 20 árum, hefir búið þau til útgáfu, og koma þau út á vegum bókaútgáfu Menningarsjóðs áð- ur en langt ftður í minningu þess, að liðin eru 300 ár, síðan farið var að syngja Passíusálm- ana, og það var gert undir þessum gömlu þjóðlögum / fram um síðustu aldamót, þeg- ar Jónas Jónasson safnaði og gaf út erlend lög, sem notuð hafa verið víðast hvar á land- inu síðan. Björn Bjarnason menntaskóla- kennari áfram sínum ótrúlega skemmtilegu erindum um stærðfræði, sem hann kallar þvi gamla fslenzka heiti Töl- vísi, og ræðir enn um svokall- aða talnaritun. Guðmundur Gilsson organleikari Bach leikinn á orgel. Þá kemur 6. kynning ís- lenzkra orgelleikara á Bach, ungur orgelleikari, Guðmundur Gilsson á Selfossi, leikur orgel- tilbrigðin „Sei gegrusset, Jesu gUtig“, en Páll ísólfsson flytur formálsorð. — Ekki get ég að því gert, að frá því ég fyrst man, hef ég ætíð hugsað mér hinn mikla meistara Bach fyrst og fremst skáld orgelsins, enda þótt hann hafi vitaskuld samið fjölda verka fyrir mörg hljóðfæri önnur. Ýms tónverk hans, sem við heyrum oft í út- varpinu leikin af hljómsveitum, eru ekki þannig komin frá tón- skáldinu, heldur útsett af seinni tíma mönnum, einkum Sto- kowski. Það er því mjög skenWhtilégt1 að bera saman þau verk leikin á hljóðfærið, sem Bach samdi þau fyrir og svo aftur hljómsveitarútsetn- ingarnar. Orgelið er raunar það hljóðfæri, sem hljómað getur líkast heilli hljómsveit. — Guðmundur Gilsson (skírður Gilsson) er Reykvíkingur, son- ur Guðjóns vélstjóra Sigurðs- sonar og Guðnýjar Jensínu Gilsdóttur. Hann lauk námi (að- algrein orgelleikur) í Tónlistar- skólanum f Reykjavík og í söngmálaskóla Þjóðkirkjunnar. Var síðan á námskeiði í við- haldi kirkjuorgela f Danmörku og Þýzkalandi, stundaði orgel- nám við tónlistarháskóla rfkis- ins í Hamborg 1952 — 55. Kenndi fyrst eftir heimkom- una við tónlistarskólann f Vest- mannaeyjum og kirkjusöng- málaskólann. Frá 1955 hefir hann verið skólastjóri og kennari tónlistarskóla Árnes- sýslu á Selfossi og einnig í Rangárvallasýslu, og orgel- leikari Selfosskirkju frá sama tíma, og er formaður kirkju- kórasambands Árnessýslu. Kvöldvaka bændavikunnar býður upp á fjölbreytta dag- skrá í útvarpinu í kvöld. Fyrst syngur karlakórinn Heimir í Skagafirði undir stjórn Jóris Björnssonar bónda á Hafsteins- stöðum. Þá verða viðtöl við þýzkar húsfreyjur á íslenzkum sveitabæjum. Ráðunautar Bún- aðarfélagsins tveir, þeir Agnar Guðnason og Jóhannes Eiríks- son, fara á bæi og ræða við hús- freyjurnar að Seli í Grfmsnesi, Miðhúsum í Biskupstungum, Eystri-Ey í Kjós og Hrísakoti í Botnsdal. Húsfreyjan að Seli heitir Elinóra og við höfum fyrir satt, að hún sé einskonar barónessa eða því sem næst, var ein þeirra mörg- hundruð flóttastúlkna, sem hingað komu 1949 frá Austur- Þýzkalandi með tvær hendur tómar og réðu sig í vist á ís- lenzka sveitabæi, kræktu marg- ar í bóndasoninn og tóku þau svo við búsforráðum. Sumar þessar stúlkur voru af forríku fólki komnar, en flýðu frá öllu og höfnuðu hér slyppar og snauðar. Fáum við eitthvað meira að heyra af því í kvöld. „Góði dátinn Svæk“. Fluttur verður leikþáttur úr sveitinni eftir Emil Ásgeirsson (bróður Haraldar Á.) bónda f Gröf í Hrunamannahreppi, og Helga húsfreyja Þórðardóttir í Auðsholti í Biskupstungum flytur minni karla. Þá verða viðtöl við veiðimenn, Hinrik í Merkinesi, Lárus í Grímstungu og Carlsen minkabana. En það er ekki aðeins Carlsen, heldur og hinn landfrægi hundur hans „Góði dátinn Svæk“, sem læt- ur til sín heyra. Ingólfur • • • Framh. af 1. síðu. að hér væri um að ræða frum- rannsókn á sjálfu svæðinu und- ir Miðbænum. — Með hinum litla jarðbor ,sem safnar i sig kjarna þess jarðvegs sem hann fer f gegnum, er hugmyndin að bora á alls 15 stöðum, víðs veg- ar i miðbæjarsvæðinu, t.d. við Herkastalann, í Aðalstræti, í Grjótaþorpinu, við Dómkirkj- una, þar sem áður stóð Dillons hús og víðar. Borað verður í rannsóknarskyni gegnum yngstu jarðlögin. Þvi miður verður ekki hægt að hefja þessar boranir og at- huganir fyrr en f byrjun maí- mánaðar, sagði Þorkell Grims- son, og með mér starfar við rannsóknimar Þorleifur Einars- son náttúrufræðingur. í vetur hefur Þorkell nokkuð | unnið að rannsóknum hins' foma bæjarstæðis Reykjavíkur. Jafndægur . • • Framh. af 1. síðu. heima. Það mátti sjá það á fasi og allri framkomu vegfarenda að þeim var létt i skapi við tilhugs- unina um nálægð vors- ins. Menntaskólakrakk- ar spígsporuðu áhyggju lausir á Lækjargötunni, og nutu rjómaíssins úti í veðurblíðunni, í ná- lægð við blessað vorið. (Ljósm. Vísis: I.M.) IFrumsýning • • • Framh. af 16. síðu. fyrsta skipti hér á landi. En hefur verið mikið leikið á Englandi og hvarvetna hlotið miklar vinsældir, enda er leikurinn hinn spaúgileg- asti. Leikurinn gerist á stríðsárun- um og fer fram á heimili sóknar- i prestsins. Með hlutverkin fara: Auður Guð- mundsdóttir, Ragnar Magnússon, Margrét Guðmundsdóttir, Steindór Hjörleifsson sem leikur sóknar- prestinn séra Toop í veikindafor- föllum annars, Sigurður Kristins- son, Valgeir Óli Gíslason, Sverrir Gaðmundsson og Gunnlaugur Magnússon. Leiktjöld eru máluð af Bjarna Jónssyni listmáiara. Guðmundur Þorleifsson smíðaði leiksviðsút- búnaðinn. Athugasemd Vegna óverðskuldaðra ummæla á þriðju síðu blaðsins s.l. fimmtu- dag skal eftirfarandi tekið fram: ísl. niðursuðuvörur hafa verið fluttar út fyrir tugmilljóhir króna á síðastliðnum árum, og nam út- flutningurinn á árinu 1961 rúm- lega 22 milljónum króna til 13 landa. Mestur hluti niðursuðuvara þeirra, sem út hafa verið fluttar, hafa verið í umbúðum, sem fram- Ieiddar eru hér á landi. Þrátt fyrir frjálsan innflutning , dósa ,sem eru tollfrjálsar við út- flutning, hafa framleiðendur séð sér hag í því að kaupa dósirnar hérlendis. Leikfimi að nýju Ákveðið hefur verið í sam- ráði við heilbrigðisyfirvöldin að leikfimi og sundkennsla hefjist •að nýju á morgun samkvæmt stundaskrá f öllum skólum. Það skal þó brýnt fyrir for- eldrum þeirra barna, sem hafa fengið inflúenzuna og hafa ekki náð sér að fullu eftir hana að fara varlega í sakimar fyrst í stað. Hæstu með 300 tonn í SÍMTALI sem blaðið átti í morgun við Vestmannaeyjar, kom það fram, að það er heldur dauft yfir vetrarver- tíðinni í þessari stærstu ver- stöð landsins. Sem dæmi um lítil aflabrögð, var það tekið fram að um miðjan þennan mánuð hafi aflahæsti bátur- inn verið kominn með um 300 tonna afla alls, en það er Stígandi, skipstjóri Helgi Bergvinsson. Eftir kvöldfréttatíma heldur Axglýsendur athugið! Al’jr auglýsingar, aðrar en smáauglýsingar, þurfa að hafa borizt blaðinu fyrir kl. 6 daginn áður. Smáauglýsingar fyrir kl. 10 f.h. samdægurs. I idantekning er á þessu á mánudögum. Þá er frestur til að skila öllum auglýsingum til kl 10 f.h. samdægurs. KL :taka auglýsinga er í Ingólfsstræti 3 og Laugavegi 178 (III. hæð). - Sími 11660. Dædblaðið VÍSIR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.