Tölvumál - 01.10.1987, Blaðsíða 7
Þann 3. september s.l. sendi nefndin bréf til Jóns Baldvins
Hannibalssonar, f jármálaráðherra, þar sem rökstudd mótmæli
voru lögð fram gegn álagningu söluskatts á tölvur, hugbúnað
og tölvuþjónustu, og skorað á stjómvöld fýrir hönd
Skýrslutæknifélags íslands að endurskoða hug sinn i þessu
máli. Nefndarmenn teldu það alvarleg mistök ef skammtíma-
s j ónarmið yrðu látin ráða á kostnað langtimahagsmuna
islensks þjóðfélags og þar á meðal skattgreiðenda.
Vegna óljóss orðalags nýútgefinnar reglugerðar um 25%
söluskatt á tölvur og 10% sérstakan söluskatt á tölvu-
þjónustu óskuðu söluaðilar IBM PC-tölva eftir þvi við
fjármálaráðuneytið þann 8. septerriber s.l. að skýrt yrði
hvemig hugbúnaður skyldi skattleggjast. Það gerði
ráðuneytið með bréfi dags. 9. september, sem sent var til
tollstjóra og til áðumefndra söluaðila. Þar kemur fram að
25% söluskattur sé lagður á staðlaðan hugbúnað.
Þar sem ljóst er að 25% söluskattur er reiðarslag fyrir
islenskan hugbúnaðariðnað hélt nefndin ötullega áfram að
vinna að þessu máli.
Að loknum viðræðum við aðstoðarmann f jármálaráðherra, Bjöm
Bjömsson, og rikisskattstjóra var ljóst að aðalatriði
málsins em þessi:
Hugbúnaður er söluskattsskyldur og verða engar undan-
þágur veittar
Óheppilegt er að framleiðsla og þjónusta hugbúnaðar-
fyrirtækja sé flokkuð i þrjá flokka:
fjölfaldaður hugbúnaður með 25% skatti
vinna, aðlögun, viðbætur og uppsetning með 10%
skatti og
kennsla án söluskatts.
- Mælt verði með þvi að söluskattur á hugbúnað verði
10%, hvort sem hugbúnaðurinn er fjölfaldaður eða ékki
og að kennsla sem fer fram i kennslustofu á skipulögðu
námskeiði sé án söluskatts.
Þegar þetta er ritað hafa Skýrslutæknifélag fslands og
Félag islenskra iðnrekenda boðað til sameiginlegs fundar i
Norræna húsinu til að kynna stöðuna i söluskattsmálum og
ræða áfrairihaldandi aðgerðir. -kþ.
- 7 -