Tölvumál - 01.10.1987, Blaðsíða 12
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG fSLANDS
Pósthólf 681
121 REYKJAVÍK
¥
[—1 f
"tq
N Á M S K E I Ð
g
HUGBÚNAÐARGERÐ
Skýrslutæknifélag íslands heldur námskeið i hugbúnaðargerð,
dagana 2.-6. nóvember n.k. kl. 09.00 til 17.00, að Hótel
Loftleiðum (Eiriksbúð).
Námskeiðið er einkum ætlað þeim, sem þurfa að skipuleggja
og stjóma stórum hugbúnaðarverkefnum, s.s. kerfisfræðing-
um, ráðgjöfum, tölvunarfræðingum og verkfræðingum.
Kjarni námskeiðsins er fyrirlestrar, jafnframt þvi
sem þátttakendur fást við verkefni tengd efni þeirra.
Farið verður i heimsókn til stærstu tölvuseljenda
hérlendis og þau hjálpartæki er þeir bjóða við
hugbúnaðargerð verða kynnt. Ennfremur verða kynnt
aðfengin hugbúnaðarkerfi sem nota má til þess að meta
og hanna hugbúnað.
Þátttakendur kynnast nýjustu aðferðum við kerfisgerð
og beitingu þeirra. M.a. verður fjallað um kröfu-
greiningu, kerfisgreiningu, kerfishönnun, gangsetn-
ingu tölvukerfa, hjálpartæki, s.s. forritunarmál af
fjórðu kynslóð, frumgerðir ("prototypes"), hugbún-
aðarverkfræði, prófanir tölvukerfa, verkefnisstjórn-
un, gæðamat og gæðaeftirlit, mat á stærð hugbún-
aðarverkefna, hagkvæmnisathuganir á rekstri tölvu-
kerfa, staðla, útboðslýsingar og tilboðsgerð.
KENNARAR:
Dr. Oddur Benediktsson, prófessor i tölvunarfræði við
Háskóla íslands.
Bjarni Júliusson, kennari i kerfisgreiningu og kerfishönnun
við Háskóla íslands.
BÆKUR:
Testing in Software Development: Ould og Unvin
Software Engineering Economics: Boehm
Software Engineering: A practitioners Approach:
Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig hjá Kolbrúnu
Þórhallsdóttur, sem einnig gefur allar nánari upplýsingar,
á skrifstofu Skýrslutæknifélags íslands i síma 2 75 77.
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS